Takk kærlega fyrir stuðninginn - verð alsæll ef að Besti og Samfylking ná saman um samstarf

Takk öll kærlega fyrir stuðninginn. Ég er afar þakklátur fyrir meðbyrinn sem að ég upplifði undir það síðasta og fyrir öll þau fallegu hvatningarorð sem að bárust. Mikið af fólki sem að hafði samband eftir Kastljós þáttinn á föstudagskvöldinu og lýsti yfir ánægju sinni með okkur, en það var bara því miður greinilega allt of seint þá.
Þetta var spennandi en tíminn var augljóslega of knappur og fjármagnið líka. En dropinn holar steininn og er svo sannarlega kominn langt í gegnum hann nú þegar. Ég upplifi þessar breytingar í pólitíkinni sem afar jákvætt framhald af byltingu sem byggðist á reiði. Nú er kominn tími á að breyta hlutunum með jákvæðninni.
Ég upplifi þessa auðmýkt sem að forysta Samfylkingar hefur sýnt í viðbrögðum sínum sem vott um nýja hegðun líka og viðurkenni að það fyllir mig von um að þar á bæ sé fólk tilbúið til að taka skilaboðunum, fara í naflaskoðun og stíga fram þroskaðri og lýðræðislegri á eftir.
Besti er svo sannarlega sigurvegari kosninganna en státar kannski ekki af þéttustu stefnuskránni. Samfylkingin er með frekar vel mótaða stefnuskrá, að mörgu leyti samstíga Reykjavíkurframboðinu, og þessir tveir kostir eiga því augljóslega að geta náð ágætlega saman.
Það er líka til mikils að vinna að halda Sjálfstæðisflokknum alfarið frá stjórn borgarinnar um langt skeið. Naflaskoðun er augljóslega ekki á dagskránni á þeim bænum, þar sem að menn keppast hver ofan í annan við að lýsa yfir "stórsigri". Veruleikafirringin ekkert að dvína þar á bæ.

Viva la revolution - nú einbeitum við okkur að brosbyltingunni áfram :)
Takk kæru vinir, félagar, fjölskylda og samferðarfólk fyrir stuðninginn. Nú er bara að kíkja á atvinnuauglýsingarnar - virðist ekki mikið vera að glæðast í ferðaþjónustunni a.m.k. :)

mbl.is Viðræður halda áfram á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Blöndal

Baldvin, ég hefði vilja sjá þig og þitt framboð fá mann eða menn inn í borgarstjórnina. (þó ég styðji Sf).
Þið voruð með góða málefnaskrá. Besti gat ekki státað af því.

Jákvæðnin er ágæt, sé þess gætt að málefnaleg gagnrýni fái sitt pláss.
Jákvæðnin varð of mikil upp úr 2006, sem svo aftur átti sinn hlut í hruninu. Þá mátti enginn gagrýna bankakerfið og efnahagsstefnu íhaldsins.

Ég vona að þið félagar í Reykjavíkurframboðinu takið upp þráðinn
þar sem frá var horfið fyrir næstu Sveitastjórnarkosningar.
Með meiri fyrirvara og massívari kynningum.

Páll Blöndal, 31.5.2010 kl. 01:52

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú vilt sem sagt sjá samfylkinguna við stjórn, þrátt fyrir að henni hafi verið hafna út í ystu myrkur?  Dagur var næstmest strikaður út.  Hafnað af þúsundum eigin flokksmanna. 

Mér finnst undarlegt hvernig þú metur hlutina. Skyldi það vera ástæðan fyrir afhroði þínu að þú ert samfylkingarmaður í sauðagæru?

Það skyldi þó aldrei vera?

Jón Steinar Ragnarsson, 31.5.2010 kl. 02:10

3 Smámynd: Jón Sveinsson

Það er með þig eins og aðra að hunsa kjósendur það er aðeins heilbrigð skynsemi að Æ OG D SÍÐAN HAFA  VOG S MEÐ EF ÞAU VILJA ANNAÐ ER FORHEIMSKA.

Jón Sveinsson, 31.5.2010 kl. 07:55

4 Smámynd: Baldvin Jónsson

Útfrá skilningi lýðræðisins eru skýr skilaboð um það að fólk vill fá nýjan meirihluta. Það eru skilaboð um að þeir sem leiddu síðasta meirihluta eigi ekki að sitja við stjórn lengur. Ég er sammála Ólafi F. með það.

Ég tel líklegt Jón Steinar að Dagur skoði stöðu sína vel. Hann hefur augljóslega ekki sterka stöðu lengur sem leiðtogi í borgarflokknum. Væri gaman að sjá Hjálmar Sveins detta inn.

Ertu virkilega ekki búinn að lesa mig nógu lengi Jón Steinar til að gera þér grein fyrir því að ég er ekki flokks-neitt að neinu leyti?

Ég er húmanískur kapítalisti - sem samkvæmt okkar mælikvarða er frekar jafnaðarmennska eða heldur til hægri, en afar vinstri sinnað í USA sem dæmi. Ég hef aldrei verið hluti Samfylkingarinnar að því undanskildu að ég er skráður í alla flokka að Framsókn undanskildum, vegna þess að ég tel þátttöku í prófkjörum það næsta persónukjöri sem að ég kemst í dag og ég tók þátt í öllum prófkjörum fyrir þessar kosningar.

Ég er því jafn mikið D, S eða VG í sauðagæru eins og hvað annað.

Jón Sveinsson, það er vilji meirihluta kjósenda að Besti leiði þessar viðræður. Það er svo einfalt. Ég sé ekki fyrir mér að Besti og Sjálfstæðisflokkur eigi jafn góða möguleika á að ná saman út frá hugmyndafræði framboðanna almennt. 

Að auki er ég persónulega að sjálfsögðu hrifnari af því að fá mörg stefnumál Samfylkingarinnar til framkvæmda þar sem að þar er margt sem að er sambærilegt stefnumálum REYKJAVÍKURFRAMBOÐSINS.

Sjálfstæðisflokkurinn stendur ekki með auknu lýðræði á neinum sviðum nema í einhverjum leiktjöldum sem að hann getur stýrt sjálfur og því í raun blekking.

Baldvin Jónsson, 31.5.2010 kl. 12:40

5 Smámynd: Durtur

Hvernig sem á það er litið fékk Æ 6 menn inn, D 5 og S 3, þannig að mér finnst persónulega vera meira en lítil afskræming á lýðræðishugtakinu að halda því fram að Reykvíkingar vilji fá Æ og S í meirihluta. Miðað við það sem ég þekki af hugsjónum Jóns og félaga sýnast mér þær heldur ekki samrýmast Samfylkingunni mjög vel, en það sama er svosum hægt að segja um Sjáfstæðisflokkinn... þessi frjálshyggjusósíalismi sem Æ virðist aðhyllast fellur ekkert ofboðslega vel að neinum þessarra flokka.

 Sjálfur hef ég verið Sjálfstæðismaður í gegnum tíðina en kaus Æ. Á hvaða öðru ári sem er, er ég nokkuð viss um að ég hefði kosið ykkur, Baldvin; mér fannst þið koma langbest fram sem stjórnmálaafl og mér finnst synd og skömm að þið hafið ekki fengið fleiri atkvæði en það þarf náttulega svo mikla fjármuni til að kynna sig almennilega--en ég þarf svosum varla að segja þér það :)

Þið fenguð allavega fleiri atkvæði en H, þrátt fyrir að skeleggur leiðtogi þeirra hafi verið með 3800 örugg atkvæði og VÆRI EKKI TIL SÖLU SEM STJÓRNMÁLAMAÐUR!

Vonast til að sjá meira af ykkur í framtíðinni. Til lukku, og ég þakka fyrir valmöguleikann; ef ekki hefði verið fyrir ykkur hefðu þetta allt verið trúðar nema Jón.

Durtur, 31.5.2010 kl. 14:16

6 identicon

Það var synd að þú skildir ekki ná inn, áttir sannarlega erindi og vonandi að þú reynir aftur.

En varðandi meirihlutamyndunarviðræður o.fl. í þeim dúr langar mig til að kopýpeista þessi orð Glaums, eins og hann kallar sig, yfir á bloggið þitt.

"Ef Besti er það sem hann segist vera - án ruslapoka, þá er mikilvægt að hann gangi hægt til verka varist eftirfarandi týpískar fjórflokkagildrur:

1. "Nauðsyn á myndun starfhæfs meirihluta" er vinsæll fjórflokkafrasi en starfhæfur meirihluti á íslensku fjórflokksins þýðir einfaldlega "Hvernig skiptum við í meirihlutanaum kökunni á milli okkar?". Áróðursdeildir fjórflokkanna á fjölmiðlum kynda undir þessu en af hverju skyldi ekki vera nægjanlegt að einfaldur meirihluti borgarfulltrúa og rafræn íbúakosning útkljái flest mál?

2. Annar viðbjóðsfrasi er svokallaður "málefnasamningur" en í mállýsku fjórflokksins kallast það "Svona svíkjum við öll okkar loforð en sendum reikninginn til kjósenda". Þetta þarf Besti að forðast eins og heitan eldinn.

3. "Útsendarar og trjóuhestar Samfylkingarinnar". Við sáum hvernig þeir fóru með Borgarahreyfinguna með daðri og fagurgala. Rifu hana síðan á hol og nöguðu að innan þegar hún makkaði ekki rétt vegna ESB og síðan steig Þráinn Bertelson skyndilega fram á sviðið sem stuðningsmaður stjórnvalda nr. 1! Það er spurning hver verður Þráinn innan Besta en maður sér þegar kunnuglega takta..

4. Samstarf með Sjálfstæða glæpaflokknum - þarfnast ekki frekari útskýringar.

Ég vona að Jón Gnarr standi við stóru orðin og opni fyrir beint lýðræði fyrir þessar 80 þúsund hræður sem enn hokra í Reykjavík þannig að ákvarðanatakan færist frá spilltum milliliðum til almennings."

Toni (IP-tala skráð) 31.5.2010 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband