Alveg frábært að sjá heilbrigði þjóðarinnar gagnvart þessu máli....

1-0 fyrir siðferði....
mbl.is Hætt við klámráðstefnu hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er samstaða í Samfylkingunni?

Var að lesa að mínu mati athyglisvert blog hjá Pétri Gunnarssyni.

Hef oft velt fyrir mér málefnum Samfylkingarinnar. Kannski helst vegna þess að mér hefur oft fundist að þeir væru hvað næst því að endurspegla mínar hugmyndir, en finnst þeir ekki hafa náð að sýna þá samstöðu og fylgni með málum til að vekja áhuga minn til fulls. Hafa að mínu mati of oft sýnt hverfullyndi í málum sem að hafa verið lögð fram.

En er ekki lausnin fyrir Samfylkinguna bara sú að starfa meira út á við eins og Sjálfstæðisflokkurinn?

Þá meina ég að sjálfsögðu ekki að Samfylkingin ætti að breyta stefnuskrá sinni til þeirrar áttar, heldur það að lið er hópur en ekki einstaklingar. Til að við hin sjáum Samfylkinguna sem samhentan hóp út á við þurfum við að sjálfsögðu að sjá það í framkomu. Innri strögl um sæti, stöður og skoðanir einstaklinga með yfirlýsingum út á við skapar ekki þá sýn á Samfylkinguna eða traust á að Samfylkingin geti starfað sem hópur að málefnunum.

Þangað til að það gerist sé ég ekki að atkvæði mínu sé vel varið hjá þeim.

 


Eru peningar tilgangur?

Ég fíla peninga. Ég fíla peninga mjög vel. Ég fíla þá svo vel að ég hef jafnvel fallið í þá
gryfju að trúa því að peningar geti verið tilgangur í sjálfum sér.
Reynsla mín er hins vegar sú að peningar sem tilgangur skapa mér ekki þá hamingju sem
mig langar að upplifa og njóta. Þeir hafa oft og ítrekað fært mér mikla gleði og ánægju til
skamms tíma, en einhvern veginn verða þeir frekar aumkunnarverðir þegar ég ætla að upplifa
tilgang í þeim. Það er nefnilega þannig að í mínu lífi hafa þeir þjónað mér best sem verkfæri en ekki tilgangur.

En ég fíla þá. Já, fíla þá mikið. En fíla ég þá meira en framtíð fyrir börnin mín?

Ég heyri mikið rætt um það í ótta að mögulegt framboð grænna myndi ekkert gera nema stela
frá vinstri grænum í næstu kosningum. Eru að sjálfsögðu fyrst og fremst fylgismenn vinstri grænna
sem að standa fyrir þeirri umræðu.
Miðað við þá sem ég hef rætt þessi mál við þá er ég einn af fjölmörgum sem skilgreina sig
ekki ákveðið pólitískt. Tel mig reyndar frekar til hægri ef eitthvað en hef allatíð kosið eftir
sannfæringu minni hverju sinni og atkvæði mitt hefur lent báðum megin línunnar svona eftir
málefnunum hverju sinni.

En er þessi umræða um hvaðan atkvæðin koma ekki  bara á villigötum?
Er þetta ekki óttahjal sem snýst um ótta manna við eigin afdrif og síns flokks?

Ég verð að spyrja mig tveggja spurninga held ég fyrir þessar kosningar. 

1.      Hvort skiptir mig meira máli framtíð okkar allra eða framtíð pólitískra afla?

2.      Hvernig er markmiðum okkar best náð? Með nýju framboði sem mögulega nær litlu fylgi
EN kemur þó málefninu virkilega vel á framfæri, eða með engu framboði og MIKILLI
kynningarvinnu innan allra flokka?

Ég er einn þeirra sem trúi því að framboð gæti verið farsælli kostur í dag.
Ég held að eigingirni (tímaskortur) mín og meðbræðra minna sé bara einfaldlega orðin of
mikil til þess að fólk gefi sér almennt þann tíma sem til þarf til að vinna á bakvið tjöldin innan
allra flokka. Mér finnst orðið langt síðan að náðist sú samstaða hjá okkur fólkinu sem til þarf
til að ná árangri með þessum aðferðum.
Stemmningin sem að ég hef orðið aðallega var við undanfarin áratug (til þess að ýkja ekki
mikið) er að fólk vill frekar sitja inni á kaffistofum og fárast yfir ástandinu á öllum hlutum,
heldur en að stíga fram og raunverulega GERA EITTHVAÐ til þess að breyta einhverju.

Við virðumst almennt vera búin að missa trúna á að við getum eitthvað gert eða einhverju breytt.

Ég reyni að minna mig mjög reglulega á orð góðs vinar, “ef ég geri ekki neitt, þá gerist ekki neitt”.

Þetta hljómar einfalt og aulalegt, eða hvað?

Erum við kannski öll að bíða eftir að eitthvað gerist og/eða breytist án þess að gera neitt??
Var Reynir Harðarson að gera mistök með því að stíga frá upphaflegri hugsjón sinni um framboð
og “sætta sig” við að fara í Samfylkinguna?

Ekki misskilja mig. Ég hef alls ekkert á móti Samfylgingunni og hef kosið til þeirra áður, en var
Reynir mögulega að stíga í gömlu gryfjuna og hætta við sínar langanir vegna ótta við mistök??
 

Já, Steingrímur – þegar smátt er spurt….

 

ÁFRAM LIVERPOOL :):):)

Alveg meiriháttar fyrir okkur poolarana að fara heim með 2 mörk á útivelli Ótrúleg "tilviljun" að aðalmennirnir í umfjöllun um liðið undanfarið setji síðan báðir í leiknum!?!  Ha!!  Frábært bara....

Nokkrir skemmtilegir tenglar af YouTube......

Var að leita að ákveðnu efni fyrir eiginkonuna og datt inn á þessa í leiðinni. Virkilega gaman að sjá þann sem einu sinni kallaði sig Prince á "live show" á súpuboltanum. Sjá hér part 1 og part 2 . Og svo áhugaverð Snickers auglýsing sem að mér skilst að...

Hvers er ábyrgðin?

Hver ber ábyrgð á neyslu ólögráða einstaklinga?  Þessi spurning verður mér gjarnan hugleikin. Við lesum um það ítrekað þessa dagana að til virkilegra vandræða hafi komið vegna ofneyslu unglinga á tölvuleikjum og aðgerðum foreldra til að reyna að stemma...

Hluti af ferlinu bara.....

Það virðist a.m.k. orðinn fastur liður í uppsagnarferli þjálfara að birta svona yfirlýsingar. Ferlið er að virðist einhvern veginn svona: 1.  Birtar yfirlýsingar um að árangur liðsins undanfarið sé að sjálfsögðu áhyggjuefni 2.  Birtar yfirlýsingar um að...

Skrítið, minnist þess ekki að hafa séð Simma skrifa neitt um þetta.....

já, eins og hann er nú almennt duglegur að bloggast hérna inni.....

Fer saman vernd og ofbeldi?

Alveg ótrúlega óheppilegt fyrir málstað okkar sem viljum standa vörð um náttúru landsins. Það er nákvæmlega út af fréttum sem þessari sem tekst að teikna "þetta lið" eins og ég heyri svo alltof oft sagt, sem hassreykjandi hryðjuverkamenn. Ömurlega...

Já, svo bregðast krosstré sem önnur....

Elsku litla sæta Britney, sæta Britney sem kynnti sig fyrir heiminum fyrir afskaplega fáum árum síðan sem auðmjúka millistéttar stelpu frá Kristnu heimili. Litla sæta Britney. Já þessi dásamlegi tvískinnungur (siðprúð í orði en varla á borði) hefur...

Er vaxandi vitund fyrir verndun?

 Þegar ég var krakki fannst mér alltaf að einn eftirtektarverðasti stjórnmálamaðurinn væri Steingrímur Hermannsson. Ekki endilega vegna embættisverka hans sem þingmanns og/eða ráðherra, heldur tók ég frekar eftir honum fyrir að mínu mati...

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband