Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Hvernig stendur á því að Olíufélögin eru enn að starfa í samráði?? Hvernig stendur á því að þau kaupa aldrei inn þegar Dollarinn er að lækka??

Er þetta ekki einfaldlega óþolandi??

Tók þetta af spjallþræði sem ég rakst á:

...."

Einhverra hluta vegna fylgist ég með verðskiltunum á sjálfsafgreiðslunni á þessum stöðum.

Verðin þann 15.08.07:

Olís : Diesel 124,0 / Bensín 125,0

Select: Diesel 124,0 / Bensín 125,0

N1 : Diesel 124,0 / Bensín 125,0

Nú, ég keyri aftur þarna framhjá í dag og tek stöðuna á skiltunum:

Verðin þann 16.08.07:

Olís : Diesel 126,0 / Bensín 127,0

Select: Diesel 126,0 / Bensín 127,0

N1 : Diesel 126,0 / Bensín 127,0

Sem sagt, rjúkandi samkeppni (eða öllu heldur samráð) upp á aur! ".....

 

Ætlar þú að versla við samráðs fólkið eða samkeppnis aðilann??


mbl.is Bensínverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bogamenn, Stjörnuspeki og sambönd?? Varúð, undarlega væmið fyrir minn smekk.....

Ok, flestum er það eflaust kunnugt sem til mín þekkja að trú mín á Stjörnuspeki almennt er heldur lítil en var að "fatta" svolítið í dag sem að mér finnst nú ansi skemmtilegt samt og til þess fallið að aðrir Bogamenn ættu a.m.k. að íhuga málið.

Ég er Bogamaður og konan mín líka.  Skv. bókum um þessi fræði er besti mögulegi maki Bogamanns konunnar Bogamanns karlmaður.  Besti mögulegi maki fyrir Bogamanns manninn er víst vandfundinn hins vegar og án þess að bækurnar segi það beint út að þá virðist henta Bogamanns manninum almennt bara best að bindast ekki, a.m.k. ekki mjög fast.

En sem sagt, í dag áttaði ég mig á því að við hjónin eigum vinahjón sem eru líka bæði Bogamenn og mér til furðu er líf þeirra um ansi margt afar líka lífinu okkar.

Ég er mjög hamingjusamlega giftur dásamlegri konu og erum við búin að vera hamingjusöm (svona að mestu í því sem lífið býður upp á) saman í að verða 12 ár sem er nú ansi merkilegt í samfélagi þar sem flestir virðast skilja og BogaMönnum greinilega varla ætlað að vera í langtíma sambandi.

Vinafólk okkar er síðan einmitt gott dæmi um fólk sem að ég hef gjarnan horft til og hugsað með mér að þau væru skínandi gott dæmi um fyrirmyndar samband og þá sérstaklega dáðst að samskiptum þeirra, sem að mér finnst vera í anda samskiptanna sem ég á að venjast við mína yndælis frú.

En af hverju er þetta eitthvað merkilegt?

Jú, vegna þess að í dag var mér sagt af þessum Bogamanna hjónum sem ég kíkti við hjá í dag að kunningi minn og vinur þeirra og hans spússa, sem gegna orðið stóru hlutverki í einni sjávarbyggðinni fyrir vestan og eru einmitt líka fyrirmyndar dæmi um falleg hjón og samskipti (úff langloka), eru einmitt bæði Bogamenn líka.

Jú jú, hér er orðið pláss fyrir fullyrðingu svei mér þá.

Bogamenn með Boga"konum" er sem sagt afar líklegt til langvarandi árangurs. Já, þar hafið þið það.......

En af hverju?  Er það kannski bara af því að við Bogamenn virðumst almennt ekki taka okkur mjög alvarlega?  A.m.k. ekki lengi í einu Whistling

Er það ekki kannski bara lykillinn að hamingjusömum samböndum?  Að taka hvort annað bara svona hæfilega alvarlega og hlægja þeim mun meira??


Finnst þér þetta ekkert skrítin fyrirsögn??

Jú jú, virkilega ánægður fyrir hennar hönd hvað hún var hress og ern þegar hún dó. Það er vissulega algert stuð, en spurningin er fyrir mér um gæði blaðamennsku.

Ef hún er dáin, er hún þá elsta manneskja í heimi?

Er ekki réttara að segja að fyrrum elsta manneskja heims sé látin?  Er ég bara að þusa kannski af því að ég nenni ekki að fara að sofa??

Anyways, ætla að fara að "taka mig á" og koma mér í bælið. Skólinn byrjaður af fullum þunga og mér veitir ekkert af hvíldinni Cool  Verð vonandi súpernörd í lok fjarnáms annarinnar sem er að hefjast hjá mér á Bifröst.


mbl.is Elsta manneskja í heimi látin - úr elli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli þetta sé flottasta skam-spamið sem er í gangi núna? Að spama í nafni Allah?

Eru Nígeríu bréfin farin að þróast?  Ég hló amk alveg óskaplega þegar ég las þetta, flottasta keðjubréf sem ég hef fengið lengi Smile  Sjá hér að neðan:

 

THE ISLAMIC EMAILS INTERCONTINENTAL LOTTERY.
102 MOHAMMAD AKRAM ROAD,AMMAN -KINGDOM OF JORDAN.
ASIAN CUSTOMER SERVICES CENTER.
115 SUKHUMVIT ROAD BANGKOK-KINGDOM OF THAILAND.
REF NO:FI/550/05ES.
BATCH NO:6677-05734.

DEAR WINNER,

MAY THE BLESSINGS AND THE PEACE OF ALMIGHTY ALLAH BE UPON YOU.

The lslamic emails lottery happily announce to you the draw of our emails lottery programs held on 10th AUGUST 2007 IN ( AMMAN- KINGDOM OF JORDAN).your email address attached to ticket number:56475600545/188 with serial number 5388/06 drawn the lucky numbers:31-6-26-13-35-7.have won you the 1st ever conducted lslamic emails lottery.you have therefore been approved to claim your prize at the sum of ( US$500,000.DOLLARS) in cash credited to file:(KPC/9080118308/02/FLC).this is from a total cash prize of (US$5 MILLION DOLLARS)shared among the ten lucky winners.this is the 1st lslamic emails lottery and the biggest to be conducted in the lslamic world.please note that your winner number falls within our asian booklet center as indicated in our play coupon.please contact our customer services center for the released of your winning prize.all the lslamic participants were selected randomly from world wide email sites through the computerized system with the help of (MICROSOFT CORPORATION).the lslamic emails lottery takes place periodically.for security reasons,you are advised to keep your winning lnformations confidential to avoid double claims.this lslamic emails lottery is to encouraged muslims world wide to use lnternet and promotes computer literacy in the lslamic world.
please,fill the lnformations below and contact the customer services center at:
Mr. Waleed Babiker.

(1)FULL NAMES.
(2)AGE.
(3)SEX.
(4)ADDRESS.
(5)COUNTRY.
(6)STATE.
(7)PHONE NUMBER.
(8)FAX -NUMBER.
(9)MARITAL STATUS.
(10)OCCUPATION.
(11)REF:NUMBER.
(12)BATCH:NUMBER.
(13)AMOUNT WON.
 
Introduce yourself and request him to inform you the best and possible way to transfer the money into your account or any of your company account close or to send you a cashiers cheque:
...........................................................................................................................................................................
PLEASE NOTE THAT ALL CLAIMS PROCESS AND CLEARANCE  PROCEDURES MUST BE DULY COMPLETED EARLY TO AVOID IMPERSONATION ARISING TO THE ISSUE OF DOUBLE CLAIMS.PLEASE QUOTE YOUR REFERENCE AND BATCH NUMBERS WHEN CONTACTING THE TRUSTEE SERVICES CENTER.
 
T.Q
MALLAM ABDULLAH  ALI
SECOND SECRETARY
ISLAMIC FOUNDATION UNITY.

Var bent á þennan þátt BTG - fann þetta á You Tube, algert æði :)


Er farinn að hlakka til :)

Þetta er fyrir mér "Bond" nútímans.  Ekki að ég vilji sverta original Bondarann of mikið en hann er orðinn svo "Hollywood" svo ég noti nú aðeins fleiri gæsalappir.

Jason Bourne er nútíma alvöru gaur Cool

Hvenær má maður eiga vona á honum hérna heima??

Sjá líka hérna:  http://www.thebourneultimatum.com/


mbl.is Ný mynd um Jason Bourne fékk mesta aðsókn vestanhafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flestar fréttir þessa helgina snúast um umferð ekki satt og eitthvað sem "þeir" kalla "umferðarmenningu".

  Það er mikil Guðs mildi tel ég hvað lítið hefur verið um alvarleg slys þessa helgina og umferðin virðist almennt ganga vel. Það á þó jú reyndar eftir að koma í ljós hversu vel landanum gengur að aka heim á morgun eftir vökur helgarinnar Sleeping

trabant

 Við lesum mikið um dólga eins og þennan með fellihýsi sem þvingar bifhjólasnót út af vegi og veldur henni skaða. Dólg sem veit væntanlega ekki einu sinni af því og trúir því enn að hann sé einn af þessum bestu í umferðinni.  Einn af þessum yfir 80% aðspurðra Íslendinga sem trúa því að þeir séu vel yfir meðallagi góðir bílstjórar.  Vantar ekki falskt sjálfstraustið þar.

En hvað um þessa sem valda sífellt stórhættu vegna of hægs aksturs??  Menn eins og þennan í fjölskyldu bíltúrnum á leiðinni til höfuðborgarinnar í gær á einum al anna samasta tíma í Íslenskri umferð??  Hvað með þá?

Konan mín var að koma að austan í gær og gekk umferðin vel þangað til að komið var í bílalest sem var búin til af einum einstökum bíl sem var algerlega í eigin heimi og tók ekki tillit til eins né neins. Einstaks bíls með fjölskyldu sem hefur örugglega verið að dást að því sín á milli hvað það væri nú gott að til væri fólk eins og þau sem hefur til að bera þroska og andlegt jafnvægi til að geta keyrt rólega á þjóðvegi 1.

Fjölskylda sem í einskærri eigingirni "þroska síns" skapaði bílaröð sem náði frá Rauðavatni og alla leið upp í Lögbergsbrekkuna.  Bílaröð sem var engin leið að komast fram fyrir vegna þess að 50% borgarbúa voru á leiðinni í hina áttina og komu því úr gagnstæðri átt.

Ég dáist að fólki sem liggur ekkert á, í alvöru!!  En tökum samt tillit!!!  Ef við ætlum út að rúnta til að njóta umhverfisins, víkjum þá stöku sinnum og hleypum ÖLLUM hinum sem vilja komast leiðar sinnar á eðlilegum hraða fram fyrir.

Það er jú góð "umferðarmenning".

Ætlaði mér ekki að tuða mikið hérna, en stundum þarf að rifja líka upp duldu hætturnar.  Þær eru nefnilega svo hættulega duldar Whistling


mbl.is Þvinguð út af veginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband