Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
Drengirnir eru bara ágætir alveg....
22.3.2007 | 23:08
Kannski að mínu mati ekki þeirra besta hingað til, en fellur vel í tíðarandann
Baggalútur sendir frá sér ættjarðarlag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Brilliant hugmynd, nú vantar bara meðalhitastig Hawaii og þá......
22.3.2007 | 22:34
erum við að fara að rúlla inn 5 milljörðum á ári með Eldfjallagarði Landverndar
Kannski ekki nákvæmlega svo einfalt, en það er a.m.k. verið að hugsa út fyrir kassann og sýna hugrekki til að kynna nýjar hugmyndir.
Mér líkar það...
Ómar vill opna eldfjallagarða líkt og á Hawaii | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Til lukku Ómar, vonandi er þetta ekki of seint í grasið gripið......
22.3.2007 | 22:04
En bara til gamans, hvort kemur betur út:
Ó-Margrét eða Ómar-grét?
Er annars þarna með þeim kjarnakona, hún Ósk Vilhjálmsdóttir. Væri gaman að sjá meira fjallað um hana líka.
Ómar formaður og Margrét varaformaður Íslandshreyfingarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þakka Bjarna Harðarsyni fyrir hans hugleiðingar.
Finnst rétt að árétta þó hérna að sáttmáli Framtíðarlandsins um Framtíð Íslands fjallar ekki um að ekki eigi að verða af Álveri á Húsavík eða öðrum stóriðjuframkvæmdum. Sáttmálinn fjallar um að bíða með það og aðrar stóriðjuframkvæmdir þangað til að búið er að skapa alhliða þroskað plan um framtíð og nýtingu náttúrunnar okkar. Ef að í heildarúttekt það þykir góð hugmynd að setja upp Álver á Húsavík þá yrði það væntanlega gert.
Sæi sjálfur ekki mikið því til fyrirstöðu ef þeir gætu sýnt fram á:
A: Að þeir yrðu með útblásturshreinsun sem yrði til þess að útöndun frá framleiðslunni væri hrein
B: Að þeir myndu staðfesta að það yrði gengið frá landinu og ræktað upp aftur þar sem Bátaux námuvinnslan er (skelfilegt að sjá viðskilnaðinn þeirra við stór svæði á t.d. Jamaica).
C: Að orkan til framleiðslunnar kæmi annað hvort frá núverandi Kröfluvirkjun eða að byggð yrði gufuaflsvirkjun til verksins sérstaklega.
D: Að orkan til framleiðslunnar yrði seld á eðlilegu markaðsverði til tekna fyrir alla þjóðina.
Það hlýtur að vera kominn tími á að staldra við og skoða málin í heild áður en við höldum áfram að dúndra inn hér og þar í sveitarfélög innspítingum í formi Álvera eða annarra stórdramatískra framkvæmda, sem bera meira með sér lykt af samviksubiti yfir kvótasnauð og afturför í þeim plássum heldur en þroskuðum ákvörðunum byggðum á rökum.
Fáum hlutlausa fagaðila til að meta og ráðleggja okkur áður en við leyfum pólitíkusum (hvort sem er til hægri eða vinstri) að skipuleggja landið okkar frekar út frá eigin hugmyndum.
Við eigum vissulega stórkostlegar og um margt náttúruvænar auðlindir, en er ekki kominn tími til að hætta að nánast gefa þær til framlegðar fyrir erlenda stóriðju?
Glæsilegt, glæsilegt..... Gangi þér vel Ómar
22.3.2007 | 09:34
Því fleiri grænir því betra segi ég.
Margir óttast að þetta taki bara frá öðrum grænum flokkum, og þá fyrst og fremst VG. Ég spyr bara: "Er það ekki bara allt í góðu"? Aðalmálið er að framboðið gæti náð broti af hinum líka, og sérstaklega á það möguleika á að ná til sín þessum hægri grænu sem hafa ekki fengið sig til að kjósa til vinstri hingað til þrátt fyrir miklar tilfinningar til umhverfis og náttúru.
Gangi þér vel Ómar
Kynna framboð Íslandshreyfingarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
O.M.G. rosalega er ég feginn að vera hættur að reykja....
21.3.2007 | 12:31
Erum að fara þarna fjölskyldan í júní að reyna að þefa uppi rólegheit.
Ég er full feitur eins og vinur minn Sigurður myndi væntanlega orða það og allt of hávaxinn fyrir þessar flugvélar sem virðast að staðaldri vera framleiddar fyrir meðal hæðina 1,52 m. TIlhugsunin um að þurfa að húka í flugvél í 17 klukkutíma er næstum nógu hryllileg til þess að ég rói bara þarna niður eftir sjálfur
En flott hjá Heimsferðum að bjóða fólki aukagistingu í 2 nætur í sárabætur.
Flug til Kanarí 17 tímum á eftir áætlun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Erfitt að sjá hvort var meiri dómgreindarskortur hjá Kristni?
21.3.2007 | 10:27
Það að makka svikráð gegn viðskiptavinum olífélaganna með kollegum sínum hjá hinum félögunum eða að mæta síðan í viðtal í Kastljósi og hafa gjörsamlega ekkert, nákvæmlega ekkert til málanna að leggja??
En svona í allri og fullri alvöru, hver ráðlagði Kristni að koma fram í Kastljósi?? Maðurinn kom alveg skelfilega fyrir sig orði, og ef eitthvað er, er mörgum sinnum sekari fyrir þjóðinni á eftir.
Hann sótti í sig veðrið þegar leið á viðtalið og fannst eins og hann hefði sagt eitthvað af viti. En það var misskilningur byggður á hroka. Mér fannst Sigmar vinur minn m.a.s. ef eitthvað er fara að honum full mjúkum höndum. Hefur örugglega verið erfitt viðtal, að vera með jafn skelfilegan staddan viðmælanda hjá sér sem hafði síðan nákvæmlega ekkert að segja.
Hélt Kristinn að hann næði að bera af sér slyðruorðið með mætingunni?
Dæmi um mismunandi CO2 útblástur frá bílum
20.3.2007 | 23:38
Skemmtileg tilviljun?
20.3.2007 | 22:59
Gaman að þessu, eru á sama tíma inni á forsíðu mbl frétt af því að íslendingar séu næstfrjósamasta þjóð Evrópu og frá frá Borgarstjórn um að það þurfi nauðsynlega að fjölga Reykvíkingum.
Það hlýtur að fara bara ansi vel saman, er það ekki?
Nauðsynlegt að fjölga borgarbúum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Freklega erfitt með núverandi lögum fyrir nýja flokka til að koma sér á framfæri.......
20.3.2007 | 21:51
Eins og nú er þá er það í höndum flokkanna sem þegar eru "á markaði" að stýra því hvernig megi auglýsa sig og hvað það megi kosta eftir því sem ég skil málið. Fjárframlög miða við atkvæðamagn í síðustu kosningum sem gera eðlilega nýjum framboðum ansi erfitt um vik. Þetta yrði væntanlega skilgreint sem "monopoly" í viðskiptalífinu. Sjá allt um málið hér.
Björn Ingi er augljóslega byrjaður með þusi um auglýsingaherferð Framtíðarlandsins að undirbúa jarðveginn fyrir auglýsingaherferð B-listans. Miðað við auglýsingar þeirra fyrir síðustu landskosningar þegar fylgi þeirra var þó vel rúmlega 2x meira en nú mælist þá held ég að þeir hljóti að bæta vel í núna þrátt fyrir breytt lög um fjáröflun við framboð.
Trúir þú því að Framsókn nái að halda andliti í komandi kosningum?
Framkvæmdastjórar stjórnmálaflokkanna funduðu um auglýsingamál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)