Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
Lætur þú blekkjast?
20.3.2007 | 20:20
Það er eiginlega alveg ótrúlega klókt hvernig Alcan og aðilar þeim tengdir eru búnir að ná að setja fókusinn skyndilega alfarið á tekjuhliðina.
Við verðum að halda einbeitningunni í málinu. Tekjurnar eru ekki nema hluti af málinu, aðalmálið er að sjálfsögðu vilt þú kjósa með alveg stórfelldri aukningu á alvarlegri loftmengun á þéttbýlasta svæði landsins? Aukningu á mengun sem er svo mikil að hún mun án vafa hafa varanleg áhrif um a.m.k. allt norðanvert gufuhvolfið og Atlantshafið.
Hvort vil ég anda eða græða??
Segir Hagfræðistofnun vanmeta tekjur Hafnarfjarðar af álveri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
gengu með Ómari niður Laugaveginn og að sjálfsögðu líka alla í fjölskyldunum þeirra og þá sem þau þekkja
Við sem berum framtíð okkar og barnanna okkar fyrir brjósti vonumst að sjálfsögðu til þess að þjóðin standi með okkur. A.m.k. þeir sem eru frjálsir og ekki búnir að binda sig fjárhagslega stóriðjuöflunum.
Jú, þetta eru nefnilega öfl sem við er að eiga. Öfl með ítök um allan heim.
Yfir 1.400 manns hafa undirritað sáttmála um framtíð Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Var að horfa á Ísland í dag þar sem í viðtali Ingibjörg Sólrún sagði að hún væri búin að undirrita sáttmála Framtíðarlandsins um Framtíð Íslands. Skráði mig inn á síðuna þar sem að við sem erum búin að skrá okkur og undirrita getum séð hvort þingmenn séu orðnir grænir og þar er hún er í svarthvítu??
Þetta er mikill leyndardómur. Var hún að segja ósatt eða uppfærist síðan svona hægt??
Mér finnst líka mjög merkilegt að fyrrum umhverfisráðherra er ekki búin að skrifa undir. Ætli þingmönnum XD sé bannað að taka þátt?
Ert þú búin að skrifa undir sáttmála um bjarta framtíð?
19.3.2007 | 15:21
Sá hér á blogginu að Björn Bjarnason er farinn að kvarta yfir framkvæmdinni og efast um áreiðanleika framtaksins. Ég get staðfest að eins og þetta birtist mér þá er þetta mjög faglega gert. Fyrst þurfti ég að fara inn á síðuna og skrifa undir þar, síðan þurfti ég að staðfesta á netfanginu sem ég gaf upp að ég hefði verið að skrifa undir. Það verður að teljast ansi örugglega að þessu staðið.
Skrifum undir og hvetjum ráðamenn til að búa okkur og börnum okkar bjarta framtíð
Ætli sé algengt að forsvarsmenn stórfyrirtækja.....
18.3.2007 | 19:00
......annarsstaðar geti gefið fyrirheit um breytingar sem eiga enn eftir að fara í gegnum þjóðþing??
Er þetta ekki til vitnis um hvað Alcan telur sig hafa sterka stöðu hér á landi?
Sól í Straumi: Fjárhagsleg rök fyrir samþykki stækkunar Alcan brostin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ætli ráðamenn þjóðarinnar hefi einhvern tíma skoðað aðra kosti?
18.3.2007 | 16:06
Það er svo auðvelt að taka bara við utanaðkomandi "lausnum", eins og þegar álverin koma hingað og "bjóðast til að bjarga" okkur frá atvinnuleysi (sem er þó varla mælanlegt á landsvísu). Þessi sömu félög og snúast svo við og hóta að fara ef ekki sé gengið að kröfum þeirra!! Hvernig verður samningastaða Húsavíkur í framtíðinni ef af álvinnslu verður þar miðað við ítökin sem Alcan hefur í Hafnarfirði í dag.
Ég væri t.d. virkilega hrifinn af því að iðnaðarráðherra tæki upp á því að hringja í Google og bjóða þeim raforku á svipuðu verði og álfyrirtækjunum. Google keyrir að mér skilst upp undir 3 milljónir servera í dag, hefur svipaða orkuþörf og sæmilegt álver, mjög góða framlegð og miðað við allt afskaplega mikla stækkunar möguleika.
Hver vill hringja fyrir okkur?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nú er það spurningin, þora leiðtogarnir okkar að taka af skarið?
18.3.2007 | 14:50
Já, nú er að hrökkva eða stökkva kæru ráðamenn. Alveg er ég viss um að þeir sem fyrstir þora af hægri vængnum munu njóta þess verulega í komandi kosningum.
Stór hluti þjóðarinnar bíður spenntur.....
En ein spurning, hvernig stendur á því að þetta framtak var svona hroðalega illa kynnt? Ég er sjálfur félagi í Framtíðarlandinu t.d. og sit í 2 vinnuhópum innan félagsins en samt vissi ég ekki um stund og stað?? Ég heyrði á fundi með náttúruhópi félagsins af því á fimmtudaginn síðasta að þetta stæði til á sunnudeginum.
Af hverju var þetta ekki auglýst með látum??
Framtíðarlandið kynnir sáttmála um framtíð Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vissulega mjög sorglegt mál, en....
18.3.2007 | 14:03
af hverju er alltaf tekið sérstaklega fram í fréttum á Íslandi þegar brotamenn eru erlendir??
Ég man ekki eftir því að hafa séð mikið fjallað um svona með það í huga að brotamanneskjan hafi verið t.d. vestfirsk, austfirsk, norðlensk, sunnlensk, Siglfirðingur, Vestmannaeyingur o.s.frv. Þið sjáið hvert þetta stefnir. Af hverju skiptir svona miklu máli þegar brotamanneskjan er erlend?
Ég bið þig kæra fórnarlamb forláts að þessi vofleigi atburður í þínu lífi, þessi freka árás á sjálfsagt frelsi, verði til þess að ég velti þessu máli upp, ég vona að Guð og forsjón megi hjálpa þér að vinna þig frá þessu. Það er ekkert ekkert sem getur réttlætt þessa árás, og það að maðurinn sé erlendur réttlætir það að sjálfsögðu ekki heldur.
Lýst eftir vitnum vegna nauðgunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ég borða oft á McDonalds, verð ég þá eilífur??
18.3.2007 | 13:16
Fékk senda þennan link af You Tube síðunni. Afar áhugavert á að horfa, vekur hjá mér ugg eiginlega.
Ég er "stoltur" neytandi af skyndibitakynslóðinni, þ.e.a.s. þessari fyrst, sýnist flestir vera hluti af neytendunum í dag. En eru líkur á að líf okkar verði skelfilegt? Jafnvel skelfilegt og eilíft?
Veit svo sem ekki með það, en myndbandið er a.m.k áhugavert.
Finnst þér það ekki?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þetta er á tungumáli fíkla almennt kallað fráhvörf!!!
Læknum er illa við að fjalla um fráhvörf af lyfjum af því að það dregur upp kannski sverta mynd af lyfjanotkun. En fyrir okkur hin þá er gott að vita að svefntruflanir, pirrpingur og almenn vanlíðan eru einmitt lýsandi dæmi fyrir líkamleg fráhvörf og já oft þörf á varanlegri andlegri lausn.
Ég er ekki á móti lyfjagjöf. Vinsamlega ekki skilja mig þannig, alls ekki. Ég þekki persónulega mjög mörg tilfelli þar sem að fólk þarf á lyfjahjálp að halda, en ég þekki að sjálfsögðu líka til margra tilfella þar sem að aðrar lausnir myndu væntanlega hjálpa mikið mun meira og já, jafnvel gefa varanlegan bata.
Tiltekið geðlyf ekki fáanlegt í nokkrar vikur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |