Hvetjum Forseta Lýðveldisins til þess að verja það nú á örlagastundu!

Það hefur gengið í dag á bloggi að virðist sá mikli misskilningur að Ólafur Ragnar Grímsson hafi hafnað fjölmiðlafrumvarpinu. Það er alls ekki rétt, Ólafur Ragnar Grímsson mat það svo á þeim tíma að það væri það stór hluti þjóðarinnar að virtist í mikilli andstöðu við frumvarpið og hann taldi því rétt að vísa því til þjóðaratkvæðagreiðslu. Við svo búið dró þáverandi ríkisstjórn frumvarpið til baka, það var sem sagt ríkisstjórnin þá sem kaus að hætta við eða hafna eigin frumvarpi.

Nú ríður hins vegar á að við hvetjum Ólaf Ragnar Grímsson til að bregðast við á sama máta gagnvart fjárlagafrumvarpinu, því í því felast ekki aðeins tillögur um gríðarlegan samdrátt á marga þá sem minna mega sín, heldur er falið í framvarpinu samþykki á því að ofurselja þjóðina undir skuldir við AGS og stjórn þeirra, eða að minnsta kosti mjög sterk afskipti þeirra af stjórn landsins næstu árin. Þetta eru síðustu forvöð, það eru lágmarsmannréttindi að þjóðin fái sjálf að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta risa stóra málefni.  Sjá nánar hér: http://www.this.is/askorun

Fyrir alla þá sem misstu af viðtali við Göran Pettersson fyrrum ráðherra Svía í gærkvöldi þá mæli ég sterklega með því að fólk hlusti á það: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4456024/2008/12/16/ 

Göran hefur flestum meiri reynslu af því að leiða þjóð út úr slíkri kreppu sem nú er að skella á Íslendingum.

Skoðaðu málið vel sjálf/ur, taktu persónulega afstöðu til þess.

Es. Sem dæmi um arfa slaka fréttmennsku og augljósa hlutdrægni er sérstaklega tekið fram í fréttinni að Hörður Torfason sé meðal þeirra sem standa að baki áskorunni?!?  Hvaða máli skiptir það?


mbl.is Forseti hafni fjárlagafrumvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þetta er hugsanlega bara leiðin til að koma ríkisstjórninni frá! Þetta er bráðsnjöll hugmynd, meira að segja þó hún væri ættuð frá Davíð sjálfum.

Mér er ekki nokkur efi í huga að Davíð er stærsta orsök að okkar séríslensku hremmingum og mér sem fyrrum stuðningsmanni Sjálfstæðisflokksins þætti bara rétt að forsetinn synjaði staðfestingu fjárlaga. Þá væri hægt að fella lögin í þjóðaratvæðagreiðslu og þar með er stjórnin komin með a.m.k. vantraust þjóðarinnar.

Þessari hugmynd má alveg fleyta yfir land og þjóð. Þetta er nefnilega alveg löglega leiðin til að bylta stjórninni. Nokkuð sem manni hefur ekki dottið í hug áður. 

Haukur Nikulásson, 17.12.2008 kl. 20:57

2 identicon

Er karlinn ekki farinn enn?  Titlaðan útskrifaðan hskólaborgara er nú aðeins djúpt í  árina tekið,  en sjálfsagt hefur hann tekið nokkra "kúrsa".  Og DOKTOR  er hann, en það er bara doktorshatturinn á bakvið þá nafnbót.   Sjálfsagt á hann eitthvað gott  karlanginn en það er bara svo djúpt á því hjá honum.  Hann er hrokafullur með afbrigðum.  Hann gekk undir skammstöfun í Svíþjóð H.S.B.  (han som bestemmer)  hann sem öllu ræður.  Hvað hann er að messa hér yfir íslendingum, það finnst mér alveg óþarfi.  Ekki getur hann bent á hversu vel gekk með eldra fólkið, það fékk nú að maðka í rúmum sínum heima eða á öldrunarheimilunum. Nei Göran Persson ætti nú að halda sér heima á búgarðinum og þar í vínkjallaranum.  Ég vona bara að fólk sjái  í gegnum gorgeirinn í honum..   Gaman væri að vita hvað messan kostaði hjá honum.  Mér er sagt að hann sé í sama verðflokki og Clinton og Tony Blair.

J.Þ.A (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 21:11

3 Smámynd: Ómar Ingi

Forsetinn þinn er handhelvíti ónýtur og hefeur alltaf verið.

Ómar Ingi, 17.12.2008 kl. 22:34

4 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Baldvin minn, þú getur verið alveg viss um að Ólafur Ragnar gerir aðeins og eingöngu það sem kemur Ólafi Ragnari til góða. 

Sigríður Jósefsdóttir, 17.12.2008 kl. 22:41

5 Smámynd: Guðmundur Ragnar Guðmundsson

Varðandi:

> sérstaklega tekið fram í fréttinni að Hörður Torfason sé meðal þeirra sem standa að baki áskorunni?!?

Á því virðulega vefsvæði Visir.is er nánar um máli:

> Hörður Torfason er meðal þeirra sem standa að ... vefsíðunni sem hefur verið opnuð.

Baddi minn, þetta er bara alls ekki rétt hjá þér og mbl.is og visir.is - Hörður setti þetta ekki af stað.

Hvers vegna fjölmiðlar eigna honum verkið er áhugaverð pæling .. sérlega bita-stætt um-hux-unar-efni fyrir noj-aða. Jafnvel hluti af Stærri-Fléttu / sam-særis-plott-i ??

Guðmundur Ragnar Guðmundsson, 18.12.2008 kl. 00:28

6 identicon

fyrir þá sem ekki sáu Hrafnaþing í gær þá kom það skýrt fram í málfluttingi Herra Óla þar að hann hefði haft óskaplega gaman af partýinu, notið þess að fá að vera með og þætti það leitt ef gera ætti einhvern af þessu ágæta fólki,,, framtaksömu Íslendingum að blórabögglum eða jafnvel að þetta kappsama fólk sæi sér ekki vært á Íslandi..

ég veit ekki til að Hrafnaþing sé skoðanlegt á netinu... en vá.... var svo lamaður að ég fattaði ekki að taka hann upp...

Að Herra Óli hafni þessu frumvarpi er álíka líklegt og að hann byrji að reykja...

Bjartasta vonin (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 00:58

7 Smámynd: Þór Jóhannesson

Um að gera að fá spillingarforsetann til að neita afglöpum spillingaryfirvalda! Bara nokkuð góð hugmynd sem gæti actually farið að koma einhverju á hreifingu hér á spillingareyjunni!

Þór Jóhannesson, 18.12.2008 kl. 01:46

8 Smámynd: Gunnar Björn Björnsson

Veit ekki hvort ég eigi að skýta eða hlægja núna ..............  Ólafur Ragnar !!!! "framtakssömum Íslendingum"  Ólafur á bara að fá hjálp almennings við að flytja frá bessastöðum :)  það er nóg af dóti sem hann þarf að taka með sér.             Sé ekki hvar hann komi inn sem bjargvættur né eitthvað sem "hlutlaus" myndir þú ekki verja b.....ið  þitt !!!!!!  fylltu sjálfur inn í eyðuna því ég geri það ekki :)  valmöguleikar að neðan.

Gott að vera með barnið í hjarta, bloggið er svo fínt, ruglið og bullið í mér   

Gunnar Björn Björnsson, 18.12.2008 kl. 01:50

9 identicon

Nákvæmlega ,Baldvin, það var ekkert unnið með frumvarpið meira.

Hörður Halldórsson (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 07:11

10 Smámynd: Baldvin Jónsson

Ólafur Ragnar væri ekki að verja neitt varðandi sjálfan sig eða embættisverk, hann væri einungis að sinna lýðræðislegri skyldu sinni. Ég hef trú á að hann vilji ekki láta minnast sín sem forsetans sem skrifaði upp á afsal þjóðarinnar.

Bjartasta vonin: Hrafnaþing er á Vísisvefnum undir vefmiðlar-ÍNN

Ommi: Ólafur Ragnar er ekkert meira forsetinn minn en þinn. Ég kaus ekki til forseta ef ég man rétt, valið var ekki mér að skapi.

Guðmundur Ragnar: Ég nefndi þetta með Hörð Torfa ekki vegna þess að ég vissi neitt um vefinn, ég nefndi þetta sem dæmi um arfaslaka fréttamennsku. Það hefur nákvæmlega ekkert með efni áskorunarinnar að gera hverjir standa að henni, það er meira að segja væntanlega málstað sem þessum sterkara að það séu bara óþekktir aðilar að baki gjörðinni. Þetta er dæmi um hlutdræga blaðamennsku, hvort sem að það átti að vera með eða á móti Herði. 

Annars tek ég augljóslega undir með Þór og Hauki, þetta er bráðsnjöll hugmynd. Þetta eru síðustu forvöð til þess að stöðva afsal sjálfstæðis okkar til peningavalda heimsins.

Baldvin Jónsson, 18.12.2008 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband