Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010
Þetta er afar gott framtak hjá Hönnu Birnu, að vissu leyti beint framhald af vinnu sem R-listinn hóf á sínum tíma þegar að það hóf starf við að koma á hverfaráðum um alla borgina.
Nú er staðan hins vegar þannig að hverfaráðin hafa lítil sem engin völd og eru ákvarðanir þeirra og niðurstöður í besta falli ráðgefandi í nánast öllum tilfellum. Þessu viljum við í Reykjavíkurframboðinu breyta og færa völdin yfir skipulagi hverfanna í ríkari mæli til íbúanna sjálfra. Líklega er besta leiðin til þess að gera hverfaráðin sjálfstæðar einingar fjárhagslega þar sem að einhver hluti útsvars úr tilteknu hverfi rennur beint í þeirra eigin sjóði til ráðstöfunar innan hverfisins.
Það verður að vinna gegn þessari hefð sem virðist vera svo algeng þar sem að grasrótin um alla borgina er orðin langþreytt og meðvirk gagnvart "yfirvaldinu". Hefð þar sem að grasrótin kýs um tiltekna hluti eða hefur ákveðinn vilja og borgaryfirvöld hunsa það algerlega.
Fólkið á að ráða og það oftar en í kjörklefanum á fjögurra ára fresti. Fólkið á að hafa beina leið til virkrar þátttöku í ákvörðunum sem ná yfir þeirra hverfi.
Við erum á fullu að undirbúa framboðið og leitum að fúsum fótum til að starfa með okkur. Bæði sjálfboðaliða sem og fleiri frambjóðendur til að taka þátt. Stefnumálin okkar munu verða í mótun til 8. maí en þá ber okkur að skila þeim af okkur niðurnegldum til kjörstjórnar að mér skilst. Það er því tækifæri núna til þess að koma og starfa með okkur og hafa áhrif á hvaða áherslur og leiðir við förum í tilteknum stefnumálum.
Heimasíðan okkar á að birtast á hverri stundu núna skilst mér, en slóðin þangað er http://www.reykjavikurframbodid.is
Endilega slástu í hópinn með okkur
Sérstakir hverfavefir opnaðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Framhaldsstofnfundur REYKJAVÍKURFRAMBOÐSINS í kvöld klukkan 20:00
27.4.2010 | 13:23
Nýtt framboð stígur nú fram í Reykjavík og mun taka þátt í komandi sveitarstjórnarkosningum, Reykjavíkurframboðið.
Við erum hópur fólks sem að finnst skelfilegt upp á að horfa að einu lausnirnar sem að eigi að bjóða okkur fjölskyldufólki í Reykjavík upp á á komandi kjörtímabili, séu skattahækkanir og mikil skerðing á þjónustu.
Borgin liggur á mikilli auðlind í landi Vatnsmýrar. Auðlind sem hæglega stendur undir því að bætt verði við í velferðarmálin og komið alfarið í veg fyrir skattahækkanir. Vegna mikilla tengsla fjórflokksins við landsbyggðina hafa fulltrúar þeirra í borginni að virðist ekki getu til þess að ganga í það að berjast fyrir hagsmunum borgarbúa af fullum krafti. Við teljum því fulla þörf á framboði sem ætlar að einbeita sér að eingöngu því, að berjast fyrir hagsmunum borgarbúa.
Hver vill ekki sjá bætta þjónustu í velferðarmálunum? Betri úrræði fyrir fólk í neyð? Það er ekki fólki bjóðandi að þurfa að standa í löngum biðröðum úti á götu, frammi fyrir öllum sem sjá vilja, og bíða eftir matargjöfum eða annarri slíkri aðstoð. Nú er það á okkar ábyrgð að stíga fram og standa saman um velferð okkar og barnanna okkar.
Það er opinn kynningarfundur fyrir framboðið klukkan 20:00 annað kvöld á 2. hæðinni í Iðnó.
Ég hvet þig eindregið til þess að mæta!
Reykjavíkurframboð býður fram í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (39)