Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Enn og aftur, til hamingju Ísland, til hamingju þið sem leggið okkur lið....

Ómar tilkynnti í fréttum RÚV um framboð fyrir komandi kosningar.

Hlakkar mikið til að fá að sjá stefnuskrá nýs framboðs, aldrei að vita nema að við týndu hægri grænir finnum okkur nú farveg Wizard


Eitt mikilvægasta verkefni komandi ríkistjórnar í fjármálunum.......

.... finnst mér vera að taka á vaxtabótum og breytingum þar á.  Það er alveg ótrúlegt hvað heyrist þó lítið til fólksins í landinu sem á síðust 2 árum hefur orðið af um 500.000.- krónum á ári, miðað við hjón, vegna skerðingar á vaxtabótum miðað við verðlag.

Þesi mikla hækkun sem hefur orðið á fasteignum undanfarin ár hefur orðið til þess að fullt af fólki er skyndilega skilgreint sem efnað skv. viðmiðunum í vaxtabóta kerfinu og fær því ekki lengur endurgreitt.

Ég þekki persónulega fjölmarga sem að bara einfaldlega misstu 500.000.- tekjur á ári vegna þessa. Þau eru enn með mjög svipuð laun, húsnæðið þarf enn svipað eða jafnvel meira viðhald og vextirnir af lánum með verðtryggingu hafa hækkað verulega á tímabilinu!!

Ættu ekki viðmið vaxtabóta að hafa hækkað verulega líka á tímabilinu??


Athyglisverð upptalning á verkefnalista D lista......

Var að lesa þetta blog hjá ágætum skrifara hérna á blog.is

Þetta er að sjálfsögðu heldur nöturlegur uppdráttur, en ég fór að velta fyrir mér hvort að væri hægt að draga upp svona nöturlegan lista yfir fyrirliggjandi verkefni allra flokka?

Væri gaman að sjá það hérna á blogginu


Sylvía Nótt, ja hérna hér........

Mér fannst virkilega gaman að þessu rugli í fyrra og fram yfir Evróvisjón, en men 'o men.

Var að horfa á einn þátt núna af hreinni forvitni og úfff  -  þetta er ömurlegt.  Skelfilegt að horfa á hana í greinilega undirbúningnum fyrir keppnina í fyrra hreinlega drulla yfir hvern á fætur öðrum með grófum dónaskap. Ekki að undra þó að nánast allir hafi verið búnir að dæma íslensku þjóðina sturlaða á eftir.

Mér fannst hugmyndina að karakternum frábær, en gekk þetta kannski of langt?

Getur verið að Ágúsa Eva sé kannski að týna sér í persónunni?  Er hún kannski bara andsetin?


Mikið hlakkar mig til að sjá Liverpool sigra United á morgun :)

Þurfa virkilega á því að halda og ég líka Whistling

Vinn með svo mörgum United aðdáendum, greyin


mbl.is Benítez: Gott fyrir sjálfstraustið að leggja United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svín skelfdu Victoriu Beckham????

Er í alvöru ekki eitthvað merkilegra að frétta í heimi fræga fólksins?  Er búið að segja nóg um Önnu N. Smith?
mbl.is Grísir skelfdu Viktoríu Beckham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var ekki líka óvenjulega lítið þunglyndi á þjóðinni í febrúar?

Fyrst að það var svona bjart?

Annars er ég voða snjókall og væri nú afskaplega hrifinn af því ef að væri a.m.k. snjór í fjöllum yfir vetrartímann hérna á norðurhjara.  En það virðist bara hlýna og hlýna með hverju árinu???

Skildi Illugi vera farinn að trúa því að loftlagsbreytingar séu staðreynd?


mbl.is Sólskinsstundir í Reykjavík ekki jafn margar í febrúar síðan 1947
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf að upplýsa fólk betur.....

Er ekki bara málið að setja þetta inn í kennsluefni, t.d. í lífsleikni?

Það er alveg stórfurðulegt, en samt virðist vera endalaust hægt að finna fórnalömb á netinu sem eru til í að taka þátt í svona viðskiptum.  Þessi dæmisaga í fréttinni með e-bay er t.d. eitthvað sem er alkunna og e-bay er m.a.s. með tilkynningar bæði á síðunni hjá sér og eins sem þeir senda með tölvupósti á skráða bjóðendur þar sem þeir vara við þessum svikurum.  Eru kannski flestir sem "falla í gryfjuna" bara að leita að góðum díl, hvaðan svo sem hann kemur?  Er þeim kannski sama hvort að varan hafi löglegan uppruna?

Ítreka aftur þann forna sannleika að ef að það hljómar of gott til að vera satt, er það líklega rétt


mbl.is Lögreglan ítrekar aðvaranir sínar vegna gylliboða á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta kannski lausnin í vímuefnameðferðum á klakanum?

Er þetta málið, opna bara umtalað útibú frá Vísindakirkjunni á Íslandi og stofna nýtt meðferðarúrræði?

Það gæti þá leyst þann vanda sem stendur frammi fyrir ríkisstjórninni í dag gagnvart því að þurfa að viðurkenna að SÁÁ þarf meiri peninga til að halda úti sínu frábæra starfi. Heyrði í útvarpsfréttum í dag ræðu Sifjar Friðleifsdóttur þar sem hún talaði um frjárframlög til SÁÁ í samhengi við þróun verðlags??

Eykst neysla og minnkar í takt við þróun verðlags?


mbl.is Travolta segir að Vísindakirkjan hefði getað komið Önnu Nicole til bjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tek öllum fréttum af frekari rannsóknum fagnandi.....

En er samt að mínu mati og flestra óhlutbundinna búið að sýna fram á án nokkurs vafa að ef við tökum okkur ekki verulega á í losun gróðurhúsalofttegunda snarlega þá verði það mögulega of seint.

Breytingarnar eru orðnar það hraðar núna í hitastigshækkunum og breytingar byrjaðar á hegðun sjárvarstrauma. Hvort lagnar okkur að vera fólkið sem getur sagt afkomendunum frá því að við tókum sko ærlega í taumana og breyttum þróuninni til hins betra og sköpuðum ykkur (afkomendunum) framtíð eða fólkið sem var upphafið að ???


mbl.is Umfangsmestu heimskautarannsóknir í hálfa öld hafnar í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband