Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Eiginmaðurinn fyrrverandi tók bókstaflega hálft húsið......

Sjá frétt hér frá fréttatíma RÚV

Þetta gæti nú virkilega komið hreyfingu á verktaka geirann aftur ef þetta verður vinsæl lausn Cool

Lögreglan á staðnum sagðist ekki hafa séð að hann gæti gert nokkuð, maðurinn var jú með það uppáskrifað að hann ætti helminginn af húsinu.

Spurning hvort að þetta væri til aukningar eða samdráttar hjá okkur sem störfum við sölu fasteigna?


Þeim hefði nú verið nær að koma heldur á ......

sporaráðstefnuna í Grensáskirkju um helgina, ha?

En er langt á milli X og Y í Vestmannaeyjum einhversstaðar??

Meina þetta ekki í einhverjum borgar hroka, mér er bara einfaldlega spurn.


mbl.is Þurftu aðstoð við að komast heim vegna ölvunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi verður vonandi veisla fyrir augað........

og vonandi ekki sami viðbjóðurinn og Hr. Gibson bauð manni upp á í Apocalypto, úfff Sick
mbl.is Kvikmynd um Persastríðin fékk mesta aðsókn vestanhafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vúsjade, alveg nýtt hugtak.......

Var á frábærri ráðstefnu um 12 sporastarf í dag og starf trúnaðarmannsins/konunnar með skjólstæðingnum sínum.  Búið að vera eins og 5 daga fundur fyrir mig og mikið búið að hrærast í höfðinu á mér. Alveg frábært að staldra svona við reglulega og endurmeta hlutina.

Heyrði líka nýtt hugtak um helgina, alltaf gaman af því  Cool

Bill C. sagði: "I'm getting a strong Vusjade here"."Vusjade??" spurði ég.  "yes" sagði hann, "I'm getting the strangest feeling I've never ever been here before". 


Mæli eindregið með þessu fyrir alla áhugasama um framfarir......

Fyrir þá sem eru ekki staddir á ráðstefnu í Grensáskirkju um helgina þar sem fer fram 12 spora ráðstefna, þá mæli ég eindregið með sýningunni í Fífunni.  Búinn að sjá lista sýnenda og þetta lofar virkilega góðu þarna hjá þeim.

Framfarir eru jú oft til hins betra er það ekki?


mbl.is Nýjustu græjurnar til sýnis í Fífunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ke pasa???

Vá hvað ég verð að fara að færa mig meira út í viðskipti með fjárhættuspilakassa.

Hvað ætli Háspennu félagarnir hefðu verið lengi að þéna þessar 120.000.000 með hefðbundnum hætti?

Þetta var svo sannarlega að detta í "Gullpottinn" Police

 

Es. Sá síðar að þetta var að sjálfsögðu mjög rangur fréttaflutningur.  Málsbæturnar sem þeir fengu greiddar voru bara um 25.000.000.- Afgangurinn var nú bara greiðsla fyrir húsnæðið þeirra í Mjóddinni sem hlýtur að teljast mjög eðlilegt að bæta þeim.


mbl.is Segir Háspennu fá 120 milljónir í bætur frá borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfilegar fréttir........

mér finnst það afskaplega bagalegt þegar að fyrirmyndir mínar í auðmýkt (eldra og reyndara fólk en ég s.s.) nær ekki að mynda framboð um málefni sín og öryrkja vegna ágreinings um sæti og titla???

Hvað er eiginlega málið?  Er fólk að gleyma meginmálinu fyrir mögulega valdabaráttu áður en að framboði kemur?  Er það ekki svakaleg vantraustyfirlýsing á félagsmenn eldri borgara og öryrkja að framboð splundrist tvisvar sinnum með stuttu millibili í aðdragandanum??

Mér finnst þetta verulega vandræðalegt mál og vona að fyrirmyndir mínar í reynslu og auðmýkt sjái nú að sér. Við þurfum fyrirmyndir


mbl.is Hætt við annað framboð eldri borgara og öryrkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægjulegt að fá betri kosti fyrir námsmenn, en....

þarf ekki að finna einhverja leið til að halda samt því litla jafnvægi sem við höfum í dag?

Þarf að setja fram einhverjar flóknar leikreglur til að þenslan springi ekki af stað aftur eða er 5-9% verðbólga eitthvað sem við þurfum bara að fara að venjast?


mbl.is Kaupþing auglýsir ný íbúðalán á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins fá sláarskot það vægi sem þau eiga skilið.......

Cool

"unnum" leikinn með 2 skotum í slá, ekki slæmt það.....


mbl.is Sigurmark Eiðs Smára ekki nóg fyrir Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta enn eitthvað óljóst?

Finnst þetta enn aðeins loðið, væri gott að fá skýra yfirlýsingu Ómar.  En ég fagna því innilega eins og augljóst er á skrifum mínum hérna að fá fram grænt framboð.

Já, það mun vissulega líka taka til sín frá VG, en hvers virði er það ekki fyrir heildina að fá fram enn meiri áherslur á græna hugsun?  Hvers virði er það ekki að fá fram hugmyndir sem eru ekki eingöngu tengdar við vinstri stefnuna eingöngu?  Flestir sem ég þekki eru frekar til hægri en vinstri skv. okkar skilgreiningum og vilja meira grænt. Það hefur bara vantað fyrir okkur trúverðugleika til að geta kosið til hægri.

Þetta er vonandi lausnin á því....


mbl.is Margrét, Ómar og Jakob Frímann saman í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband