Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
Algengur misskilningur varðandi hækkun á íbúðarhúsnæði.....
1.3.2007 | 20:26
Það virðist ganga mjög víða þessi stórkostlegi misskilningur að trúa því að breyting lánshlutfalls hjá Íbúðalánasjóði í 90% sé orsakavaldur þess að veruleg hækkun varð á fasteignamarkaði frá ágúst 2004 og að hækkun núna aftur setji af stað aðra skriðu hækkana.
Meginorsök hækkunar var innkoma bankanna á markaðinn með virkum hætti í sumarbyrjun 2004 eftir að þeir unnu mál gegn ríkinu og Íbúðalánasjóði fyrir Evrópudómstólnum. Þar var dæmt bönkunum í vil og ríkið krafið til þess að aflétta einokun ríkisins á húsnæðislánum.
Vegna innkomu bankanna á markaðinn neyddist ríkið til að stökkva út í djúpu laugina mun hraðar en hafði verið skipulagt að gera. Þ.e.a.s. til að verja Íbúðalánasjóð gegn útrýmingu við þessa nýju kraftmiklu samkeppni var ekki við það ráðið að koma 90% lánunum á í nokkrum þrepum eins og hafði verið planið heldur varð að keyra það á í einu stóru skrefi vegna þess að bankarnir voru þá þegar farnir að bjóða upp á 80% lán og svo mjög fljótlega 100% lán í mikilli samkeppni sín á milli.
Að sjálfsögðu voru allir lánveitendur gerendur í málinu og allir lánþegar líka. En Íbúðalánasjóður þó innan við 20% af heildinni sem gerir þá nú frekar að fylgjendum en leiðendum sem þeir og voru.
Loksins könnun sem á er byggjandi....
1.3.2007 | 19:21
Það er bara verulega hressandi að lesa um niðurstöður könnunar þar sem var talað við fleiri en 800 manns þar sem þar af taka yfirleitt ekki nema um 400 manns afstöðu. Það eru ókannanir að sjálfsögðu.
Gallup tekur þetta röggsamlega, talar við 4600 manns og 61% eða um 2800 manns taka afstöðu.
Samkvæmt þessu liggur fyrir að ríkistjórnin er fallin. Til hamingju Ísland
![]() |
VG með meira fylgi en Samfylking |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sem betur fer hverfandi hætta á þessu hérna á landi.....
1.3.2007 | 16:24
þar sem það er jú með öllu ólöglegt að flytja inn lyfseðilsskyld lyf skv. íslenskum lögum, með sér erlendis frá og ekki hægt að fá send.
Skammtíma lausnir í þessu sem og flestum öðrum málum eru yfirleitt til vamms og skaða.
![]() |
Varað við megrunarpillum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ætli væri ódýrara að bjóða upp á einkaferðir með skutlum?
1.3.2007 | 14:09
Hef oft velt þessu fyrir mér þar sem ég ek um borgina og horfi inn um gluggana á hverjum tómum strætisvagninum á fætur öðrum. Fyrir utan álagstíma frá 7-8:30 á morgnana og svo aftur seinni partinn þá er varla hræða í vögnunum.
Mér þætti mjög fróðlegt að fá að heyra hver sé raunkostnaðurinn við þjónustuna utan álagstíma og skoða þá hvort að væri ekki bara einfaldlega hægt að lækka þann kostnaðarhlut verulega með breyttri þjónustu?
Nú segja margir að í hverri stórborg verði að vera strætó, en er það svo? Eru ekki aðrar færar leiðir til að halda uppi samgöngum fyrir þá sem kjósa, vilja ekki eða geta ekki átt bíl?
#Netlöggan
![]() |
Lagt til að fargjald í strætó lækki í 100 krónur í mars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fyrir þau ykkar sem þekkið mig, og ykkur hin sem eruð forvitin....
1.3.2007 | 11:22
Myndir af nýjasta fjölskyldumeðlimnum
Við erum að vonum ekkert smá stolt hjúin, og Jónatan (tilvonandi stóri bróðir) alveg gríðarlega spenntur yfir þessu öllu saman og hlakkar til að takast á við verkefnið.
(ég er algerlega viss um að þetta sé stelpa, a.m.k. eru það heimildir netlöggunnar )
Flárátt fagurt fljóð? Flagð undir fögru?
1.3.2007 | 10:47
Já, langaði að deila með ykkur sögu af kunningja mínum sem lenti í heldur óskemmtilegri reynslu um síðustu helgi.
Þessi kunningi minn sem er farinn að nálgast sextugt hratt og örugglega er nýlega skilinn eftir áratuga hjónaband sem er að sjálfsögðu miður en svo vill sem verður. Enn í ljósi nýrra aðstæðna ákvað hann að skella sér út á lífið um síðustu helgi og svona að þreifa á því hvernig hlutirnir hefðu þróast þar.
Til þess að gera langa sögu örlítið styttri, þá verða lyktir þær að honum til mikillar furðu, já stórfurðu, þá tók stórglæsileg kona undir þrítugu hann á löpp og vildi ólm fara með honum heim. Kunningi minn, sem hafði lítinn skilning á þessari skyndilegu kvenhylli, var að vonum ósköp ánægður og spenntur og jánkaði.
Þau fóru saman út fyrir að leita eftir leigubíl, en af einhverjum ástæðum (þrátt fyrir að hafa drukkið afar lítið) þá svífur svona skyndilega á hann að hann er varla með rænu þegar að hann kemur heim og er að greiða fyrir leigubílinn. Hann hélt kannski að það væri lítil reynsla hann af skemmtanalífinu undanfarin ár eða hitabreytingin við að setjast inn í leigubílinn sem væri orsökin þar.
Þegar inn var komið reyndi hann sitt besta til að reyna að hressa upp á sig, það var jú von á einhverju virkilega líflegu, a.m.k. miðað við skilaboðin sem þessi ónefnda stúlka sendi stöðugt.
Það vill hins vegar svo óheppilega til að hann man síðan ekki meira. Hann rankar við sér í sófanum undir morgun og man ekki neitt, en finnst þetta allt farið að virðast mjög skrítið. Við nánari skoðun heima hjá sér þá sér hann hins vegar að einhver (hann á erfitt með að fullyrða að það hafi verið stúlkan þar sem að hann man ekkert) er búinn að nánast hreinsa út hjá honum!!!
Ferðatölvan farin, sjónvarpið farið, hljómtækin, rafmagnsverkfærin, farsíminn o.s.frv. o.s.frv.
Hann hringdi í lögregluna að sjálfsögðu og þar kannaðist viðmælandi hans við svona reynslusögur??!
Það er sem sagt búið að gerast oft að einhver afskaplega myndarleg kona tælir með sér eldri menn heim til þeirra, þeir af einhverjum óþekktum (svefnlyf í glasið þeirra væntanlega) ástæðum verða skyndilega svona afskaplega þreyttir að þeir detta út og muna ekki meir..... og þegar þeir vakna er búið að gera hjá þeim stórhreingerningu!!!
Látum þessa sögu ganga, þetta þarf að fréttast öðrum til varnaðar.
Þegar ég var yngri sagði pabbi minn elskulegur mér einhvern tímann að það væri gott að hafa í huga í lífinu að þegar eitthvað virtist vera of gott (jafnvel allt of gott) til að vera satt, þá væri það yfirleitt reyndin
Berum þetta út, kveðja frá netlöggunni
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)