Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
Rakst á þessa mynd á blogginu hjá honum Eyþóri Arnalds......
15.3.2007 | 20:54
Þú fyrirgefur mér vonandi Eyþór að endurbirta þessa mynd hérna
Flott framtak Eyþór að birta okkur þessa mynd af miklum sandflákum að fjúka út á hafið suður af landinu. Virkilega sýnileg landeyðing þarna á ferðinni. Fólk svarar oft til með einhverjum einföldum yfirlýsingum og hrópar lausn.
Sá m.a.a í athugasemdum hjá Eyþóri athugasemd um að þetta snerist "bara" um það að snúa sér að rótum vandans og rækta upp landið?!?
Er fólk með einhverjar góðar hugmyndir um hvernig ætti að gera það sem fela ekki í sér stöðvun frekari stóriðjuframkvæmda??
Ég segi stöðvum frekari framkvæmdir þangað til að fyrir liggur niðurstaða úr hlutlausri skýrslu unninni af helst erlendri ráðgjafastofu.
Fyrir þá sem ekki skilja raunverulega vandann þá er Landgræðslan búin að standa í stöðugu ræktunarstarfi frá 1907 og samt er mun meiri landeyðing í dag en verið hefur áður.
Getur verið mögulega að stórfelldar framkvæmdir LV á suðurhálendinu hafi áhrif?? Það er jú mest gróðureyðing í kringum þessa tugi uppistöðulóna sem eru á því svæði.
Er ekki vitund þjóðarinnar að vakna fyrir þessum málum?? Er þetta ekki græna kosningavorið mikla?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Alveg bráðsnjöll hugmynd.....
15.3.2007 | 15:08
Einfalt og frábært. Að leyfa börnunum að yfirvinna ótta við hvíta sloppa í gegnum bangsann sinn er náttúrulega bara verulega flott framtak.
Ættum kannski að taka þetta upp víðar??
Gætum t.d. leyft fólki að taka "bangsann" sinn með sér til bankastjórans? Já, eða á fyrsta stefnumót? Væri heimurinn ekki bara svolítið litríkari fullur af bangsafólki??
![]() |
Veikir bangsar fá bót meina sinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gaman að sjá þig hérna Óli :D
15.3.2007 | 14:45
Fékk boð frá einhverjum Ólafi Erni um að verða blogvinir. Kíkti á hann og sá að þetta var gamli góðvinur minn Óli úr skátunum
Ferlega gaman að sjá þig hérna Óli, ef fólk bara vissi hvað var gaman hjá okkur að "skátast" stanslaust.... já, líklega margir "hjartahreinir" skátar að bilta sér í gröfinni - og þó.
Er þetta ekki ungt og leikur sér?
Já, hvað skal segja? Þetta er í raun sorglega lágt hlutfall....
14.3.2007 | 17:40
Ef aðeins 2000 manns leggjast inn árlega og við erum samt í vandræðum með að fjármagna rekstur hvers konar úrræða, já þá er okkur svo sannarlega vandi á höndum.
Almennar upplýsingar bæði hér heima og erlendis frá báðum megin Atlantshafsins vísa til þess að um 15% þjóðarinnar eigi við áfengis og/eða vímuefnavanda að stríða. 15%!?!
15% af 300.000 eru ef mér skjátlast ekki hrapalega 45.000 manns. Eða ef mér skjátlast ekki enn frekar nærri 23 sinnum fleiri en leggjast inn árlega í dag!?! Þarf ekki að bæta kerfið verulega frá því sem nú er?? Þarf ekki að setja miklu mun meira fjármagn til þess en nú er??
Eru til áætlaðar tölur um það opinberlega hvað einn virkur fíkill kostar þjóðfélagið á ári?? Teljum þá með t.d. búðarhnupl, skemmdarverk, innlagnir vegna slysa, innlagnir vegna ofbeldis, tjón vegna ölvunaraksturs, tjón vegna þynnkuaksturs, almennt mun verra heilsufar, o.s.frv. o.s.frv. Það má lengi telja.
Þarf ekki bara að byrja á að hækka áfengi verulega til að standa undir hluta kostnaðarins? Já, veltum líka upp spurningunni með hvort að fíkniefni eins og kanabis og amfetamín ættu að vera til sölu gegn lyfseðlum?? Það myndi a.m.k. skila svarta markaðstekjunum að einhverju eða stóru leyti inn í ríkiskassann og draga stórlega úr neyslutengdum glæpum.
Ég er ekki að segja að ég sé endilega á því að lögleiðing fíkniefna sé lausnin, en hvað er til ráða?
![]() |
Yfir 2000 manns leggjast árlega inn á stofnanir vegna vímuefnafíknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver hefði trúað þessu????
14.3.2007 | 17:30
Eftir allt frábæra kynningarstarf samtakanna Sól í Straumi undanfarnar vikur ha?
Kjósa sjálfir starfsmenn fyrirtækisins, sem hafa að sjálfsögðu engra hagsmuna að gæta, samt MEÐ stækkuninni???
Hver hefði trúað þessu?
![]() |
Félag starfsmanna Alcan ÍSALs mælir með stækkun álversins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Furðulegt, virkilega furðulegt....
14.3.2007 | 17:28
Dæmi:
Nú stígur fram maður og kvartar sáran yfir því að verið sé að hreinlega gefa fólki þekkingu á sama tíma og hann er að selja hana annarsstaðar.
Á þá ríkisstjórnin/yfirvaldið/stjórn fyrirtækisins o.s.frv. að A: loka á alla gjafa þekkingu og hjálpa þar með blessuðum manninum að reka sinn "hagkvæma" rekstur eða B: að trúa á frelsi til að koma þekkingu/skoðunum/upplýsingum á framfæri og kjósa að hunsa kvartanir mannsins algerlega?
Svar óskast......
![]() |
Fræðsluvef BBC lokað vegna kvartana frá framleiðendum fræðsluefnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Já, svona er nú lífsins gæðum sífellt misskipt......
14.3.2007 | 17:15
Ég er alveg frá fyrsta tíma í sjúkraþjálfun, einkaþjálfun, liðsþjálfun og já bara hvaða þjálfun sem er búin að bíða eftir því að fá að heyra þessi yndislegu orð. En já, það er greinilegt að þessir golfspjátrungar fá lúxusmeðferðina, ha??!
Eru það köflóttu buxurnar?
Hvað kostar eiginlega þjálfari sem ráðleggur með að slaka bara á og passa að ofreyna mér ekki?? Þjálfari sem ráðleggur mér að passa virkilega virkilega vel að verða ekki svangur.
Það er jú án vafa verulega óholt að borða á fastandi maga, eða er það ekki?
![]() |
Sjúkraþjálfari ráðlagði Birgi að taka því rólega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Virkilega ánægjulegt þegar menn leita sér aðstoðar fagfólks til að útkljá málin....
13.3.2007 | 23:01
en finnst það nú frekar slappt að senda ekki rannsóknarblaðamann á staðinn til grafast fyrir um hvort að í raun væri búið að þrífa almennilega eða ekki.
Ætli hafi verið leitað til húseigendafélagsins vegna þessa? Já, eða Guðfinnu? Hún er jú að selja þjónustu sem sérfræðingur í fjöleignahúsalögunum
Annars til að leysa málin fyrir ekki of háar fjárhæðir þá eru þarna úti fyrirtæki sem sérhæfa sig í húsfélagsþjónustu. Kannski það myndi bara einfalda málin verulega?
![]() |
Lögregla kölluð út vegna þrifa á sameign |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvernig er best að þýða "white power" yfir á móðurmálið ylhýra?
13.3.2007 | 21:20
Er það kannski hvítt púður??
Þurfum við ekki að taka höndum saman núna og tryggja að öfgahvítir komist ekki til valda hérna heima? Mér finnst það hreinlega þjóðþrifamál.
![]() |
Magnús Þór og Jón Magnússon í fyrstu sætunum í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sérð þú ekki fyrir þér eitthvað mun tæknilegra þegar talað er um 3G?
13.3.2007 | 21:16
Mér finnst alltaf að þetta hljóti að vera eitthvað alveg nýtt og sérstakt. Svo kemur bara í ljós að 3G virðist fyrst og fremst standa fyrir aukna flutningsgetu fyrir tæknina sem er nú þegar til staðar.
Gæti reyndar komið sér verulega vel í netsambandi við umheiminn þar sem núverandi ríkisstjórn virðist ekki hafa minnsta áhuga á að tryggja tæknifyrirtækjum öruggt samband úr landi og halda þeim þannig á heimamarkaði.
Kannski GSM kerfið verði með lausn þar á? Varla, þrátt fyrir hraðar framfarir er flutningsgeta GSM kerfisins enn langt langt undir því sem gervihnattarsamband og fastlínusamband getur boðið upp á.
![]() |
Farsímar af þriðju kynslóð þegar í verslunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |