Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
Er ekki merkilegra að hann dó ekki úr ofkælingu?
16.3.2007 | 23:22
Hvað ætli fari í gegnum hugann á manni á ÁTTA klukkustundum á floti í miðju einskismanns hafi?
Ég var einu sinni í hættu við köfun í svona 30 sekúndur og lífið rann fyrir augum mér þá, hvað ætli það geti gerst oft á átta tímum? Ætli það sé alltaf sama spólan aftur og aftur eða ætli það verði nákvæmara við hverja endurspilun?
Ætli þetta virki eins og gremja? Að maður hreinsi sig og sverti aðra við hverja endurspilun í huganum?
Hélt sér á floti í átta tíma á miklu hákarlahafsvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Er þetta besta tap lagið í American Idol?
16.3.2007 | 22:51
Rakst á þetta skemmtilega myndband inni á You Tube, er þetta líklegt til ósigurs í American Idol?
Hefur varla náð í keppnina, en fínn smellur fyrir netvarp :)
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kemur verulega á óvart að ekki séu fleiri að hugsa um aðra flokka....
16.3.2007 | 22:30
Hefði haldið að fleiri ætluðu sér Ómar & Co?
Framsókn væntanlega nánast horfinn í næstu könnun, vona svo sannarlega að Ómar nái sér yfir 10% til þess að rödd þeirra fái að heyrast almennilega. Þetta sýnir samt vel að umhverfismálin eru ekki fólki efst í huga, a.m.k. sýndi spurning dagsins það í Blaðinu í dag að fólki er efst í huga aðbúnaðar aldraðra og samfélagsmál.
Er ekki samfélagsmál að búa okkur framtíð með grænni hugsun??
Fylgi Sjálfstæðisflokks eykst mikið frá síðustu könnun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Jú, við erum að sjálfsögðu öll sammála því, en....
16.3.2007 | 16:52
Hver er ábyrgð bankanna??
Hvernig vinnum við að mjúkri lendingu? Á sama tíma og bankamenn ræða um harðar lendingar o.s.v. þá eru þeir hjá Landsbankanum að loka á lánveitingar til þeirra sem eru að baslast vegna lánanna sem þeir fengu hjá þeim á "öðrum væntingartímum".
Er ekki ein albesta leiðin til að tryggja mjúka lendingu hagkerfisins að víkja frá hörðum kröfum um arðsemi eigin fjár bankanna og veit litla manninum slaka meðan að jafnvægi er náð??
Ég viðurkenni það fúslega að ég er einn þeirra sem skuldsetti sig of mikið og væntingar mínar hafa augljóslega staðið of hátt á þeim tíma. En hvaða úrræði höfum við meðan að bankinn sem talar út á við um sameiginlega ábyrgð er inn á við aðeins að hugsa um eigin arðsemiskröfur??
Gríðarlega mikilvægt að ná mjúkri lendingu segir bankastjóri Landsbankans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Takk Valgerður, en enn fremur takk Guðrún Margrét....
16.3.2007 | 13:39
Algerlega stórkostlegt framtak Guðrún Margrét. "Móðir" um 7000 barna eftir 20 ára launalaust starf!!!Algerlega frábært.
Ítreka við þig kæri lesandi, ef þú vilt styrkja barn smelltu þá hér og fylltu út formin.
Takk fyrir hjálpina.
Söfnuninni Börn hjálpa börnum 2007" lýkur í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Finnarnir standa greinilega með sínum...
16.3.2007 | 11:05
Það er a.m.k. engin Clinton bragur á þessu.
Ætli það hafi aukið fylgi Matta að Susan þessi lýsti í smáatriðum ástarævintýri þeirra? Er þarna kannski kominn til nýr erótískur stuðningur við Matta kallinn?
Annars merkilegt í þessari frétt að það kemur ekkert fram um fjölskylduhagi Matta kallsins. Ef giftur eða í sambandi þá er þetta að sjálfsögðu leiðindamál, en ef ógiftur hver er þá fréttin??
Hneykslismál auka á vinsældir finnska forsætisráðherrans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hver er staðan á kosningavori?
16.3.2007 | 10:29
Rakst á þessa mjög svo áhugaverðu greiningu Hreins á stöðunni fyrir komandi kosningar. Mjög skemmtileg lesning Hreinn.
Ekki svo mjög lituð greining á stöðunni eins og hún birtist okkur núna.
Það er svo merkilegt að flokkur eins og XD skuli ekki ná að byggja upp trúverðugleika aftur eftir skandala fyrrum formanns í opinberum persónulegum skoðunum á mönnum og málefnum. Maður hefði jú haldið að þeir hefðu reynsluna og kraftinn til þess? En nei, það virðist ekki vera. Geir er virkilega trúverðugur kandídat, en hver sem er yngri en 65 ára er ekki orðinn leiður á Birni??
Algerlega sammála þér með XS, ef flokkurinn fer ekki að venja sig á að koma fram út á við sem heild þá mun fylgið aðeins halda áfram að minnka. XS hefur verið verulega ótrúverðugur undanfarið og m.a.s. þrátt fyrir að flokkurinn hafi lagt fram virkilega flottan pakka fyrir kosningarnar þá minnkar fylgið samt?? Er nokkuð viss um að flokksmenn hafi nú átt fremur von á því að fara yfir 40% en undir 20%.
XV fá mikið fylgi út á trúverðugleika trúi ég, og það þrátt fyrir að fólk sé í flestum málum ósammála þeim, a.m.k. þegar kemur að peningastefnu flokksins.
XF eyði ég nú ekki mörgum orðum á, en ljóst að fylgi þeirra mun að stærstum hluta koma frá landsbyggðinni.
Allar líkur á að framboð aldraðra sundrist aftur fyrir kosningar, er algerlega sannfærður um að málefnin hefðu fengið mun meira fylgi og náð árangri á þingi ef aldraðir og öryrkjar hefðu stillt upp sterkum leiðtogum innan hinna flokkanna.
Eini óvissuþátturinn er að mínu mati XI (eða verður það ekki stafurinn þeirra?). Það á alveg eftir að koma í ljós hvort að Ómari og Co takist að byggja upp fylgi fyrir komandi kosningar. Þ.e.a.s. það er alveg ljóst að margir grænir sem hafa kosið VG hingað til "gegn sannfæringu" sinni ef svo má að orði komast taka væntanlega framboði Ómars fegins hendi, en það er samt ekki sjálfgefið.
Trúverðugleiki virðist algjörlega vera málið fyrir þessar kosningar, það er a.m.k augljóst að þeir flokkar sem hafa gefið út ákveðna stefnu og varið hana frekar en að gera stefnuna bara loðnari í umræðum, þeir flokkar sýna stöðugleika milli kannana.
Þú spyrð þig kannski: "Hefur trúverðugleiki ekki alltaf verið aðalmálið?". Og svarið er jú, en ég held að þetta sinnið séum við bara ekki lengur tilbúin til að trúa "korter í" yfirlýsingum rétt fyrir kosningar. Ég trúi því að þjóðin sé orðin nógu þroskuð til þess að meta alla þætti, fortíð, loforð og framtíð fyrir þessar kosningar.
Það er a.m.k. mín heitasta ósk núna, að við kjósum með hjartanu og rökhyggju í bland. Ekki kjósa bara það sama og síðast af því bara. Taktu þér nú tíma og skoðaðu málið vel.
Kýstu af því bara eða kýstu það sem samviska þín bíður þér miðað við núverandi stöðu??
Vilt þú styrkja barn til sjálfbærni?
15.3.2007 | 23:45
Alveg meiriháttar að sjá hvað er mikið að gerast hjá ABC. Algert kraftaverk, ekkert minna. Það er alveg stórkostlegt að eiga aðgengi að svona samtökum, samtök þar sem 100% framlaga til barna rennur til barna. Rekstur starfsins hefur alla tíð verið utan þess, og að miklu leyti í sjálfboðastarfi.
Smelltu hér ef þú vilt taka þátt og styðja barn.
Ég trúi því að Guð skapi ekki vandamálin og slysin, en það er algerlega öruggt að hann samverkar alla hluti til góðs eins og stórvinur minn Bjarni Karlsson í Laugarneskirkju myndi segja.
Það er bara einfaldlega þannig að eftir allar þessar gríðarlegu hörmungar sem hafa gengið yfir, eins og flóðbylgjan stóra, að við erum almennt tilbúnari til að hugsa um náungann líka. Eigum sem betur fer flest einhverja aura afgangs til að gera eitthvað fyrir einhvern annan.
DSG - þetta er alveg stórkostlegt....
15.3.2007 | 23:26
Alveg meiriháttar að sjá hvað er mikið að gerast hjá ABC. Algert kraftaverk, ekkert minna. Það er alveg stórkostlegt að eiga aðgengi að svona samtökum, samtök þar sem 100% framlaga til barna rennur til barna. Rekstur starfsins hefur alla tíð verið utan þess, og að miklu leyti í sjálfboðastarfi.
Smelltu hér ef þú vilt taka þátt og styðja barn.
Ég trúi því að Guð skapi ekki vandamálin og slysin, en það er algerlega öruggt að hann samverkar alla hluti til góðs eins og stórvinur minn Bjarni Karlsson í Laugarneskirkju myndi segja.
Það er bara einfaldlega þannig að eftir allar þessar gríðarlegu hörmungar sem hafa gengið yfir, eins og flóðbylgjan stóra, að við erum almennt tilbúnari til að hugsa um náungann líka. Eigum sem betur fer flest einhverja aura afgangs til að gera eitthvað fyrir einhvern annan.
Það er jú þannig eins og sagði í þeirri dásamlegu mynd Sódóma Reykjavíkur: "Ég geri ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn annan".
Börn afhenda ABC barnahjálp söfnunarbauka sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menn játa loksins að þeir skilja bara einfaldlega ekki frumvarpið.......
15.3.2007 | 21:19
...eða er það ekki??
Þeir segja það að sjálfsögðu ekki berum orðum, en ég er þess viss að megin ástæða þess að þeir ákváðu að hvíla frekari umræður er sú að það var engin von til þess að næðist skilningur á málinu fyrir kosningar. Það snýst jú allt núna um að matreiða eitthvað nógu fallegt fyrir okkur fenjafólkið fyrir næstu kosningar.
Skilur þú auðlindafrumvarpið?
Umfjöllun um stjórnarskrárfrumvarp hætt í bili | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |