Uppsagnir? Skjaldborg? Þessi mynd segir einfaldlega allt sem segja þarf um viðbrögð ríkisstjórnarinnar!

allt_sem_segja_tarf
mbl.is Öllum starfsmönnum sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Hann Halldór hittir ansi oft í mark með teikningum sínum. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 4.5.2009 kl. 11:37

2 Smámynd: OMG

Huh...Heimir og Þorgeir hafa verið á hausnum síðan 2006, spyrjið bara lánadrottnanna!

OMG, 4.5.2009 kl. 11:57

3 Smámynd: Baldvin Jónsson

OMG: Athugasemdin mín snýst ekki um tiltekið stakt fyrirtæki, heldur almennt aðgerðarleysi ráðamanna

Baldvin Jónsson, 4.5.2009 kl. 12:05

4 Smámynd: OMG

Sæll Baldvin, málið er bara að mörg af þessum fyrirtækjum voru komin í þrot löngu fyrir bankahrun.  Ástæðan er oft á tíðum gengdarlaus græðgi eigenda sem hugsuðu aðeins um sinn hag, ekki viðskiptavinanna eða starfsmanna.

OMG, 4.5.2009 kl. 14:01

5 Smámynd: Hlédís

Góður!!

Hlédís, 4.5.2009 kl. 14:17

6 identicon

OMG, hvar í ósköpunum færðu þær upplýsingar að fyrirtækið hafi verið á hausnum síðan 2006. Vil bara segja þér að það er tómt kjaftæði. Einnig vil ég benda þér á að þetta er fjölskyldufyrirtæki og það er um að gera að passa sig á því sem sagt er á netinu!!!!

Þú skalt ekki koma með svona tilhæfulausar ásakanir hér á veraldarvefnum, ég veit fyrir víst að þetta fyrirtæki var ekki komið í þrot löngu fyrir bankahrun. Svo er það alltaf merki um ákveðinn aumingjaskap að geta ekki skrifað undir nafni.

Ásta Steinunn Ástþórsdóttir

Ásta Steinunn (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 14:36

7 identicon

Ásta: Áður en þú ferð að saka OMG um aumingjaskap skaltu athuga að blogg hennar er allavega með skráðan ábyrgðarmann, þó það gildi svo sem takmarkað þá er tel ég það mun meira að skrifa undir nafni en að kvitta undir athugasemd með einhverju nafni sém ógjörningur er að vita hvort sé rétt eða ekki. Líkt og þú og ég gerum hér.

Kv.Pálmar P. Malmquist

Karma (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 15:48

8 Smámynd: OMG

Jæja kæra Ásta, það var kannski þess vegna sem ég þurfti að setja stéttarfélagið mitt í málið til að innheimta lífeyrissjóð og stéttarfélagsgjöld ásamt ógreiddu orlofi? 

Við skuldum passa okkur Ásta á að fara ekki með fleipur um eitthvað sem við vitum ekkert um...ekki satt?

OMG, 4.5.2009 kl. 16:03

9 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

Ég þekki aðeins til hjá Heimir og Þorgeiri hf var að vinna hjá þeim og GG flutningum staðan var kannski ekki í fullkomnu standi en gjaldþrota voru þeir ekki 2006 enda segir það sig sjálft að þú rekir ekki fyrirtæki og færð verk á vegum hins opinbera ef fyrirtækið er gjaldþrota . Það er ófrávíkjanleg regla að þú þarft standa skil á öllum opinberum gjöldum þess vegna verða menn að gæta orða sina

Jón Rúnar Ipsen, 4.5.2009 kl. 16:15

10 Smámynd: Ómar Ingi

Góður

Ómar Ingi, 4.5.2009 kl. 16:18

11 Smámynd: OMG

Sæll Jón Rúnar, öll gjöld voru alltaf borguð hjá HÞ, allt annað með önnur fyrirtæki í samsteypunni.

 Það er hægt að vera gjaldþrota en ná að halda rekstri áfram í einhvern tíma, það er alveg rétt.

OMG, 4.5.2009 kl. 18:48

12 identicon

Það er kominn tími til að Íslendingar skilji hvað er að gerast hérna á Fróni og afhverju það er að gerast. Sendi hérna grein eftir undirritaðan til upplýsingar  með von um að Borgarahreyfingin sem dæmi lísi því yfir opinberlega að þeir vilji þetta böl í burt langt út í hafsauga.                                                                            

                                                                             Kvótakerfið burt!! 

 Víkurfréttir 5.12 2002 vf.is 

Kvótakerfið er ekki fiskveiðikerfi með þjóðarhagsmuni í fyrirrúmi, heldur hagsmunakerfi fyrir fáa útvalda.Greinarhöfundur vill sjá það afnumið í áföngum.

Þetta er skaðræðis kerfi sem veldur hruni byggða, fækkun íbúa, minni atvinnu og rýrnun á eignum fólks. Fátækt hefur stóraukist í landinu síðan kvótakerfið kom á. Fátæktin veldur ýmsum félagslegum vandamálum sem hafa neikvæð margfeldisáhrif inn í þjóðfélagið. Einstaklingar hætta við framkvæmdir, iðnaðarstörfum fækkar og svo má lengi telja. Við getum hæglega séð afleiðingarnar í þeim byggðarlögum þar sem enginn kvóti er. Þau halda áfram að vera til í orði, en atvinnan er horfin. Ekki er minni vá þar sem kvótinn er, því vissan um hve auðvelt er að breyta byggð í tómar tóftir, aðeins eitt pennastrik, hefur lamandi áhrif á allar framkvæmdir og vonir samfélagsþegnanna fyrir bættu samfélagi. Því eigum við okkur sameiginlega hagsmuni, flest öll: Kvótakerfið burt.

Atvinnubrestur og upplausn
Lítum nú aftur yfir sviðið. Við sölu kvótans úr byggð, tapar fólkið atvinnu sinni í byggðarlaginu en kvótaeigandinn fær oftast einn örugga framtíð. Mismunun þeirra sem áður áttu sameiginlega atvinnu, hagsmuni í sjósókn og veiðirétti sjávarbyggðanna, er algjör. Margfeldisáhrifin eru það víðtæk að þau ná jafnvel til Stór-Reykjavíkursvæðisins sem hefur haft þann starfa m.a. að þjónusta landsbyggðina. Þar eru afleiðingar kvótakerfisins að koma í ljós með stórauknu atvinnuleysi, samdrætti í iðnaði og þjónustu, minnkandi verslun, og aukinni fátækt sem leiðir oft til upplausnar hjá fjölskyldum.

Hornsteinn samfélagsins, heimilið er orðið að skotspóni þessarar þróunar og ungdómurinn ráfar um í hringiðunni í tilfinningalegri áþján.

Þeir sem fengu sjálftökuréttinn með leyfi stjórnvalda á óveiddum fiski í sjónum hafa það í hendi sér hvort fólkið missir vinnu sína og eigur. Lausn fólksins er að leggja á flótta til Stór-Reykjavíkursvæðisins í leit að betra lífsviðurværi og félagslegu öryggi en þar taka því miður biðlistarnir við. Uggvænlegt er hve stór hópur af þessum duglega kjarna vinnandi fólks hefur síðan ákveðið að flytja af landi brott.

Kvótakerfið sem átti að tryggja atvinnu, byggð og uppbyggingu botnfisksstofnana hefur algjörlega brugðist. Kvótaokurleigan hefur leitt til ofuráherslu á veiðum á stórfiski.

Það er grátlegt að sjá, í blindri örvæntingu, leiguliðana og sjómenn þeirra lenda í þeirri ánauð að þurfa að leigja kvóta á allt að 150 kr. pr. kg. og bera nánast ekkert úr býtum og sjá að lokum útgerðirnar fara í þrot. Hins vegar hafa kvótaeigendur sem hafa leigt kvótann frá sér á þessu okurverði verið í góðum málum, þurfa aðeins að fara í bankann með peningana. Sú "atvinnustarfsemi" útheimtir oft einungis einn mann til starfa.

Sóknarstýringarkerfi STRAX!!
Sóknarmark er fiskveiðstjórnunarkerfi með þjóðarhagsmuni í fyrirrúmi. Það er hagsmunakerfi fyrir alla sem búa á Íslandi, um ókomna framtíð.

Greinarhöfundur vill sjá strandveiðiflotann í sóknarkerfi og á veiðarfærastýringu svo fljótt sem verða má. Byrja á sóknarstýringu sem fyrst á smæstu skipunum, þeim sem eru með kyrrstæð veiðarfæri (hér er átt við smábátaflotann og stærri dagróðrabáta). Það er fyrsta aðgerð til að komast út úr kvótabraskskerfinu. Þá fer að færast líf í hafnir og bryggjur landsins.

Vegið að velmegun
Veiðum strandveiðiflotans verður illa stjórnað í kvótakerfi. Kvótinn kallar fram val úr aflanum og verðmæti fara fyrir bí. Brottkastið verður að veruleika. Þessir milljarðar sem þannig fara í súginn, væru betur komnir í lífæð hagkerfisins sem þýddi bætt lífskjör hjá almenningi, minni fátækt, umfang verslana ykist, iðnaðarmenn fengju í nægu að snúast og svo má áfram telja.

Með kvótasetningu á smábátana (einyrkjana), með vitund og vilja stjórnarliða, þá var enn á ný vegið að rétti fólksins í sjávarbyggðum.

Um síðustu áramót voru skattar lækkaðir úr 30% í 18% hjá einkahlutafélögum. Tilgangur þess var meðal annars að fyrirtæki flyttu ekki úr landi með starfsemi sína. Árangurin má glögglega sjá og dugir að nefna sem dæmi Ramma í eigu Byko í Reykjanesbæ. Sú starfsemi er hætt hér og hefur flust erlendis.

Þessi hagræðing stjórnvalda hefur hins vegar ýtt á einyrkjana í smábátaútgerðinni að búa til einkahlutafélög til að borga lægri skatta.
Þetta opnar leið, möguleika kvótaeigenda til að selja kvótann sinn og gefur það verulega skattalækkun af söluhagnaðinum.

Í grein Morgunblaðsins dags. 01.12. 2002, með titlinum “Hrópandi óréttlæti”, fer formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga hörðum orðum um þessa skattalækkun og telur að sveitarfélögin tapi milljarði nú í ár vegna þessara breytinga á lögum.

Er ekki grátbroslegt að sjá fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í þessari stöðu? Hefði ekki verið nær að sjá þennan milljarð fara í velferðarmálin hjá sveitarfélögunum, og inn í heilbrigðismálin en hann er aðeins milljarður af mörgum sem hægt væri að ná fram með víðsýnni aðgerðum og markvissari stjórnun fiskveiða.

Sóknarkerfið er sú leið sem tryggir marga milljarða viðbót inn lífæð þjóðarinnar, veiðar og vinnslu og yrði það að vera fyrsta verk aðila vinnumarkaðarins að stórhækka laun fiskvinnslufólks í samræmi við nágrannalöndin. Þegar atorkan og áhuginn hjá fólkinu snérist að fiskvinnu myndi það stórauka verðmætasköpunina og kæmi öllum til góða. Með því að aðskilja veiðar og vinnslu, eins og er í öðrum löndum, myndi sú aðgerð ein styrkja fiskmarkaði og auðvelda þeim aðilum sem málið varðar að sjá hver hin raunverulega staða væri hjá útgerð og fiskvinnslu, hverju sinni.

Frystitogarar, nótaveiði- og flottrollsflotinn gæti verið áfram í framseljanlegu lokuðu kvótakerfi, sín á milli.

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 20:14

13 identicon

Hélt ég væri að bloga við þessa frétt hér fyrir neðan Baldvin þegar ég setti greinina mína ..Kvótakerfið burt!! en svona verða mistökin þegar maður verður mjög heitur annars skiftir það ekki svo miklu þessar fréttir eru í sama anda.
Baldvin Nielsen Reykjanesbæ
 Innlent | mbl.is | 4.5.2009 | 19:40

100 misstu vinnuna á Suðurnesjum 

,,Hátt í 100 manns fengu uppsagnarbréf á Suðurnesjum um þessi mánaðamót. Að sögn Kristjáns G. Gunnarssonar, formanns Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, voru yfirleitt á bilinu þrjár til fimm uppsagnir hjá hverju fyrirtæki sem sagði fólki upp, en langstærsta uppsögnin var hjá Nesprýði, þar sem fimmtíu var sagt upp. Tólf fyrirtæki sögðu upp starfsfólki á Suðurnesjum um þessi mánaðamót.

„Uppsagnarfrestur þessa fólks er minnst einn mánuður og upp í þrjá mánuði. En í þessum hópi eru örfáir sem eru yfir sextugt og geta þá fengið lengri uppsagnarfrest. Þeir eru samt teljandi á fingrum annarrar handar,“ segir Kristján.

Hann kveður mikinn hægagang og tilhneigingu til frestunar í allri starfsemi og framkvæmdum á Suðurnesjum. „Við horfum mjög til þess að álverið komist á fulla ferð sem fyrst, en það eru alltaf einhverjar tafir á því. Það mun breyta mjög miklu.“ Aðspurður segir hann fátt annað á sjóndeildarhringnum sem gæti orðið til þess að minnka atvinnuleysi í bráð.

 

Kristján Gunnarsson Guðmundur Rúnar Guðmundsson

„Við höfum verið að horfa á þróunina og vorum orðin bjartsýn á að botninum væri nú náð. Sérstaklega í þessum verktakageira. En svo kemur þetta högg,“ segir Kristján. Verkefnastaðan sé einfaldlega orðin mjög dræm hjá verktökum.,,

B.N. (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 21:16

14 Smámynd: Baldvin Jónsson

Sæll nafni, Borgarahreyfingin hefur líst því yfir að við viljum að þjóðin fái að kjósa um kvótakerfið.

Baldvin Jónsson, 5.5.2009 kl. 02:34

15 identicon

Þjóðin má engan tíma missa.  Borgarahreyfingin verður að axla ábyrgð eins og hún er kosin til og það strax. Borgarahreyfingin þarf ekki að óttast  í þessu máli þar sem þjóðin hefur sagt í öllum könnunum til þessa með miklum meirihluta þetta 70 til 90% að hún vilji þetta böl sem kvótabraskkerfið er burt!!

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 08:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband