Leikriti Samfylkingarinnar og VG um persónukjör fer nú senn að ljúka - takk fyrir "skemmtunina"

Þetta er ótrúlega furðulegt mál allt saman. Samfylkingin hefur nú reyndar ítrekað tekið upp mál grasrótar Samfylkingarinnar svona bara rétt til að friða fólk eins og Dofra Hermannsson og umhverfishópinn, en þetta mál gengur enn lengra.

Í þessu máli pikka Samfylkingin og Vinstri Grænir upp mál sem brennur á fólki um allt, mál málanna gegn flokksræðinu á Íslandi sem þau eðlilega vilja ekki í raun minnka, þrátt fyrir yfirlýsingar um annað.

Það hefur opinberlega einn einasti maður gefið út yfirlýsingu um að þurfi aukinn meirihluta þingmanna til að frumvarpið fái samþykki og það er Sturla Böðvarsson!

Algert áhugaleysi Samfylkingar og Vinstri Grænna á því að fá úr því skorið hvort að það sé skilningur lögfróðra manna, sem hafa ekki persónulegra hagsmuna að gæta í málinu eins og Sturla og félagar, er ekki hægt að túlka á annan máta en að í raun sé enginn áhugi á þeim bæjunum heldur á því að þetta mál nái í gegn.

Það er fínt að "þykjast" vilja lýðræði - hvenær fáum við að sjá það á borði en ekki bara í orði?

X við O er einfaldlega réttlætismál.  http://xo.is


mbl.is Persónukjör ekki lögfest nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Af hverju heldurðu þig ekki bara við XD Baldvin ?

hilmar jónsson, 24.3.2009 kl. 21:43

2 Smámynd: Baldvin Jónsson

Hilmar, hvernig bætir þessi staða stöðu Sjálfstæðisflokksins?

Ágúst, vilji grasrótarinnar er sterkur bæði innan Samfylkingar og VG. Vandinn er að það skilar sér ekki inn í þingflokkinn. Að vera eða vera ekki pólitíkus - það er spurning. Ég er eins og ég hef áður sagt væntanlega sá eini í hópi Borgarahreyfingarinnar sem hef lengi haft áhuga á starfi á sviði stjórnmála, ég neita því hins vegar alfarið að ég sé "eins" og hinir eins og þú gefur í skyn hér að ofan. Það að gagnrýna alla vafasama hegðun jafnt, þvert á flokka, er dæmi um það að vera sjálfum sér samkvæmur og ekki eins og hinir. "Hinir" passa sig alltaf að styggja ekki þá sem þeim hugnast að starfa með. Fyrir mér snýst málið ekki um það, nú er kominn tími á að taka á ÖLLU bullinu og ALLRI spillingunni. Það er ekki bundið við aðeins einn eða tvo flokka af fórum stærstu.

Baldvin Jónsson, 24.3.2009 kl. 22:04

3 Smámynd: Egill Óskarsson

"Það hefur opinberlega einn einasti maður gefið út yfirlýsingu um að þurfi aukinn meirihluta þingmanna til að frumvarpið fái samþykki og það er Sturla Böðvarsson!

 Algert áhugaleysi Samfylkingar og Vinstri Grænna á því að fá úr því skorið hvort að það sé skilningur lögfróðra manna, sem hafa ekki persónulegra hagsmuna að gæta í málinu eins og Sturla og félagar, er ekki hægt að túlka á annan máta en að í raun sé enginn áhugi á þeim bæjunum heldur á því að þetta mál nái í gegn."

Þetta er einfaldlega bara ekki rétt hjá þér. Í fréttum RÚV vísaði Jóhanna til úrskurðar yfirlögfræðings Alþingis sem var samhljóða þessari skoðun Sturlu Böðvarssonar. 

Egill Óskarsson, 24.3.2009 kl. 23:29

4 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Aðaleinkenni pólitíkusa er að reyna stöðugt að koma höggi á andstæðinganameð það fyrir augum að upphefja sjálfa sig. Ég hélt að Borgarhreyfingin ætlaði að halda sig frá slíku og halda sig við almenna gagnrýni á það sem miður er og einbeita  að því að skýra stefnumál sín. Þessi grein er svona venjuleg pólitísk skæru grein sem er ætlað að gera lítið úr einu með það fyrir augum að upphefja annað. Ekki góð byrjun finnst mér.

Svanur Gísli Þorkelsson, 24.3.2009 kl. 23:35

5 Smámynd: Baldvin Jónsson

Gott að heyra Egill að þau hafi fengið fleiri álit, var ekki búinn að sjá þá frétt á RÚV.

Svanur Gísli, það er hægt að túlka alla hluti eins og hver og einn vill. Hvar upphef ég sjálfan mig í þessum pistli? Það er nauðsynlegt og réttlátt að benda á alla þá galla og misbresti sem við teljum vera á kerfinu, hvar sem þeir leynast.

Þar skildi engin undanskilin, hvorki ég eða aðrir.

Framtíð landsins okkar og barnanna er ekki eins og íþróttakappleikur þar sem að maður heldur með "sínu liði" hvað sem á dynur. Nú á bara að vera eitt lið á vellinum að vinna saman að því að skapa hér framtíð. Til þess að það lið geti unnið skaplega saman þarf að uppræta trúnaðarbresti og spillingu í öllum skúmaskotum.

Baldvin Jónsson, 25.3.2009 kl. 00:50

6 identicon

Fjórflokkaleikrit heitir þetta víst á mínu tungumáli.

Ég tek undir með Ágústi að Borgarahreyfingin og aðrir sem vilja vel  fyrir þjóðina verða að passa sig á að setja ekki stefnunna eingöngu á vinstri vænginn til þess eins að ná í atkvæðin þeim megin. 

Mér finnst það alltaf grunnsamlegt  þegar það gerist því það hafa allt of mörg framboð í síðustu kosningum leikið þann leik að þykkjast að vera félagshyggjuframboð til að styrkja Sjálfstæðisflokkinn sem dæmi Nýtt Afl sem sett var á koppinn kosningarárið 2003 Það framboð var sett  af stað eins og tundurskeyti sem átti að eyða þeim jákvæðu straumum sem þá stjórnuðu för Frjálslynda flokksins á þeim tíma.

Frjálslyndi flokkurinn er í dag kominn í það hlutverk að hjálpa Sjálfstæðisflokknum því hægri menn sem vilja þjóðinni vel í raun munu ekki kjósa Frjálslynda flokkinn í næstu kosningum því þeir hafa mist trúna á  flokknum.

Það er alveg með ólíkindum að umræðan um þann bölvald sem kvótakerfið hefur verið og er þjóðinni og verður að öllu óbreyttu skulli ekki upp á pallborðið hjá  neinum framboðanna sem eitt af stóu málunum hvorki hjá þeim gömlu eða nýju vitandi það eftir kerfishrunið hér á landi að kvótakerfið er rót alls ills sem yfir okkur dynur í Hruninu mikla. Hversu djúpt sekkur skútan verður hægt að ná henni á flot ef kvótakerfið fær að lifa vegna skulda sinna sem skattgreiðendur eiga að borga í framtíðinni?

Nei segi ég því Íslenska þjóðin sem er veiðisamfélag getur ekki þróast í rétta átt sem sjálfstæð þjóð með slíkt braskkerfi sem undirstöðu hins nýja hagkerfis sem talað er um að reisa því það gamla hrundi yfir okkur með þetta kerfi sem undirstöðu í þeirri svikamyllu sem vakið hefur heimsathygli.

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 01:06

7 Smámynd: Baldvin Jónsson

Takk fyrir innlitið nafni. Það er alveg ljóst að Borgarahreyfingin er ekki hægri eða vinstri afl. Við erum breytinga afl og leggjum upp í ferðina með alveg skýr markmið. Markmið sem snúa að því að skapa börnunum okkar framtíð og hreinsa út úr spilltu kerfi. Markmið um að bankahrunið skuli rannsaka sem sakamál.

Við trúum því að hvort sem er vinstri, hægri eða jafnaðarfólk geti sameinast okkur um að þetta eru lang mikilvægustu málin akkúrat núna.

Baldvin Jónsson, 25.3.2009 kl. 01:15

8 identicon

Sæll félagi.

Ég er sammála þér í því að það þurfi að rannsaka þetta ofan í kjölinn alla svikamylluna en það  mun taka mörg ár að fá botn í það ef réttlætið á að verða fullnægt. Þar sem neyðarástand er hjá okkur núna vegna þessara óhæfuverka hina fáu útvöldu verðum við að búa til nýtt og heilbrigt hagkerfi fljót sem verða má til að sú þróun geti hafist straxs verður að afnema kvótabrakskerfið í þeirri mynd eins og það er  í dag. Það er stærsta málið í dag ef á að koma hagkerfinu af stað jákvætt þannig að það fari að vinna fyrir fyrir fólkiið. Ég vil sjá að það sé verið að stilla hagkerfið þannig af að heiðalegir borgarar hér á Fróni smáir sem háir fái það á tilfinningunna að hér verði gott að búa í fjárhagslegu öryggi um ókomin ár .Kvótakerfið burt!!

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 01:46

9 Smámynd: Héðinn Björnsson

Það á að setja þetta til atkvæða á þingi, hvort sem það kemst í gegn eða ekki á það skilið að fá afgreiðslu. Þjóðin á skilið að fá að vita hverjir standa í vegi fyrir þessu frumvarpi og hverjir styðja það. Þetta er nú ekki byltingarkenndari krafa en það!

Héðinn Björnsson, 25.3.2009 kl. 17:50

10 Smámynd: Baldvin Jónsson

Nákvæmlega Héðinn, nákvæmlega.

Baldvin, Borgarahreyfingin vill að þjóðin fái að kjósa um kvótakerfið eins og önnur slík stórmál.

Baldvin Jónsson, 25.3.2009 kl. 19:37

11 identicon

Sæll nafni aftur

Sendi hérna smá eftir mig til upplýsinga um ágæti kvótabraskkerfisins                       

                       Er nú borð fyrir báru að hefja útgerð? 

                    Grein sem birtist í Víkurféttum 24.10.2003

Í þar síðustu viku var blaðaviðtal í Víkurfréttum við formann Útvegsmannafélags Suðurnesja, Þorstein Erlingsson, bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Höfundur fylltist bjartsýni eftir lestur viðtalsins því nú mátti ætla að ljós væri í myrkrinu til að hefja útgerð á vitrænum grunni.

Eftir að hafa skundað á milli skipamiðlara sem bæði buðu báta með kvóta eða án kom í ljós við nánari skoðun að allt sat við það sama og verið hefur síðustu árin. Báturinn klár ef veðsetningar á eigur kaupanda væru nægilega tryggar og uppáskriftir ábyrgðaraðila fyrir því sem upp á vantaði. Þegar farið var ofan í saumana á því sem sölumaðurinn bauð og spurt hver væri arðsemi fjárfestinganna fyrir umstangið við sjóinn og með hliðsjón af skuldsetningunni, varð minna um svör. Vegna þessa óskar höfundur eftir raunhæfri rekstraáætlun hefðbundins vertíðarbáts (dagróðrabáts) sem hægt væri að styðjast við svo ungir menn jafnt og aðrir kaupendur gætu séð hvort hægt væri að hefja sjálfbæra útgerð í þessu margrómaða kvótakerfi.

Línuívilnun eða peningaívilnun?
Línuívilnun er hugsuð út á líkan hátt og línutvöföldunin var hér áður, þ.e.a.s. útgerðir fengu uppbót á úthlutaðan veiddan afla á línu og í því sambandi oft talað um tonn á móti tonni. Línutvöföldunin gaf líka af sér árvisst uppgrip í landi og ekki síst fyrir beitningarmenn. En svo fer oft fyrir góðum hugmyndum að þær eiga það til hverfa ofan í svelg skyndigróðahyggju og verða að engu. Og áður en nokkur uggði að sér var línutvöföldunin komin á boðstólana sem ný veisluhöld fyrir kvótagreifana. Nú óttast stórútgerðarmenn að línuívilnunin til smábátaútgerðanna verði til þess að smábátaútgerðarmenn fái að búa sér til reynslu innan þess kerfis sem síðar muni hljóta sömu örlög og línutvöföldunin forðum daga. Margur heldur mig sig. Ríkisstjórnin er tvístígandi í málinu að efna þetta kosningaloforð.

Hvað er að í íslenskum sjávarútvegi?
Íslenski fiskiskipaflotinn er mjög stór og afkastamikill í dag. Því er skiljanlegt upp að ákveðnu marki að skuldir útgerða séu verulegar, en hvað varð um þá hagræðingu og innstreymi sem kvótakerfið átti að gefa af sér? Gróðahyggjan á sér nefnilega margar systur. Þessar miklu umframskuldir eru tilkomnar vegna fjármögnunar kvótabraskkerfisins að stórum hluta og til að greiða fyrri eigendum út í hönd þau ímynduðu verðmæti sem þeim var úthlutað vegna veiðireynslu sinnar við fiskveiðar 3 síðustu árin á undan kvótakerfinu.

Og oftast voru það stórútgerðirnar sem keyptu þessa ímynd, kvótann og sitja nú eftir með skuldirnar á bakinu. Talið er að einstaklingar og einkahlutafélög tengd þeim séu búin að selja sig út úr greininni fyrir allt að 50 þúsund milljónir. Skipastóllinn hefur aldrei verið stærri og óumhverfisvænni vegna aukinnar notkunar á togveiðarfærum og eyða því meiri olíu á per kg. af fiski en áður þegar strandveiðiflotinn var við líði. Fiskistofnarnir hafa ekki áður verið í svo langvarandi lægð eins og nú og sjá má dæmi um í skýrslum Hafrannsóknarstofnunar. Vaknar því sú spurning hvort skipin séu orðin of stór og afkastamikil og raski lífríkinu svo verulega að náttúran hafi ekki undan að endurnýja sig eða hafi ekki getu til þess vegna eyðileggingarinnar á hafsbotninum sem botnvörpurnar valda?

Um eignarhaldsrétt útgerðarfélaga á kvóta.

Lög nr. 38 1990 1. gr. “Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.”

Staðreyndin er að kvóta er úthlutað af breytilegum forsendum frá ári til árs til útgerðaraðila. Úthlutun fiskikvóta hefur alltaf verið í höndum sjávarútvegsráðherra, með hliðsjón af ráðleggingum Hafrannsóknarstofnunar, og hefur aldrei leikið vafi á um rétt hans til þeirra aðgerða. Umræða um eignarhald er því út úr kortinu því stöðug afskipti samfélagsins af þessum verðmætum er til staðar. Því getur hefðarréttur aldrei myndast um kvóta.

Í ofangreindu viðtali segir Þorsteinn: “Við útgerðarmenn höfum í gegnum árin tekið á okkur skerðingu til að byggja upp fiskistofnana og njóta þess. Það er búið að taka af okkur útgerðarmönnum 26% af þorskkvótanum frá því að kvótakerfið var fyrst sett á.”

Maður sem hefur fengið úthlutað þeirri sérstöðu að afla 10 tonna fyrir samfélagið og fær úthlutað eitt árið 9 tonnum hefur ekki orðið fyrir skerðingu á verðmætum heldur tekist á við þann áhættuhluta sem alltaf hefur fylgt sjávarútvegi t.d. minnkandi fiskgengd við landið. Þetta er jafn innbyggt í sjávarútveginn og andrúmsloftið er umhverfi okkar. Sá sami hefur ekki heldur hlotnast happdrættisvinningur þegar árið þar á eftir færir honum til verks að afla 11 tonna í formi kvóta fyrir samfélagið. Tilkall til þessa viðauka er ekkert frekar hans en samfélagsins því yfirráðin yfir auðlindinni kemur frá þeim sem úthlutar í nafni þjóðarinnar og er kosinn til þess af almenningi.
Ég held við höfum eytt alltof miklum krafti og tíma í baráttuna um það hver á að veiða og hver telji sig kvótann eiga. Eins og segir hér að ofan í 1 grein laga um stjórn fiskveiða er kvótinn eign þjóðarinnar og þannig hefur það verið síðan þetta kerfi kom á og svo skal vera um auðlind okkar alla tíð.

Byggðarsjónarmið og almannaheill.

Það er ekki vel ígrundað hjá hæstvirtum sjávarútvegsráðherra sem segir að það komi vel til greina að heimamenn kaupi útgerðirnar aftur, vegna þess að þegar kvótakerfið var sett á fengu útgerðirnar þennan kvóta til afnota fyrir óverulegt gjald en ekki til eignar. Þess vegna er ekki hægt að selja það sem menn hafa aldrei eignast þ.e.a.s. veiðiheimildirnar. Þau kaup hins vegar manna á milli í gegnum tíðina á þessum ímyndum verðmæta í kvótalíkingu, varðar okkur samfélaginu ekkert um. Þeir gerðu þessi viðskipti sín á milli, án samráðs við þjóðfélagið, gegn vilja settra laga og því alfarið á þeirra ábyrgð.

Þar sem við erum veiðisamfélag er byggðastefna í raun sú leið til að viðhalda og auka velferð okkar hér á landi. Til þess að mögulegt sé að fylgja því eftir verða íbúar byggðarlaganna að njóta þeirra auðlinda sem þeim standa næst. Ekki hvað síst á ég hér við um byggðarlögin við sjávarsíðuna.
Það ljós í myrkrinu sem ég sé hvað skærast fyrir samfélagið og hinu dreifðu byggðir er að byrja á sóknardagakerfi með veiðarfærastýringu sem allra fyrst á smæstu skipunum, þeim sem eru með kyrrstæð veiðarfæri (hér er átt við smábátaflotann og stærri dagróðrabáta). Úthlutaðir sóknardagar bátanna verða að vera með öllu óseljanlegir. Ég tel þetta vera fyrstu aðgerð til að komast út úr kvótabraskkerfinu. Þá færi strax að færast líf í hafnir og bryggjur landsins.

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ.

 P.S. Veiðisamfélag eins og Ísland án nýliðunar í sjávarútvegi á heilbrigðum grunni deyr.

B.N. (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband