Merkilegt....

Nýlega var sagt frá því í fréttum að Straumur-Burðarás hefði tapað öðrum íslenskum bönkum meira á falli Lehmann Brothers, og á íslenskri stærðargráðu hefði maður haldið að Straumur-Burðarás væri því hætt við falli eftir þetta stórtap.

Hvernig stendur þá á því núna, á sama tíma og Glitnir riðar, getur Straumur-Burðarás lagt fram 380 milljónir Evra Landsbankanum til aðstoðar??

Eru íslenskir fjármálasnillingar enn og aftur að sýna okkur einhverja galdra eða er þetta raunveruleiki?


mbl.is Straumur eignast hluta Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Johnny Bravo

Þetta er spurning um kredit, skuldatryggingarálag erlendis á fjármálamörkuðum.

Þar var Glitnir komin í 1400punkta. eða 14% ofaná vextina sem eru að jafnaði 4-6% þannig að þeir gátu als ekki fengið lánsfé. Nema ef til eigendaskipta kæmi, núna hefur Glitnir einhverja möguleika á því að halda áfram en ríkið fær verri skuldatryggingarálag í þokkabót, þarf ekki að draga það af meintum 100ma. hagnaði.

Skemmtileg pæling hvort Landsbankinn sé að undirbúa sig, núna eiga þeir betra eiginfjárhlutfall, geta styrkt það með hlutafjárútboði jafnvel. Eða hvort Straumur sé að gera sig tilbúinn til að taka Glitni, eða menn séu bara að gera sig tilbúna fyrir næstu 6mánuði.

Johnny Bravo, 1.10.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Ómar Ingi

Landsbankinn á í dag Glitnir , það verður tilkynnt á næsta ári.

Ómar Ingi, 1.10.2008 kl. 18:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband