Frjálslyndir innan sem utan flokksins boðnir hjartanlega velkomnir í Borgarahreyfinguna :)
27.4.2009 | 23:43
Við erum bara rétt að byrja og mikil vinna framundan við að skipuleggja grunnstarf hreyfingarinnar, málefnahópa, frumvarpsvinnu og svo framvegis.
Þetta verður skemmtilegt og spennandi starf þar sem höfuðáherslan er á það að gera hlutina öðruvísi en hingað til hefur tíðkast. Við viljum breyta pólitíska litrófinu, breyta aðferðarfræðinni sem hingað til hefur viðgengist.
Vinnum saman eftir algeru gegnsæi og lýðræði. Tökum höndum saman um að útiloka "shortcu'in" - lýðræðið tekur stundum meiri tíma en það er á endanum engu að síður réttlátara kerfi.
Miðstjórn Frjálslynda flokksins kölluð saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Gerandi
Lýðræðis- og umhverfissinni og trúi því enn að jafnvægi náist helst í samfélagi með frjálsum markaði, að því tilskyldu að hið opinbera sinni skyldu sinni við eftirlit. Trúi á að hægt sé að nýta með sjálfbærni náttúruna okkar í meðalhófi, okkur og kynslóðum framtíðarinnar til hagsældar. Áhugamaður um lífið og hugmyndir mannanna um lífið.
Var varaþingmaður Birgittu Jónsdóttur í Reykjavík Suður fyrir Hreyfinguna. Sat í stjórn Borgarahreyfingarinnar og tók þátt í að koma á fót framboði um nýjar hugmyndir. Er félagi þar enn. Starfa með Hreyfingunni sem að nú hefur verið stofnuð og á mér þann draum að allir þeir grasrótarhópar sem eiga sameiginlega hagsmuni í starfi að lýðræðisumbótum, geti sameinast um þau. Ekki spyrja í hvaða liði einhver er - spyrðu frekar hvað hægt sé að gera til þess að koma sameiginlegum hagsmunum okkar allra í gegn. Breytum kerfinu á sama tíma og við breytum okkar eigin hugsunarhætti. Þessi liðahugmynd er okkur öllum afar takmarkandi.
Sendu mér línu, tölvupóstur: baddiblue@gmail.com
Hér verður skrafað bæði um alvöru málsins og lagt fram eitthvað til skemmtunar, a.m.k. mér til skemmtunar :)
21 dagur til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 358603
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Des. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 |
Eldri færslur
2013
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Rannsóknarskýrslan
- Hreyfingin
- Birgitta Jónsdóttir
- Þór Saari
- Þórður Björn Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Baldvin Björgvinsson
- Daði Ingólfsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lilja Skaftadóttir
- Jón Þór Ólafsson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Egill Jóhannsson
- Margrét Sigurðardóttir
- Valgeir Skagfjörð
- Vésteinn Gauti Hauksson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Einhver Ágúst
- Andrés Jónsson
- Arinbjörn Kúld
- Sigurður Hrellir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Bjarni Harðarson
- Marinó G. Njálsson
- Hallur Magnússon
- Fannar frá Rifi
- Sævar Finnbogason
- Ágúst Guðbjartsson
- Axel Jóhann Axelsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Björn Heiðdal
- Bragi Sigurðsson
- Brynjólfur Rafn Fjeldsted
- Báran
- Börkur Hrólfsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- Dofri Hermannsson
- Egill Jón Kristjánsson
- Einar Ben
- Einar Ben
- Einar Sigvaldason
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elín Sigríður Grétarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fjarki
- Freyr Hólm Ketilsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frosti Sigurjónsson
- Gaukur Úlfarsson
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Guðmundur Gunnarsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Hjálmar
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Heidi Strand
- Helga Dóra
- Himmalingur
- Hinrik Fjeldsted
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Baldursson
- Hulda Lind Eyjólfsdóttir
- Huldukonan
- Héðinn Björnsson
- Hörður B Hjartarson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhann Þorsteinsson
- Johann Trast Palmason
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Júlíus Björnsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kokkurinn Ógurlegi
- Konráð Ragnarsson
- Kári Sölmundarson
- LiljaLoga
- Linda
- Magnús Kristjánsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Morgunblaðið
- Mörður Ingólfsson
- Neddi
- Pétur Örn Guðmundsson
- Púkinn
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Guðnadóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Sigurlaug B. Gröndal
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Sturluson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Steinn Hafliðason
- Sunna Dóra Möller
- Svanur Heiðar Hauksson
- Sveinbjörn Geirsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Tanni Ofurbloggari
- Tilkynning
- Torfi Frans Ólafsson
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Valgarður Guðjónsson
- Vefritid
- Vernharð Þorleifsson
- Viktor Einarsson
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- hreinsamviska
- kreppukallinn
- Námsmaður bloggar
- Árni þór
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Örn Ólafsson
- Óskar
- Óskar Þorkelsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þórður Guðmundsson
- Sigurjón Þórðarson
- Jónas Örn Jónasson
- Magnús Jónsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Elma Guðmundsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Guðmundur Bergkvist
- Baldur Gautur Baldursson
- Helga Þórðardóttir
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Sigurður Ingi Kjartansson
- AK-72
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Aron Ingi Ólason
- Alexandra Briem
- Alfreð Símonarson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Brjánn Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Véfréttin
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Sigurjón
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
- Axel Pétur Axelsson
- Einar Guðjónsson
- Dúa
- Sævar Einarsson
- Hlédís
- Laufey B Waage
- Guðmundur Bogason
- Vaktin
- Ásthildur Jónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Balinn
- Ingifríður Ragna Skúladóttir
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Ómar Bjarki Smárason
- Björn Halldór Björnsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Þorvaldur Geirsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Birgir Skúlason
- Margrét Rósa Sigurðardóttir
- Jóhannes Þór Skúlason
- Bjarki Steingrímsson
- Varmársamtökin
- Þórólfur Ingvarsson
- Jón Ingi Þorvaldsson
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- BJÖRK
- Madhav Davíð Goyal
Athugasemdir
Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum í Borgarahreyfingunni, þar slær mitt hjarta. Mér finnst allt fólkið þar frábært.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.4.2009 kl. 00:13
Heill og sæll; Baldvin - líka, sem þið hin, hver síðu hans geyma og brúka !
Baldvin !
Fyrr; skyldu Vítis logar, upp ú Jarðar iðrum ganga - en; að ég, persónulega, gengi til liðs við; jú,....... hrekklaust fólk, sem ykkur, hver,..... hafið samt, opnað á þann möguleika - að Ísland og Íslendingar, myndu undirgangast ofurvald, hins þýzka hrægamms Fjórða ríkisins (arftaka þess Þriðja - Adolfs Hitler), suður á Brussel völlum, ágæti drengur.
Hygg; að við skyldum, eins og skikkanlegu fólki sæmir - leita liðveizlu frænda og góðra nágranna, hér á Norðurhjara, eins og : Kanada - Grænlands - Færeyja - Noregs og Rússlands.
Með; hinum beztu kveðjum, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 01:03
Ég varð að velja milli þessara tveggja valkosta x-o eða x-f. Á endanum kaus ég X-O . Fannst að Sturla hefði átt að vera með ykkur.
hordurhalldorsson (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 08:16
Þakka gott boð, aldrei að vita hvað maður gerir . Það er aftur á móti spurning hvort þú vitir hvað þú gætir verið að kalla yfir þig
Þóra Guðmundsdóttir, 28.4.2009 kl. 08:40
Þetta er og verður hreyfing. En það sem ég set spurningarmerki við í þessu boði borgarahreyfingarinnar til Frjálslyndra er það hvort borgarahreyfingunni langi virkilega til að fá það fólk inn í hreyfinguna, þetta fólk sem hefur staðið í tómum illdeilum? Ég er bara svona að velta þessu fyrir mér. Og fyrir utan það þá eru margir af þessum frjálslyndu mönnum ekkert annað en fáfróðir rasistar.
Valsól (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 09:23
Ég þakka gott boð en það er á hreinu að ég verð áfram í Frjálslynda flokknum.
Ég varð þess áskynja að Borgarahreyfingin á mikið starf fyrir höndum í að móta stefnu í fjölmörgum málum sem þingmenn hennar verða að taka afstöðu til á næstu mánuðum s.s. sjávarútvegs- landbúnaðar- og efnahagsmálum. Þetta getur orðið nokkuð snúið verk þar sem þingmennirnir sumir hverjir komu lítið að stefnumótunarvinnu Borgarahreyfingarinnar áður en hún varð stjórnmálaafl.
Valsól, ég veit ekki betur en að Eiríki Stefánssyni útvarpskjafti, sem hefur á stundum látið ljót orð falla um félaga sína hafi verið fagnað sérstaklega með rósum og fíneríi við inngöngu í nánast guðlega allt umvefjandi hreyfingu jafnaðarmanna.
Sigurjón Þórðarson, 28.4.2009 kl. 09:49
Gangi ykkur vel Baldvin, það verður spennandi að fylgjast með ykkur
Ragnhildur Jónsdóttir, 28.4.2009 kl. 10:34
Sæll nafni.
Það er aldrei að vita að maður óski eftir því að fá að vera með ykkur í Borgarahreyfingunni. Ef svo færi þá hefði ég áhuga að koma að stefnumótun í sjávarútveginum og landbúnaðinum með þau rök sem ég hef í vasanum . Ég er að vísu harður fullveldisinni og þess vegna vil ég ekki sjá ESB aðild svo það yrði nóg að taka hjá mér að afla mér fylgis fyrir skoðunum mínum innan Borgarahreyfingarinar. Ég hef það á tilfinningunni að minn gamli félagi í Frjálslynda flokknum Sigurjón þórðarson ætli sér formanninn í þeim flokki.
Baldvin Nielsen Reykjanesbæ
B.N. (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 12:31
Nei Viðar, við ætlum okkur að vera áfram grasrótarhreyfing öðru fremur.
En þetta var nú bara góðlátlegt blogg frekar en formlegt boð frá Borgarahreyfingunni en það eru að sjálfsögðu allir velkomnir til okkar.
Baldvin Jónsson, 28.4.2009 kl. 14:04
Sæll Baldvin, gott að ykkur gekk svo vel í kosningunum og gott að vita að ennþá séu einhverjir þarna innanveggja sem eru að vinna fyrir fólkið þó Frjálslyndir hafi dottið út , )
Valsól þér vil ég segja að mér leiðist alveg ákaflega þegar fólk er með sleggjudóma án þess að kynna sér málin betur. Þessa umræðu um rasisma tek ég mjög persónulega þar sem maðurinn minn er ekki íslendingur. Það er ekkert á stefnuskrá Frjálslyndra sem styður rasisma í nokkurri mynd og ég veit ekki betur en að annar "rasistinn" hafi gengið í D, er það þá hinn rasistaflokkur Íslands í dag? Hinn er svo líklega á leið út líka.
Baldvin ég þakka þér gott boð en held mig þar sem ég er . Mikið starf framundan og bara gaman.
Ásta Hafberg S., 30.4.2009 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.