Er nýja Kauþing búið að eyða peningunum okkar frá SPRON? Hvers vegna gat Kaupþing "hið nýja" tekið yfir SPRON reikninga án nokkurs eigins fjár?
6.4.2009 | 12:41
Þetta eru undarlegir tímar sem við lifum á, svo mikið er víst.
Hið voða nýja Kaupþing fær í skjóli ríkisins að taka yfir alla reikninga viðskiptavina SPRON, mína reikninga þar á meðal, án þess að virðist að hafa til þess nokkuð svigrúm eða fjármagn. Já og reyndar líka án þess að nokkurn tímann hafi verið varpað fram spurningunni um hvers vegna bankaleyndin á ekki líka við viðskiptavini SPRON.
Nú segja "þeir" að ekki sé hægt að leyfa MP að kaupa SPRON vegna þess að þá myndu svo margir viðskiptavinir gamla SPRON vilja flykkjast frá nýja Kaupþing yfir til nýja SPRON.
Það er vissulega rétt í mínu tilfelli, ég hef nákvæmlega engan áhuga á viðskiptum við Kaupþing, sérstaklega ekki meðan að vanhæfur Finnur stýrir þar málum.
Spurningin hins vegar er, í hvað er Kaupþing búið að ráðstafa fénu okkar í millitíðinni? Hvers vegna er ekki jafn einfalt að flytja reikningana okkar yfir til nýja SPRON án þess að það leggi Kaupþing á hliðina? Eru þetta ekki ennþá bara tölur í tölvu?
Óttast áhlaup á Kaupþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Gerandi
Lýðræðis- og umhverfissinni og trúi því enn að jafnvægi náist helst í samfélagi með frjálsum markaði, að því tilskyldu að hið opinbera sinni skyldu sinni við eftirlit. Trúi á að hægt sé að nýta með sjálfbærni náttúruna okkar í meðalhófi, okkur og kynslóðum framtíðarinnar til hagsældar. Áhugamaður um lífið og hugmyndir mannanna um lífið.
Var varaþingmaður Birgittu Jónsdóttur í Reykjavík Suður fyrir Hreyfinguna. Sat í stjórn Borgarahreyfingarinnar og tók þátt í að koma á fót framboði um nýjar hugmyndir. Er félagi þar enn. Starfa með Hreyfingunni sem að nú hefur verið stofnuð og á mér þann draum að allir þeir grasrótarhópar sem eiga sameiginlega hagsmuni í starfi að lýðræðisumbótum, geti sameinast um þau. Ekki spyrja í hvaða liði einhver er - spyrðu frekar hvað hægt sé að gera til þess að koma sameiginlegum hagsmunum okkar allra í gegn. Breytum kerfinu á sama tíma og við breytum okkar eigin hugsunarhætti. Þessi liðahugmynd er okkur öllum afar takmarkandi.
Sendu mér línu, tölvupóstur: baddiblue@gmail.com
Hér verður skrafað bæði um alvöru málsins og lagt fram eitthvað til skemmtunar, a.m.k. mér til skemmtunar :)
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2013
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Rannsóknarskýrslan
- Hreyfingin
- Birgitta Jónsdóttir
- Þór Saari
- Þórður Björn Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Baldvin Björgvinsson
- Daði Ingólfsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lilja Skaftadóttir
- Jón Þór Ólafsson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Egill Jóhannsson
- Margrét Sigurðardóttir
- Valgeir Skagfjörð
- Vésteinn Gauti Hauksson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Einhver Ágúst
- Andrés Jónsson
- Arinbjörn Kúld
- Sigurður Hrellir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Bjarni Harðarson
- Marinó G. Njálsson
- Hallur Magnússon
- Fannar frá Rifi
- Sævar Finnbogason
- Ágúst Guðbjartsson
- Axel Jóhann Axelsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Björn Heiðdal
- Bragi Sigurðsson
- Brynjólfur Rafn Fjeldsted
- Báran
- Börkur Hrólfsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- Dofri Hermannsson
- Egill Jón Kristjánsson
- Einar Ben
- Einar Ben
- Einar Sigvaldason
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elín Sigríður Grétarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fjarki
- Freyr Hólm Ketilsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frosti Sigurjónsson
- Gaukur Úlfarsson
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Guðmundur Gunnarsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Hjálmar
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Heidi Strand
- Helga Dóra
- Himmalingur
- Hinrik Fjeldsted
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Baldursson
- Hulda Lind Eyjólfsdóttir
- Huldukonan
- Héðinn Björnsson
- Hörður B Hjartarson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhann Þorsteinsson
- Johann Trast Palmason
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Júlíus Björnsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kokkurinn Ógurlegi
- Konráð Ragnarsson
- Kári Sölmundarson
- LiljaLoga
- Linda
- Magnús Kristjánsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Morgunblaðið
- Mörður Ingólfsson
- Neddi
- Pétur Örn Guðmundsson
- Púkinn
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Guðnadóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Sigurlaug B. Gröndal
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Sturluson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Steinn Hafliðason
- Sunna Dóra Möller
- Svanur Heiðar Hauksson
- Sveinbjörn Geirsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Tanni Ofurbloggari
- Tilkynning
- Torfi Frans Ólafsson
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Valgarður Guðjónsson
- Vefritid
- Vernharð Þorleifsson
- Viktor Einarsson
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- hreinsamviska
- kreppukallinn
- Námsmaður bloggar
- Árni þór
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Örn Ólafsson
- Óskar
- Óskar Þorkelsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þórður Guðmundsson
- Sigurjón Þórðarson
- Jónas Örn Jónasson
- Magnús Jónsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Elma Guðmundsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Guðmundur Bergkvist
- Baldur Gautur Baldursson
- Helga Þórðardóttir
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Sigurður Ingi Kjartansson
- AK-72
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Aron Ingi Ólason
- Alexandra Briem
- Alfreð Símonarson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Brjánn Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Véfréttin
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Sigurjón
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
- Axel Pétur Axelsson
- Einar Guðjónsson
- Dúa
- Sævar Einarsson
- Hlédís
- Laufey B Waage
- Guðmundur Bogason
- Vaktin
- Ásthildur Jónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Balinn
- Ingifríður Ragna Skúladóttir
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Ómar Bjarki Smárason
- Björn Halldór Björnsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Þorvaldur Geirsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Birgir Skúlason
- Margrét Rósa Sigurðardóttir
- Jóhannes Þór Skúlason
- Bjarki Steingrímsson
- Varmársamtökin
- Þórólfur Ingvarsson
- Jón Ingi Þorvaldsson
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- BJÖRK
- Madhav Davíð Goyal
Athugasemdir
Ég held að þeir séu ekki búnir að gera neytt við þám enda fengu þeir ekki peningana með reikningunum, heldur átti að selja eignir SPRON upp í innistæðurnar.
Sigurbjörg Hauksdóttir (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 13:19
Þá spyr ég aftur í einfeldni minni, duga þessar 800 milljónir sem MP greiðir ekki fyrir innistæðunum? Bankinn hlýtur nú að vera við þessa sölu einhvers meira virði en aðeins því sem nemur innistæðum þar.
Baldvin Jónsson, 6.4.2009 kl. 13:23
það er nokkuð augljóst að 800 milljónir frá skákmeistaranum, duga ekki fyrir 83 milljarða innistæðum.
karlsg (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 13:43
Ég held nefnilega að mikið sé til í þessu sem Karl bendir á, að þessi upphæð 800 milljónir (mjög lág upphæð) dugi ekki og þó maður óski Margeir & MP fjárfestingabanka alls hins besta, þá tel ég að stjórnvöld hafi enn og aftur samið af sér og komið sér þannig í slæma stöðu! Það slæma stöðu að Fjármálaeftirlit segir: "þessi steypa gengur bara ekki upp...." Maður finnur til með viðskiptavinum Spron, fyrrum starfsfólki sem sá fram á áframhaldandi vinnu, og maður spyr sig hvers konar "fábjána samfélagi" við búum eiginlega í????
kv. Heilbrigð skynsemi
Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 14:07
Þetta er rétt hjá Sigurbjörgu - Nýja Kaupþing fékk enga peninga frá SPRON, en var hins vegar ætlað að leggja til af eigin fjármunum með innstæðunum til MP.
Kolbrún Hilmars, 6.4.2009 kl. 14:08
Þeta er hið undarlegasta mál allt saman hinsvegar spyr ég var viðskiptavinahópur SPRON svona mikið öðruvísi en annrra banka fóru ekki skuldir yfir með þessum innistæðum. Þannig að ef þú ert með lán hjá banka ertu þá ekki skuldbundinn til að vera með launareikning hjá viðkomandi banka líka svo þegar fólk fer aftur yfir til MP fara þá ekki skuldir með líka. Ég vil fá fréttaskýringu á því sem er í gangi hérna. Annars held ég mig við eftirfarandi Það er bara ekki penignur í kerfinu. Bankarnir eru alveg jafn illa settir ef ekki verr en almenningur í landinu.
http://hallfredur.blog.is/blog/hallfredur/Árni Þór Steinarsson, 6.4.2009 kl. 14:52
SPRON átti væntanlega minni eignir en skudlir annars hefði ekki þurft að gera sparisjóðinn upp. Því hefur Kaupþing væntanlega ekki fengið neina peninga með yfirtökunni á SPRON. Kaupþing fékk bæði eignir og skuldir SPRON. Eignirnar voru fyrst og fremst í formi útlána en skuldirnar í formi innlána. Síðan hefur væntanlega átt að setja sölu á húseignum og tækjum SPRON inn á móti mismuninum á eignum og skuldum SPRON.
Eignirnar í formi útlána koma inn þegar lántakar greiða af sínum skuldum. Ef hins vegar innistæðurnar eru teknar út hraðar en lántakar greiða af sínum útlánum þá lendir Kaupþing í vandræðum með lausafé til að greiða þessar úttektir. Allir bankar lenda í slíku ef innistæðueigendur fara skyndilega að taka út fé í stórum stíl.
Í þessu tilfelli er því ekki um það að ræða að neitt fé hafi horfið því Kaupþing fékk aldrei inneignir í SPRON í formi peninga heldur í formi skuldabréfa, sem lántakar SPRON höfðu gefið út. Kaupþing á því óhægt um vik með að greiða innistæðurnar hraðar út heldur en nemur innborgunum frá lántökum.
Sigurður M Grétarsson, 6.4.2009 kl. 14:57
Við fáum bara yfirborðskenndar fréttir - ekki orð um hvað verður um lánapakka SPRON. Það gæti jafnvel verið að skilanefnd SPRON fái hann til meðhöndlunar fyrir uppgjör "dánarbúsins"...
Kolbrún Hilmars, 6.4.2009 kl. 15:02
Ef satt reynist sem Karlsg segir hér að ofan að þá eru þessar 800 milljónir ekki einu sinni næg trygging fyrir bindisskyldunni. Þetta er hið undarlegasta mál.
Gjörningurinn er sem sagt sá, þið fyrirgefið mér hvað þetta virðist mér allt of óskiljanlegt enda er það það á köflum, að til þess að tryggja innistæður okkar að þá flytur ríkið reikningana okkar til Kaupþings og bætir okkur þar við sem kvöð á þeirra innistæðutryggingar. MP er því sem sagt aðeins að kaupa nafnið og tækin að virðist en tekur ekki við skuldbindingum innistæðu tryggingarinnar. Miðað við þessar forsendur er þá ekki réttast að fyrrum viðskiptavinir SPRON þurfi að velja hvort að þeir haldi sig hjá Kaupþingi eða tapi að öðrum kosti stórum hluta inneigna sinna?
Geri mér nú líka grein fyrir því hversu vanhugsuð athugasemdin mín var hér að ofan #2. Virði banka hefur að sjálfsögðu aðeins lítið með innistæður í honum að gera. Til koma fjöldi annarra þátta við verðmat.
Baldvin Jónsson, 6.4.2009 kl. 15:02
Það má ekki gleymast í umræðunni að við Íslendingar erum gjaldþrota það er stærsta vandamálið í núninu sama hverjum það er um að kenna.
Allt tal að það sé íslensku krónunni um að kenna er mikil heimska því það er ekki henni um að kenna hvernig fór heldur stjónmálamönnunum sem hafa farið hér með völd allt lýðveldistímabilið. Til gamans þá var danska krónan um 2000 íslenskar krónur á núvirði miðað við hana með þeim núllum sem voru þá fyrir aftan hana 1944.
Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ
B.N. (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 19:15
Ég verð að leiðrétta mig aðeins þetta átti að vera um 20.000 þúsund krónur. pr. dönsk króna frá 1944 en það var 2000 krónur ca.frá 1981 þegar myntbreytingin var síðast.
Baldvin Nielsen Reykjanesbæ
B.N. (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 22:24
Með öðrum orðum, verið að reyna að fresta því eins og hægt er að þeir sem áttu innstæður leysi þær út. Því eins og áður sagði þá eru bankarnir í raun og veru tómir, og vesalings starfsfólkið hefur ekkert að sýsla nema með mínustölur í reikningsbókum.
Guðmundur Ásgeirsson, 6.4.2009 kl. 22:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.