Þá er það orðið formlegt - spennufiðringur í maganum og mikil ánægja með félaga mína á fundinum

Þetta var skemmtileg stund í dag. Það var samdóma álit okkar sem hann sátu fyrir hönd Borgarahreyfingarinnar að fundurinn hafi gengið afar vel. Við fengum mikið af góðum krefjandi spurningum og tókst að mínu mati afar vel að koma hugmyndum okkar á framfæri.

Margir (félagar sem kjósa Sjálfstæðisflokkinn) hafa undrast þá yfirlýsingu okkar að við munum ekki fara í stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum. Þetta er hins vegar alveg kristaltært fyrir okkur. Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að sitja að mestu við völd frá stofnun flokksins 1929. Svona um það bil 70 ár af 80 ef mig misminnir ekki mikið. Það er kerfi Sjálfstæðisflokksins öðrum fremur sem við búum við í dag, það er kerfið þeirra sem hrundi algerlega. Það er eðlileg krafa að þeir taki sé nú pásu frá völdum og gefi öðrum færi á að prófa nýjar hugmyndir og hugsjónir.

Ég persónulega er ekki á móti frjálshyggju per se. Alls ekki. Ég er hins vegar á því að það liggi skýrt fyrir að frjálshyggjan brást okkur algerlega síðastliðið haust. Frjálshyggja án kröftugs lagaumhverfis og eftirlits virðist ekki virka. Það er búið að sýna sig endurtekið frá því snemma á tuttugustu öldinni. Markaðslögmálið trúi ég að virki, en það virkar ekki nema að sterkt eftirlit sé með því að allir sitji við sama borðið. Að þáttakendur spili allir eftir sömu leikreglum.

Borgarahreyfingin - þjóðin á þing vill standa fyrir auknu réttlæti, gegnsæi og jafnrétti í samfélaginu. Ekki aðeins jafnrétti kynjanna heldur jafnrétti almennt. Samfélagið á ekki að vera leikvöllur fárra útvaldra, við viljum öll fá að spila með eftir sömu leikreglum.


mbl.is Vilja gegnsætt réttlæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Gegnsæ skríplæti hafa komið og farið í gegnum tíðina

Ómar Ingi, 4.3.2009 kl. 18:53

2 Smámynd: Baldvin Jónsson

Ef réttlæti er skrípalæti Ómar, þá fagna ég því. Við getum þá skemmt okkur yfir því vonandi fljótlega.

Baldvin Jónsson, 4.3.2009 kl. 19:18

3 Smámynd: Egill Jóhannsson

Sæll Baldvin og til hamingju

Ég velti fyrir mér hvernig þið hyggist raða á listana ykkar.

Það sem mig fýsir að vita hvort þið ætlið að ganga alla leið í lýðræðisátt og bjóða fram óraðaða lista þar sem t.d. nöfn á listanum væru í tilviljanakenndri röð. Síðan veldu kjósendur röðina í kjörklefanum.

Ég held að þetta sé eina leiðin ef það á að virka að frambjóðendur séu óháðir og að maður geti þá valið þá frambjóðendur af listanum sem manni líst best á en ekki eitthvað sem flokkurinn hefur raðað upp fyrir mann. Nú skilst mér að þetta verði í fyrsta skipti leyft ef frumvarpið um persónukjör nær fram að ganga þ.e. að bjóða upp á óraðaðann lista.

Verður þetta svona hjá ykkur?

Egill Jóhannsson, 4.3.2009 kl. 19:29

4 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Baldvin til hamingju.........með okkur

Það er alveg ljóst að við hyggjumst bjóða fram óraðaðan lista. Ekki veit ég betur. Ef ég má, ég sem setið hef fundi sem varamaður hef hvergi séð neitt annað. Nú bíðum við eftir flokkunum. En ef þetta frumvarp hefst ekki í gegn fyrir kosningar þá finnum við örugglega leið sem raðar frambjóðendum réttlætislega upp...

Guðni Karl Harðarson, 4.3.2009 kl. 19:43

5 identicon

Frábært framtak - megi allir góðir vætir vera með ykkur.. - óska ykkur & þjóðinni velfernaðar næstu 1100 árin eða svo..!

Jakob Þór Haraldsson (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 20:52

6 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Til lukku, þið komuð þessu vel frá ykkur og allt stefnir í að þið eigið mitt atkvæði víst.

Höskuldur Búi Jónsson, 4.3.2009 kl. 22:04

7 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Til hamingju með þetta framtak!

Hann Baldur McQueen er hér með yfirlit yfir stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins frá 1944 - skemmtilega fram sett.

Lára Hanna Einarsdóttir, 4.3.2009 kl. 23:07

8 Smámynd: Baldvin Jónsson

Takk Lára Hanna og takk kærlega fyrir snilldar samsetningu þína á fréttum dagsins af framboðinu :)

Má sjá það hér hjá Láru Hönnu: http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/820008/

Baldvin Jónsson, 4.3.2009 kl. 23:13

9 Smámynd: Egill Jóhannsson

Sæll Baldvin

En hvað með spurninguna mína hér aðeins ofar um það hvort listinn verði óraðaður? Spurningin hljóðaði svona:

Það sem mig fýsir að vita hvort þið ætlið að ganga alla leið í lýðræðisátt og bjóða fram óraðaðan lista þar sem t.d. nöfn á listanum væru í tilviljanakenndri röð. Síðan veldu kjósendur röðina í kjörklefanum.

Egill Jóhannsson, 5.3.2009 kl. 07:28

10 Smámynd: Baldvin Jónsson

Hæ Egill, fyrirgefðu seint svar.

Við munum bjóða fram óraðaða lista en erum á sama tíma að reyna að búa til eitthvert varaplan ef frumvarpið verður ekki að lögum. Persónukjör er okkur hjartans mál og við munum því reyna sem við getum að bjóða fram eftir því miðað við það umhverfi sem þegar er uppi.

Allar tillögur um málamiðlanir hér um eru líka vel þegnar. Það er nefnilega svo að það eru nánast engar líkur á að við fáum að halda þessu til streitu, Sjálfstæðismenn ætla sér ekki að kjósa með frumvarpinu og samkvæmt núverandi túlkun þarf slík breyting 2/3 atkvæða á þingi.

Baldvin Jónsson, 5.3.2009 kl. 12:12

11 Smámynd: Baldvin Jónsson

En Egill, annað mál. Er ekki svo rólegt í bílabransanum núna að þú hafir nægan tíma til að bjóða þig fram til átaksverks á þingi?  Verðum vonandi að nálgast enda niðursveiflunnar þegar að umbæturnar hafa náð í gegn og þú getur þá snúið þér aftur af fullum þunga að Brimborg :)

Baldvin Jónsson, 5.3.2009 kl. 12:13

12 Smámynd: Egill Jóhannsson

Hæ Baldvin

Takk fyrir svarið og ég er mjög ánægður að heyra að þið ætlið að bjóða fram óraðaðan lista. Skiljanlega verðið þið að hafa varaplan ef frumvarpið fer ekki í gegn því hugsanlega er frumvarpið lagt fram af stjórnarflokkunum í blekkingarskyni þ.e. þeir viti að það verði ekki samþykkt. En vonum það besta því þó það gangi ekki langt þá er þetta áhugavert skref. Það væri klókindi af Sjálfstæðismönnum að samþykkja það og fá kannski smávægis lýðræðisstimpil yfir sig.

Varðandi meintan verkefnaskort minn í vinnunni :) Þrátt fyrir litla sem enga sölu nýrra bíla hér á landi þá er sem betur fer nóg að gera hjá mér í vinnunni. Við afneituðum ekki vandanum á sínum tíma eins og margir stórnmálamenn heldur hófum strax aðgerðir og má fara allt aftur til febrúar í fyrra til að sjá fyrstu aðgerðir okkar til að bregðast við hruninu (bílabransinn hrundi í mars 2008). Núna er nóg að gera í sölu notaðra bíla, þjónustu. sölu varahluta og núna erum við að fikra okkur inn í ferðabransann með stofnun bílaleigu. Mikill tími fer í samningagerð og aðlögun tölvkerfis og er ég á kafi sjálfur í þessum verkefnum ásamt frábærum hóp starfsmanna. Einnig er nóg að gera í að berjast við valdníðandi borgaryfirvöld á sama tíma og maður er að berjast við mestu kreppu sögunnar. Á kvöldin og um helgar mæti ég síðan reglulega á fundi til að halda uppi pressunni á stjórnvöldum og þess á milli blogga ég. Þannig að verkefnaskortur er ekki vandamál :)

Varðandi þingið þá var alveg skýrt frá upphafi að ég hefði ekki áhuga á þingmennsku yfirleitt miðað við hefðbundnar forsendur. Eini möguleikinn hefði verið ef náðst hefði sátt um framboð sem eingöngu hefði haft lýðræðisumbætur á sinni stefnuskrá eins og Lýðveldisbyltingin stefndi að. Hjá þeirri hreyfingu voru tvö markmið þ.e. móta stefnu um bætt lýðræði á opin og gagnsæan hátt fyrir allra augum á netinu. Það tókst 100%. Hitt markmiðið var að bjóða fram til þingkosninga með þetta eina stefnumál í farteskinu og sitja hjá t.d. í öllum öðrum málum. Þetta markmið náðist ekki. Þó má segja að það markmið hafi náðst að hluta. Margir þeirra sem störfuðu í hreyfingunni fóru í framboð fyrir aðra flokka eða t.d. þið sem stofnuðuð flokk og tóku með sér stefnuna og ætla að fylgja henni eftir. Það er frábært og í samræmi við það sem samþykkt var hjá Lýðveldisbyltingunni að það væri öllum algerlega frjálst að nýta stefnuna, í heild eða að hluta,

Egill Jóhannsson, 6.3.2009 kl. 07:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband