Kosningamaskína Sjálfstæðisflokksins augljóslega komin í gang - Borgarahreyfingarinnar vonandi getið meðal almennings frá og með deginum í dag

Borgarahreyfingin verður með blaðamannafund í dag þar sem við munum kynna stefnuskrá okkar og stjórn opinberlega. Fundurinn verður haldinn í Iðnó á 2. hæð klukkan 14:00 í dag. Velunnarar eru boðnir velkomnir á fundinn og vonandi verður afar góð mæting frá fjölmiðlum.

L-listinn hélt sinn fyrsta blaðamannafund í gær og er þó ekki getið hér af Ólafi Þ. í greiningu sinni á stjórnmálalandslaginu.

Fyrirsögnin ber þess þó sterkan keim að hér sé um skrif að ræða sem komi úr handraða kosningamaskínu Sjálfstæðisflokksins þegar segir: "Gæti orðið mesta vinstri sveifla sem sést hefur hér"  Það er jú búið að kenna okkur áratugum saman að fátt sé verra fyrir þjóðarhag en vinstri stjórn. Ef hér væri vinstri stjórn sé gríðarleg hætta á að allt gjörsamlega hrynji. En bíddu við, það er jú reyndar þegar orðið og það undir "traustri efnahagsstjórn" Sjálfstæðisflokksins eins og þeir auglýstu svo grimmt fyrir kosningarnar í maí 2007.

Það eru einfaldlega nýjir tímar núna og krafan um nýja Ísland er hávær. Ísland þar sem almennt verði viðurkennt að heiðarleiki, siðferði, gagnsæi í öllum störfum og pólitísk ábyrgð hjá ráðamönnum og embættismönnum verði viðurkennd sem nauðsynlegur hluti af kerfinu.

Það er kominn tími á nýja sýn og nýja hegðun á Alþingi og Borgarahreyfingin býður sig fram til þess að leiða það innleiðingar starf í stjórnsýslunni allri.

Ef þú ert sátt/ur við ástandið skaltu kjósa áfram gamla fjórflokkinn - ef þú hins vegar treystir þeim ekki til að koma á breytingum sem minnka munu völd þeirra sjálfra - já, þá þarftu að kjósa eitthvað nýtt.

Slástu í för með okkur, það er komið að okkur að taka persónulega ábyrgð á eigin lífi - það er komið að okkur að koma á nauðsynlegum lýðræðis breytingum í íslensku samfélagi.

Stefnumál Borgarahreyfingarinnar af http://www.borgarahreyfingin.is


mbl.is Gæti orðið mesta vinstri sveifla sem sést hefur hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: smg

Hræðsluáróður maskínu Sjálfstæðisflokks verður sífellt máttlausari og ómálefnalegri. Gallinn er að Hægri vængurinn klofnar yfirleitt aldrei alvarlega, en tíður klofningar á miðju og vinstri vængnum er sem olía á eld Íhaldsins.

smg, 4.3.2009 kl. 09:17

2 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Ég gæti hugsað mér að kjósa Borgarahreyfinguna, en til þess þá þarf ég að vita eftirfarandi (ég reikna með að Borgarahreyfingin nái sér á flug og komist í oddastöðu svokallaða):

1: Munuð þið ganga óbundin til kosninga, þ.e. getur maður átt von á því að þið endið í ríkisstjórn með sjálfstæðisflokknum og/eða framsóknarflokknum ef það dugar til að komast í ríkisstjórn?

2: Þetta eru nokkuð afmörkuð stefnumál þannig séð hjá ykkur.  Ætliði ekki að taka afstöðu til einstakra mála?

3: Ætliði að keyra ykkar stefnumál í gegn og rjúfa svo þing?

Svo eitt sem skiptir kannski ekki höfuðmáli, en vakti forvitni mína.

4: Að lagfæra verðtrygginguna handvirkt aftur til jan 2008 er gott mál og í raun nauðsynlegt fyrir fjölmörg heimili. En hvað með okkur sem náðum að "bjarga okkur" fyrir horn með því að selja ofan af okkur íbúðina upp í skuldir á liðnum mánuðum. Þetta er mér hugleikið því persónulega þá "tapaði" ég nokkrum hundrað þúsund köllum með því að selja nú um áramótin íbúðina, á undirverði vegna þess að lánið hafði hækkað gífurlega (ég hef tapaði innan gæsalappa því miðað við stöðuna þá og nú, þá var það eina vitið).  Ef jafnræðis væri gætt þá fyndist mér ekkert annað en sanngjarnt að ég fengi endurgreiðslu á verðtryggingunni frá jan 2008- jan 2009, eða hvað finnst ykkur? Myndi ég fá ávísun upp á þessa hundrað þúsund kalla sem verðtryggingin hafði hækkað lánin frá jan 2008

Höskuldur Búi Jónsson, 4.3.2009 kl. 11:49

3 identicon

Ég verð að taka undir spurningu Höska Búa varðandi samstarf við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk. Ef svo er finnst mér betra heima setið en af stað farið. Mig langar yfirleitt ekki til að búa í þessu landi ef þeir flokkar mynda næstu stjórn. Sjálfstæðismenn hamast við að lýsa ábyrgð hrunsins á allt og alla aðra, m.a. ríkisútgjöldin!!!

Annars hafði ég hugsað mér að kjósa þetta framboð (svaraði þér á færslu hjá Láru Hönnu fyrir nokkru). Ég gleymdi samt að taka þennan möguleika með í reikninginn.

Kolla (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 16:13

4 identicon

Svarið kom í Kastljósi.

Kolla (IP-tala skráð) 4.3.2009 kl. 20:10

5 Smámynd: Baldvin Jónsson

Höski, Framsóknarflokkurinn hefur mér ekki þótt trúverðugur hingað til en hann virðist vera að reyna að rísa upp úr því fari. Sjáum hvað setur. Við hins vegar tókum alveg af skarið með það að Sjálfstæðiflokkurinn er ekki á lista yfir mögulega samstarfsflokka. Við viljum mynda félagshyggjustjórn.

Við mynduðum stefnuskrá utan um þau málefni sem okkur þykja mest áríðandi í augnablikinu að ráðast í að laga. Varðandi önnur mál ber þingmönnum að fylgja eigin sannfæringu. Stefna okkar um þjóðaratkvæðagreiðslu nær þó til ansi margra annarra mála í umræðunni í dag eins og til að mynda kvótamálin.

Náum við þeim stefnumálum okkar í gegn sem þarfnast breytingar á Stjórnarskrá liggur ljóst fyrir að þing mun verða rofið og gengið til kosninga.

Baldvin Jónsson, 4.3.2009 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband