Er sökin augljóslega eða bara mjög líklega Íslendinga?
5.1.2009 | 01:36
Hvernig stendur á því að málinu er nú svo komið að ríkið getur bent á skilanefnd Kaupþings og skilanefnd Kaupþings vísar málinu aftur tilbaka? Ríkið býr til laga"vafning" sem heimilar okkur að fara í mál og lítur þar með ansi vel út svona út á við til almennings, en á sama tíma telur skilanefndin það ekki liggja fyrir að þeir hafi umboð til þess að sækja málið. Er þetta bara reykmerki í almannatengslum?
Mér er helst spurn hvort að geti ekki verið að líklegt sé að réttur okkar sé svo vafasamur gagnvart Bretunum, að ríkið viti af einhverjum gjörningum þar úti sem að við höfum ekki verið fyllilega upplýst um, að þeir sem til þekki telji mjög ólíklegt að sigur hefðist í málinu. Að það sé verulegum efasemdum ofið að Íslendingar eigi þarna einhvern rétt að sækja. Það er jú vissulega þannig að ef slík málssókn myndi leiða í ljós verri mál, verri framkomu en nú þegar er í umræðunni, væri að sjálfsögðu betur heima setið en af stað farið.
En ættum við hin, almenningur í landinu þá ekki heimtingu á að vita af því? Fresturinn er að renna út. Hversu lengi ætlum við að þola að sitja undir slíkri óstjórn?
Fresturinn að renna út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Gerandi
Lýðræðis- og umhverfissinni og trúi því enn að jafnvægi náist helst í samfélagi með frjálsum markaði, að því tilskyldu að hið opinbera sinni skyldu sinni við eftirlit. Trúi á að hægt sé að nýta með sjálfbærni náttúruna okkar í meðalhófi, okkur og kynslóðum framtíðarinnar til hagsældar. Áhugamaður um lífið og hugmyndir mannanna um lífið.
Var varaþingmaður Birgittu Jónsdóttur í Reykjavík Suður fyrir Hreyfinguna. Sat í stjórn Borgarahreyfingarinnar og tók þátt í að koma á fót framboði um nýjar hugmyndir. Er félagi þar enn. Starfa með Hreyfingunni sem að nú hefur verið stofnuð og á mér þann draum að allir þeir grasrótarhópar sem eiga sameiginlega hagsmuni í starfi að lýðræðisumbótum, geti sameinast um þau. Ekki spyrja í hvaða liði einhver er - spyrðu frekar hvað hægt sé að gera til þess að koma sameiginlegum hagsmunum okkar allra í gegn. Breytum kerfinu á sama tíma og við breytum okkar eigin hugsunarhætti. Þessi liðahugmynd er okkur öllum afar takmarkandi.
Sendu mér línu, tölvupóstur: baddiblue@gmail.com
Hér verður skrafað bæði um alvöru málsins og lagt fram eitthvað til skemmtunar, a.m.k. mér til skemmtunar :)
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2013
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Rannsóknarskýrslan
- Hreyfingin
- Birgitta Jónsdóttir
- Þór Saari
- Þórður Björn Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Baldvin Björgvinsson
- Daði Ingólfsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lilja Skaftadóttir
- Jón Þór Ólafsson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Egill Jóhannsson
- Margrét Sigurðardóttir
- Valgeir Skagfjörð
- Vésteinn Gauti Hauksson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Einhver Ágúst
- Andrés Jónsson
- Arinbjörn Kúld
- Sigurður Hrellir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Bjarni Harðarson
- Marinó G. Njálsson
- Hallur Magnússon
- Fannar frá Rifi
- Sævar Finnbogason
- Ágúst Guðbjartsson
- Axel Jóhann Axelsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Björn Heiðdal
- Bragi Sigurðsson
- Brynjólfur Rafn Fjeldsted
- Báran
- Börkur Hrólfsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- Dofri Hermannsson
- Egill Jón Kristjánsson
- Einar Ben
- Einar Ben
- Einar Sigvaldason
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elín Sigríður Grétarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fjarki
- Freyr Hólm Ketilsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frosti Sigurjónsson
- Gaukur Úlfarsson
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Guðmundur Gunnarsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Hjálmar
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Heidi Strand
- Helga Dóra
- Himmalingur
- Hinrik Fjeldsted
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Baldursson
- Hulda Lind Eyjólfsdóttir
- Huldukonan
- Héðinn Björnsson
- Hörður B Hjartarson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhann Þorsteinsson
- Johann Trast Palmason
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Júlíus Björnsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kokkurinn Ógurlegi
- Konráð Ragnarsson
- Kári Sölmundarson
- LiljaLoga
- Linda
- Magnús Kristjánsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Morgunblaðið
- Mörður Ingólfsson
- Neddi
- Pétur Örn Guðmundsson
- Púkinn
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Guðnadóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Sigurlaug B. Gröndal
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Sturluson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Steinn Hafliðason
- Sunna Dóra Möller
- Svanur Heiðar Hauksson
- Sveinbjörn Geirsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Tanni Ofurbloggari
- Tilkynning
- Torfi Frans Ólafsson
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Valgarður Guðjónsson
- Vefritid
- Vernharð Þorleifsson
- Viktor Einarsson
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- hreinsamviska
- kreppukallinn
- Námsmaður bloggar
- Árni þór
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Örn Ólafsson
- Óskar
- Óskar Þorkelsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þórður Guðmundsson
- Sigurjón Þórðarson
- Jónas Örn Jónasson
- Magnús Jónsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Elma Guðmundsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Guðmundur Bergkvist
- Baldur Gautur Baldursson
- Helga Þórðardóttir
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Sigurður Ingi Kjartansson
- AK-72
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Aron Ingi Ólason
- Alexandra Briem
- Alfreð Símonarson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Brjánn Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Véfréttin
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Sigurjón
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
- Axel Pétur Axelsson
- Einar Guðjónsson
- Dúa
- Sævar Einarsson
- Hlédís
- Laufey B Waage
- Guðmundur Bogason
- Vaktin
- Ásthildur Jónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Balinn
- Ingifríður Ragna Skúladóttir
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Ómar Bjarki Smárason
- Björn Halldór Björnsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Þorvaldur Geirsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Birgir Skúlason
- Margrét Rósa Sigurðardóttir
- Jóhannes Þór Skúlason
- Bjarki Steingrímsson
- Varmársamtökin
- Þórólfur Ingvarsson
- Jón Ingi Þorvaldsson
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- BJÖRK
- Madhav Davíð Goyal
Athugasemdir
já það er eitthvað verra á ferðinni.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 5.1.2009 kl. 03:20
Verðum við ekki að fá að vita allan sannleikann?,við eigum jú að borga.Hvað sagði Davíð á viðsk.þingi í haust? Hugsum um það að í atvinnulífskreppu erum við að fara borga bankaskuldir einstaklinga og verðum að draga úr opinberri þjónustu,engin „new deal „ .Við mætum samdrætti með enn meiri samdrætti, getum ekki notað aukinn ríkisútgjöld sem varadekk eins og Roosvelt heitinn forðum daga.Afleit staða sem við höfum komið okkur í.
Hörður Halld. (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 07:25
Bankarnir þurfa að kæra ekki ríkið.
Ómar Ingi, 5.1.2009 kl. 09:45
Ómar, nú er það þannig að bankarnir ERU ríkið. Þetta er því stjórnvaldsákvörðun.
Baldvin Jónsson, 5.1.2009 kl. 11:44
Held að þetta sé hárrétt hjá þér með sökina. Þessar milljónir sem í þetta fara verða notaðar af Sigurði Kára (þingmanninum með stóru draumana), Helga Áss (skákmanninum með kvótakerfislofgjörðina) og Sigmundi Davíð (formannsefni framsóknar) osf.. Að sögn til að kynna "málstað" Íslands. En í raun munu þeir aðeins kynna sjálfa sig, er hér um opinbert framlag til þess að kynna nýja stjórnmála menn til sögunnar.
Magnús Sigurðsson, 5.1.2009 kl. 13:21
Sæll Baldvin.
Fyrir réttum mánuði, eða 4. desember, skrifaði ég þessa færslu sem er á svipuðum nótum og pælingar þínar. Mér fannst, með réttu eða röngu, að ef Davíð hefði réttmæta ástæðu til að beita fyrir sig bankaleynd á fundi Viðskiptanefndar Alþingis, þá væru líkur á að málstaður okkar væri hæpinn.
Sá ótti virkar nú líklegri með hverjum deginum.
Haraldur Hansson, 5.1.2009 kl. 14:36
Það er væntanlega eins í Bretlandi og á Íslandi, að til að höfða mál verður að hafa aðild að málinu. Þ.e. þriðji aðili (t.d. ríkissjóður Íslands) getur ekki höfðað mál. Sá sem varð fyrir tjóni af yfirtöku Kaupthing Singer & Friedlander er væntanlega hluthafi þess banka, sem sé gamla Kaupþing. Gamla Kaupþing er ekki í eigu ríkisins, heldur er ennþá sjálfstæður lögaðili, hlutafélag úti í bæ með eigin kennitölu, en vissulega hefur skilanefnd á vegum Fjármálaeftirlitsins tekið yfir vald hluthafafundar í félaginu. En það hlýtur að vera skilanefndarinnar að taka ákvörðun um málshöfðun, og það gerir hún aðeins ef hún telur það samrýmast hagsmunum lánardrottna Kaupþings.
Það sama á við um Landsbankann, þ.e. að það er skilanefnd gamla bankans sem tekur ákvörðun um málssókn f.h. félagsins með tilliti til hagsmuna lánardrottna þess.
Vilhjálmur Þorsteinsson, 5.1.2009 kl. 15:57
En Vilhjálmur, Skilanefndir Gömlu bankanna eru á ábyrgð og forræði Íslensku Ríkisstjórnarinnar.
En það er eftir öðru á þeim bæ, tómur vingulsháttur og pukur og leynd og svo líka aftur og aftur hrein lygi í ofanálag.
Það er ekki gæfulegt þetta Ríkisstjórnarsamstarf, það ber dauðann í sér !
Burt með þessa Ríkisstjórn leyndar og pukurs hún er umboðslaust REKALD !
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 16:10
Er ekki við ónýta löggjöf að sakast, ESB löggjöf um ábyrgð banka?,. Það virðist sem stjórnvöld okkar sem allra Evrópuríkja séu fastsett vegna þessarar löggjafar. Okkar vegna hugsanlegrar inngöngu. Allavega virðast þessi ríki vera grunsamlega viðkvæm fyrir að sækja rétt sinn.
itg (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 23:06
Já en Ríkið fer ekki í mál heldur styður bankan sinn KB í þau mál ekki satt
Ómar Ingi, 7.1.2009 kl. 01:41
Satt Ómar, en segir ekki alla söguna. Það er ríkið sem tekur á endanum ákvörðunina með lagasetningu fyrir hönd skilanefndarinnar væntanlega. Það er því í dag á ábyrgð ríkisins að kæra eins og virðist vera að gerast núna.
Baldvin Jónsson, 7.1.2009 kl. 02:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.