Flestar fréttir þessa helgina snúast um umferð ekki satt og eitthvað sem "þeir" kalla "umferðarmenningu".
4.8.2007 | 21:15
Það er mikil Guðs mildi tel ég hvað lítið hefur verið um alvarleg slys þessa helgina og umferðin virðist almennt ganga vel. Það á þó jú reyndar eftir að koma í ljós hversu vel landanum gengur að aka heim á morgun eftir vökur helgarinnar
Við lesum mikið um dólga eins og þennan með fellihýsi sem þvingar bifhjólasnót út af vegi og veldur henni skaða. Dólg sem veit væntanlega ekki einu sinni af því og trúir því enn að hann sé einn af þessum bestu í umferðinni. Einn af þessum yfir 80% aðspurðra Íslendinga sem trúa því að þeir séu vel yfir meðallagi góðir bílstjórar. Vantar ekki falskt sjálfstraustið þar.
En hvað um þessa sem valda sífellt stórhættu vegna of hægs aksturs?? Menn eins og þennan í fjölskyldu bíltúrnum á leiðinni til höfuðborgarinnar í gær á einum al anna samasta tíma í Íslenskri umferð?? Hvað með þá?
Konan mín var að koma að austan í gær og gekk umferðin vel þangað til að komið var í bílalest sem var búin til af einum einstökum bíl sem var algerlega í eigin heimi og tók ekki tillit til eins né neins. Einstaks bíls með fjölskyldu sem hefur örugglega verið að dást að því sín á milli hvað það væri nú gott að til væri fólk eins og þau sem hefur til að bera þroska og andlegt jafnvægi til að geta keyrt rólega á þjóðvegi 1.
Fjölskylda sem í einskærri eigingirni "þroska síns" skapaði bílaröð sem náði frá Rauðavatni og alla leið upp í Lögbergsbrekkuna. Bílaröð sem var engin leið að komast fram fyrir vegna þess að 50% borgarbúa voru á leiðinni í hina áttina og komu því úr gagnstæðri átt.
Ég dáist að fólki sem liggur ekkert á, í alvöru!! En tökum samt tillit!!! Ef við ætlum út að rúnta til að njóta umhverfisins, víkjum þá stöku sinnum og hleypum ÖLLUM hinum sem vilja komast leiðar sinnar á eðlilegum hraða fram fyrir.
Það er jú góð "umferðarmenning".
Ætlaði mér ekki að tuða mikið hérna, en stundum þarf að rifja líka upp duldu hætturnar. Þær eru nefnilega svo hættulega duldar
Þvinguð út af veginum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Gerandi
Lýðræðis- og umhverfissinni og trúi því enn að jafnvægi náist helst í samfélagi með frjálsum markaði, að því tilskyldu að hið opinbera sinni skyldu sinni við eftirlit. Trúi á að hægt sé að nýta með sjálfbærni náttúruna okkar í meðalhófi, okkur og kynslóðum framtíðarinnar til hagsældar. Áhugamaður um lífið og hugmyndir mannanna um lífið.
Var varaþingmaður Birgittu Jónsdóttur í Reykjavík Suður fyrir Hreyfinguna. Sat í stjórn Borgarahreyfingarinnar og tók þátt í að koma á fót framboði um nýjar hugmyndir. Er félagi þar enn. Starfa með Hreyfingunni sem að nú hefur verið stofnuð og á mér þann draum að allir þeir grasrótarhópar sem eiga sameiginlega hagsmuni í starfi að lýðræðisumbótum, geti sameinast um þau. Ekki spyrja í hvaða liði einhver er - spyrðu frekar hvað hægt sé að gera til þess að koma sameiginlegum hagsmunum okkar allra í gegn. Breytum kerfinu á sama tíma og við breytum okkar eigin hugsunarhætti. Þessi liðahugmynd er okkur öllum afar takmarkandi.
Sendu mér línu, tölvupóstur: baddiblue@gmail.com
Hér verður skrafað bæði um alvöru málsins og lagt fram eitthvað til skemmtunar, a.m.k. mér til skemmtunar :)
32 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 358591
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2013
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Rannsóknarskýrslan
- Hreyfingin
- Birgitta Jónsdóttir
- Þór Saari
- Þórður Björn Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Baldvin Björgvinsson
- Daði Ingólfsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lilja Skaftadóttir
- Jón Þór Ólafsson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Egill Jóhannsson
- Margrét Sigurðardóttir
- Valgeir Skagfjörð
- Vésteinn Gauti Hauksson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Einhver Ágúst
- Andrés Jónsson
- Arinbjörn Kúld
- Sigurður Hrellir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Bjarni Harðarson
- Marinó G. Njálsson
- Hallur Magnússon
- Fannar frá Rifi
- Sævar Finnbogason
- Ágúst Guðbjartsson
- Axel Jóhann Axelsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Björn Heiðdal
- Bragi Sigurðsson
- Brynjólfur Rafn Fjeldsted
- Báran
- Börkur Hrólfsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- Dofri Hermannsson
- Egill Jón Kristjánsson
- Einar Ben
- Einar Ben
- Einar Sigvaldason
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elín Sigríður Grétarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fjarki
- Freyr Hólm Ketilsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frosti Sigurjónsson
- Gaukur Úlfarsson
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Guðmundur Gunnarsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Hjálmar
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Heidi Strand
- Helga Dóra
- Himmalingur
- Hinrik Fjeldsted
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Baldursson
- Hulda Lind Eyjólfsdóttir
- Huldukonan
- Héðinn Björnsson
- Hörður B Hjartarson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhann Þorsteinsson
- Johann Trast Palmason
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Júlíus Björnsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kokkurinn Ógurlegi
- Konráð Ragnarsson
- Kári Sölmundarson
- LiljaLoga
- Linda
- Magnús Kristjánsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Morgunblaðið
- Mörður Ingólfsson
- Neddi
- Pétur Örn Guðmundsson
- Púkinn
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Guðnadóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Sigurlaug B. Gröndal
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Sturluson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Steinn Hafliðason
- Sunna Dóra Möller
- Svanur Heiðar Hauksson
- Sveinbjörn Geirsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Tanni Ofurbloggari
- Tilkynning
- Torfi Frans Ólafsson
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Valgarður Guðjónsson
- Vefritid
- Vernharð Þorleifsson
- Viktor Einarsson
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- hreinsamviska
- kreppukallinn
- Námsmaður bloggar
- Árni þór
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Örn Ólafsson
- Óskar
- Óskar Þorkelsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þórður Guðmundsson
- Sigurjón Þórðarson
- Jónas Örn Jónasson
- Magnús Jónsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Elma Guðmundsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Guðmundur Bergkvist
- Baldur Gautur Baldursson
- Helga Þórðardóttir
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Sigurður Ingi Kjartansson
- AK-72
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Aron Ingi Ólason
- Alexandra Briem
- Alfreð Símonarson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Brjánn Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Véfréttin
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Sigurjón
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
- Axel Pétur Axelsson
- Einar Guðjónsson
- Dúa
- Sævar Einarsson
- Hlédís
- Laufey B Waage
- Guðmundur Bogason
- Vaktin
- Ásthildur Jónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Balinn
- Ingifríður Ragna Skúladóttir
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Ómar Bjarki Smárason
- Björn Halldór Björnsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Þorvaldur Geirsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Birgir Skúlason
- Margrét Rósa Sigurðardóttir
- Jóhannes Þór Skúlason
- Bjarki Steingrímsson
- Varmársamtökin
- Þórólfur Ingvarsson
- Jón Ingi Þorvaldsson
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- BJÖRK
- Madhav Davíð Goyal
Athugasemdir
Hér er komið inná virkilegt vandamál og örugglega stórvaxandi slysavald. Það sér hver maður sem þarf að keyra hérna yfir fjallið allt að því daglega að það er með ólíkindum hvað menn geta verið snjóaðir inni í eigin heimi á þessari leið. Í raun og veru ætti að vera óbrotin lína á þessum vegi allar götur frá Þrengslum inní Bæ því það er þannig umferðin að maður á ekkert framúr að gera, en það eykur til muna þörfina fyrir að menn sem eru í náttúruskoðun, eða bara eru hræddir við hraðann hleypi framúr sér, með því að fara útá öxlina og losi stýfluna sem þeir eru búnir að safna fyrir aftan sig.
Ég var á ferð norður í land á dögunum og varð í ferðinni var við hverslags bull er að verða til í kringum þessi hjólhýsi og aftanívagna allskonar. Það er skemmst frá að segja að það er sennilega ekki nema annar hver ökumaður sem er fær um að draslast með þetta á eftir sér, hinir ættu að fara í námskeið til að læra að fara með þetta, auk þess sem sumir eru sér meðvitaðir um það að þeir mega bara aka á 80 og fara eftir því í hvívetna og segjast örugglega stoltir vera að forða slysum, en búa í leiðinni til þvílíkan glæpaakstur við að taka framúr þeim að engu tali tekur.
Nei, ég segi eins og þú Baldvin, snillingurinn sem svínaði á stúlkunni á dögunum stendur sennilega í þeirri trú ennþá að hann sé fyrirmyndarökumaður og það er mikill skaði, það er allt of mikið af fólki á ferðinni sem telur uppá að það sé fært um að keyra, en er það í raun ekki, fólk á öllum aldri, því miður.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 5.8.2007 kl. 11:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.