REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ að grínast?
20.5.2010 | 23:47
Nei, við stöndum einfaldlega frammi fyrir aðeins þremur praktískum valkostum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Fjórflokksmeðlimir reyna að sjálfsögðu að láta þetta hljóma eins og kjánaskap enda kemur það þeim afar illa að fram komi framboð sem eru óháð þeirra sérhagsmunum.
Valkostirnir sem að við stöndum frammi fyrir á kjördag eru einfaldlega:
- Skattahækkanir - að hækka álögur á borgarbúa enn frekar með sköttum og gjaldskrárhækkunum.
- Niðurskurður - að skera enn meira niður í grunnþjónustunni, sem þegar hefur verið skert mikið þrátt fyrir yfirlýsingar borgarfulltrúa um annað
- Selja eignir - að nýta eignir borgarinnar til þess að verja borgarbúa fyrir enn frekari þrengingum.
Hvort vilt þú lesandi góður taka á þig meiri birgðar og/eða niðurskurð eða nýta sameiginlegar eignir borgarbúa til þess að skapa verðmæti meðan að versta kreppan skellur yfir?
Fyrir mér snýst praktíska spurningin fyrst og fremst um þessa þrjá kosti.
Huglæga hlið málsins er síðan einfaldlega þannig fyrir mér að eftir algera óstjórn og mesta óstöðugleika í borgarstjórn og rekstri sem að við höfum nokkurn tímann upplifað í borginni, get ég bara með engu móti fengið af mér að kjósa sama fólkið áfram og lék þar stóru hlutverkin. Þess vegna meðal annars varð REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ til. Við erum hópur fólks sem að treystir einfaldlega ekki fjórflokks fulltrúunum til þess að verja og berjast fyrir hagsmunum okkar fram yfir þeirra eigin hagsmuni og flokkanna þeirra.
Þess vegna er valið kannski enn einfaldara fyrir þessar kosningar, kannski snýst valið bara um tvo valkosti við stjórnleysi fjórflokksins. Grín eða alvöru.
Okkur hjá REYKJAVÍKURFRAMBOÐINU er full alvara í því að ætla að beita okkur af hörku fyrir því að verja hagsmuni borgarbúa, að létta sérstaklega á með þeim sem verst standa og bakfæra aftur þann niðurskurð sem orðið hefur á grunnþjónustunni undanfarin misseri.
Við treystum okkur til þess vegna þess að við veljum kost 3 hér að ofan. Við munum nýta eign borgarinnar í Vatnsmýrinni til þess að standa undir því að hér verði rekin borg með velferðarkerfi og grunnþjónustu sem sómi er að.
Vatnsmýrin í gíslingu" fjórflokksins í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Sveitarstjórnarkosningar | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Gerandi
Lýðræðis- og umhverfissinni og trúi því enn að jafnvægi náist helst í samfélagi með frjálsum markaði, að því tilskyldu að hið opinbera sinni skyldu sinni við eftirlit. Trúi á að hægt sé að nýta með sjálfbærni náttúruna okkar í meðalhófi, okkur og kynslóðum framtíðarinnar til hagsældar. Áhugamaður um lífið og hugmyndir mannanna um lífið.
Var varaþingmaður Birgittu Jónsdóttur í Reykjavík Suður fyrir Hreyfinguna. Sat í stjórn Borgarahreyfingarinnar og tók þátt í að koma á fót framboði um nýjar hugmyndir. Er félagi þar enn. Starfa með Hreyfingunni sem að nú hefur verið stofnuð og á mér þann draum að allir þeir grasrótarhópar sem eiga sameiginlega hagsmuni í starfi að lýðræðisumbótum, geti sameinast um þau. Ekki spyrja í hvaða liði einhver er - spyrðu frekar hvað hægt sé að gera til þess að koma sameiginlegum hagsmunum okkar allra í gegn. Breytum kerfinu á sama tíma og við breytum okkar eigin hugsunarhætti. Þessi liðahugmynd er okkur öllum afar takmarkandi.
Sendu mér línu, tölvupóstur: baddiblue@gmail.com
Hér verður skrafað bæði um alvöru málsins og lagt fram eitthvað til skemmtunar, a.m.k. mér til skemmtunar :)
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2013
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Rannsóknarskýrslan
- Hreyfingin
- Birgitta Jónsdóttir
- Þór Saari
- Þórður Björn Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Baldvin Björgvinsson
- Daði Ingólfsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lilja Skaftadóttir
- Jón Þór Ólafsson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Egill Jóhannsson
- Margrét Sigurðardóttir
- Valgeir Skagfjörð
- Vésteinn Gauti Hauksson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Einhver Ágúst
- Andrés Jónsson
- Arinbjörn Kúld
- Sigurður Hrellir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Bjarni Harðarson
- Marinó G. Njálsson
- Hallur Magnússon
- Fannar frá Rifi
- Sævar Finnbogason
- Ágúst Guðbjartsson
- Axel Jóhann Axelsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Björn Heiðdal
- Bragi Sigurðsson
- Brynjólfur Rafn Fjeldsted
- Báran
- Börkur Hrólfsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- Dofri Hermannsson
- Egill Jón Kristjánsson
- Einar Ben
- Einar Ben
- Einar Sigvaldason
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elín Sigríður Grétarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fjarki
- Freyr Hólm Ketilsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frosti Sigurjónsson
- Gaukur Úlfarsson
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Guðmundur Gunnarsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Hjálmar
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Heidi Strand
- Helga Dóra
- Himmalingur
- Hinrik Fjeldsted
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Baldursson
- Hulda Lind Eyjólfsdóttir
- Huldukonan
- Héðinn Björnsson
- Hörður B Hjartarson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhann Þorsteinsson
- Johann Trast Palmason
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Júlíus Björnsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kokkurinn Ógurlegi
- Konráð Ragnarsson
- Kári Sölmundarson
- LiljaLoga
- Linda
- Magnús Kristjánsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Morgunblaðið
- Mörður Ingólfsson
- Neddi
- Pétur Örn Guðmundsson
- Púkinn
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Guðnadóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Sigurlaug B. Gröndal
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Sturluson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Steinn Hafliðason
- Sunna Dóra Möller
- Svanur Heiðar Hauksson
- Sveinbjörn Geirsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Tanni Ofurbloggari
- Tilkynning
- Torfi Frans Ólafsson
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Valgarður Guðjónsson
- Vefritid
- Vernharð Þorleifsson
- Viktor Einarsson
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- hreinsamviska
- kreppukallinn
- Námsmaður bloggar
- Árni þór
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Örn Ólafsson
- Óskar
- Óskar Þorkelsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þórður Guðmundsson
- Sigurjón Þórðarson
- Jónas Örn Jónasson
- Magnús Jónsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Elma Guðmundsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Guðmundur Bergkvist
- Baldur Gautur Baldursson
- Helga Þórðardóttir
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Sigurður Ingi Kjartansson
- AK-72
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Aron Ingi Ólason
- Alexandra Briem
- Alfreð Símonarson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Brjánn Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Véfréttin
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Sigurjón
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
- Axel Pétur Axelsson
- Einar Guðjónsson
- Dúa
- Sævar Einarsson
- Hlédís
- Laufey B Waage
- Guðmundur Bogason
- Vaktin
- Ásthildur Jónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Balinn
- Ingifríður Ragna Skúladóttir
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Ómar Bjarki Smárason
- Björn Halldór Björnsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Þorvaldur Geirsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Birgir Skúlason
- Margrét Rósa Sigurðardóttir
- Jóhannes Þór Skúlason
- Bjarki Steingrímsson
- Varmársamtökin
- Þórólfur Ingvarsson
- Jón Ingi Þorvaldsson
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- BJÖRK
- Madhav Davíð Goyal
Athugasemdir
Það er alltaf gaman að sjá pistla sem lýsa því að gamanið sem þar er sett fram sé meint í fullri alvöru. Gott grín getur alveg verið dauðans alvara og alvaran skellihlægileg.
Heilmikil umræða um þetta töfrabragð í borgarmálunum hefur farið fram á mínu bloggi og hafi einhver áhuga á að lesa það, má sjá það hérna
Axel Jóhann Axelsson, 21.5.2010 kl. 11:26
Og hverjum skyldi nú eiga að selja þessa blessaða Vatnsmýri?
Mér er ekki kunnugt um að það bíði margir og nagi þröskulda hjá borginni í leit að lóðum undir húsnæði af neinum toga.
Hvað þá ef talað er um dýrasta landsvæði til undirbúnings en finnst á þurru landi á Íslandi.
Þarna er um að ræða land sem eftir er að skipuleggja og þar að auki er þarna um að ræða hápólitíska ákvörðun sem hvergi hefur verið undirbúin né heldur að nokkurt samkomulag sé þar í augsýn.
En til að allrar sanngirni sé nú gætt þá hafa glöggir menn fullyrt við mig að byggingarlóðir í Vatnsmýri muni verða fyrr tilbúnar og að mun ódýrari en sambærilegar lóðir á tunglinu.
Margir telja þó lóðir á tunglinu meira svona spennandi.
Árni Gunnarsson, 21.5.2010 kl. 17:47
Hvergi kemur fram í stefnu framboðsins að til standi að selja lóðir í Vatnsmýrinni nú þegar. Við viljum þó berjast fyrir því að staðfest verði nýtt skipulag þar sem er íbúabyggð í Vatnsmýrinni.
Lántaka út á gott veð virðist vera mörgum til furðu. Hvers vegna er það undarlegra að taka lán með góðu veði að baki því, heldur en að ætla að fara leið Samfylkingar og taka lán án veðs? Lán sem að virðist engin áætlun um endurgreiðslu á önnur en skattahækkanir eftir 2-3 ár.
Þá kýs ég a.m.k. heldur lántöku með góðu veði sem býður upp á betri lánakjör.
En hvers vegna er þetta það eina sem fólk hefur áhuga á að ræða? Ég er afar stoltur af stefnumálunum okkar og finnst þau svo sannarlega þess virði að berjast fyrir þeim. Hvort viljum við algera uppgjöf og grín eða nýtt fólk, óháð hagsmunum fjórflokksins sem af heiðarleika og baráttuanda vill takast á við að breyta pólitískri, fjárhagslegri og félagslegri stöðu borgarinnar?
Baldvin Jónsson, 21.5.2010 kl. 18:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.