Hannes Hólmsteinn er ekki fréttir dagsins!!
27.8.2009 | 21:30
Eyðum ekki tíma okkar eða orku í þetta hirðfífl kvóta- og bankakerfisins. Ef ykkur leiðist getið þið einfaldlega YouTube'að hann og fengið upp þá svörtu kómedíu sem þessi drottningarviðtöl voru við gaurinn meðan að allt var voða 2007.
Eins og ég er nú almennt ánægður með fréttamennsku Þóru Kristínar að þá er ég á því að fréttamat hennar hafi feilað illilega í dag. Það er allt í lagi að minnast á það að mótmælendur hafi ekki verið ánægðir með mætinguna hans í dag, en hvað er málið með þetta drottningarviðtal??
Fréttir dagins eru góð mæting á mótmæli sem voru haldin að undirlagi Frosta nokkurs. Afar góð hugmynd þar sem hvatt var til hávaða í 20 mínútur.
Það er næsta víst að ráðamenn landsins gera sér sterka grein fyrir afstöðu okkar sem mættum í dag. Þeir vita hins vegar væntanlega afar lítið um hvað þið hin viljið.
Aðsúgur að Hannesi Hólmsteini | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Gerandi
Lýðræðis- og umhverfissinni og trúi því enn að jafnvægi náist helst í samfélagi með frjálsum markaði, að því tilskyldu að hið opinbera sinni skyldu sinni við eftirlit. Trúi á að hægt sé að nýta með sjálfbærni náttúruna okkar í meðalhófi, okkur og kynslóðum framtíðarinnar til hagsældar. Áhugamaður um lífið og hugmyndir mannanna um lífið.
Var varaþingmaður Birgittu Jónsdóttur í Reykjavík Suður fyrir Hreyfinguna. Sat í stjórn Borgarahreyfingarinnar og tók þátt í að koma á fót framboði um nýjar hugmyndir. Er félagi þar enn. Starfa með Hreyfingunni sem að nú hefur verið stofnuð og á mér þann draum að allir þeir grasrótarhópar sem eiga sameiginlega hagsmuni í starfi að lýðræðisumbótum, geti sameinast um þau. Ekki spyrja í hvaða liði einhver er - spyrðu frekar hvað hægt sé að gera til þess að koma sameiginlegum hagsmunum okkar allra í gegn. Breytum kerfinu á sama tíma og við breytum okkar eigin hugsunarhætti. Þessi liðahugmynd er okkur öllum afar takmarkandi.
Sendu mér línu, tölvupóstur: baddiblue@gmail.com
Hér verður skrafað bæði um alvöru málsins og lagt fram eitthvað til skemmtunar, a.m.k. mér til skemmtunar :)
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2013
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Rannsóknarskýrslan
- Hreyfingin
- Birgitta Jónsdóttir
- Þór Saari
- Þórður Björn Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Baldvin Björgvinsson
- Daði Ingólfsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lilja Skaftadóttir
- Jón Þór Ólafsson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Egill Jóhannsson
- Margrét Sigurðardóttir
- Valgeir Skagfjörð
- Vésteinn Gauti Hauksson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Einhver Ágúst
- Andrés Jónsson
- Arinbjörn Kúld
- Sigurður Hrellir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Bjarni Harðarson
- Marinó G. Njálsson
- Hallur Magnússon
- Fannar frá Rifi
- Sævar Finnbogason
- Ágúst Guðbjartsson
- Axel Jóhann Axelsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Björn Heiðdal
- Bragi Sigurðsson
- Brynjólfur Rafn Fjeldsted
- Báran
- Börkur Hrólfsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- Dofri Hermannsson
- Egill Jón Kristjánsson
- Einar Ben
- Einar Ben
- Einar Sigvaldason
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elín Sigríður Grétarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fjarki
- Freyr Hólm Ketilsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frosti Sigurjónsson
- Gaukur Úlfarsson
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Guðmundur Gunnarsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Hjálmar
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Heidi Strand
- Helga Dóra
- Himmalingur
- Hinrik Fjeldsted
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Baldursson
- Hulda Lind Eyjólfsdóttir
- Huldukonan
- Héðinn Björnsson
- Hörður B Hjartarson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhann Þorsteinsson
- Johann Trast Palmason
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Júlíus Björnsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kokkurinn Ógurlegi
- Konráð Ragnarsson
- Kári Sölmundarson
- LiljaLoga
- Linda
- Magnús Kristjánsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Morgunblaðið
- Mörður Ingólfsson
- Neddi
- Pétur Örn Guðmundsson
- Púkinn
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Guðnadóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Sigurlaug B. Gröndal
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Sturluson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Steinn Hafliðason
- Sunna Dóra Möller
- Svanur Heiðar Hauksson
- Sveinbjörn Geirsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Tanni Ofurbloggari
- Tilkynning
- Torfi Frans Ólafsson
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Valgarður Guðjónsson
- Vefritid
- Vernharð Þorleifsson
- Viktor Einarsson
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- hreinsamviska
- kreppukallinn
- Námsmaður bloggar
- Árni þór
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Örn Ólafsson
- Óskar
- Óskar Þorkelsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þórður Guðmundsson
- Sigurjón Þórðarson
- Jónas Örn Jónasson
- Magnús Jónsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Elma Guðmundsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Guðmundur Bergkvist
- Baldur Gautur Baldursson
- Helga Þórðardóttir
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Sigurður Ingi Kjartansson
- AK-72
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Aron Ingi Ólason
- Alexandra Briem
- Alfreð Símonarson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Brjánn Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Véfréttin
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Sigurjón
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
- Axel Pétur Axelsson
- Einar Guðjónsson
- Dúa
- Sævar Einarsson
- Hlédís
- Laufey B Waage
- Guðmundur Bogason
- Vaktin
- Ásthildur Jónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Balinn
- Ingifríður Ragna Skúladóttir
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Ómar Bjarki Smárason
- Björn Halldór Björnsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Þorvaldur Geirsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Birgir Skúlason
- Margrét Rósa Sigurðardóttir
- Jóhannes Þór Skúlason
- Bjarki Steingrímsson
- Varmársamtökin
- Þórólfur Ingvarsson
- Jón Ingi Þorvaldsson
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- BJÖRK
- Madhav Davíð Goyal
Athugasemdir
Nákvæmlega, Mótmælin hefðu átt að vera fréttin. Öllum slétt sama um HHG.
Þóra er mér mikil ráðgáta og mér virðist hennar eigin pólitísku viðhorf ráða mestu um hennar fréttaflutning almennt í hennar störfum.
Ég tók líka eftir því að Stöð 2 ólíkt Rúv, minntist ekkert á mótmælin.
Hver gæti verið skýringin á því??
Pétur Halldórsson (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 21:49
Tók eftir á myndum að ólíkt mótmælendum búsáhaldabyltingarinnar var ískyggilega mikið af fólki í nýpressuðum jakkafötum þarna. Enda er andstaðn við IceSave eingöngu yfirvarp því þetta eru að mestu Sjálfstæðis- og Framsóknardindlar sem þarna fara hæst og við vitum nákvæmlega hvað Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði sér með IceSave strax í Október/November 2008. Framsókn hefur einfaldlega sama trúverðugleika eftir að einkavæðingin var skrifuð á reikning þeirra - auk auðvitað að IceSave fékk að verða til í skjóli Valgerðar Sverrisdóttir.
ÉG segi einfaldlega eins og satt er Baddi - að þó ég sé ekkert sáttur við hvernig þetta mál muni fara að þá er ég fullviss um að það er að fara eins vel og það mögulega hefði getað farið og pottþétt að það fer mun betur en SJálfstæðisflokkurinn ætlaði að ganga frá því í glundroðanum sem uppi var í samfélaginu sl. haust.
Guðanna bænum standið, þið Borgarhreyfingarfólk, nú við eitthvað sem þið sögðuð í kosningabaráttunni og hættið að vinna með Sjálfstæðisflokknum í einu og öllu.
Þór Jóhannesson, 27.8.2009 kl. 22:02
Kæri Þór, ég var í bænum og get ekki sagt að ég hafi orðið var við mikið af nýpressuðum jakkafötum - en þau fáu sem mættu hefðu að sjálfsögðu átt að hunskast til að mæta í janúar þegar að þörf var á.
Ég er sammála þér með það að ég held að við séum komin á bestu mögulegu lendingu í málinu - að því gefnu að Bretar og Hollendingar samþykki fyrirvarana. Að öðrum kosti hafa þeir nákvæmlega ekkert vægi sem viðauki við samning eftir undirritun.
Þessi lending á Icesave er algerlega í anda stefnunnar okkar, enda tókst Þór Saari með mikilli elju að koma okkar málum öllum inn í fyrirvarana. Ég tek þó undir þér með það að mér þykir afar óþægilegt hvað leiðir þingmannanna hafa legið mikið samferða einhverjum Sjálfstæðisflokksmönnum í málinu. Maður getur bara reynt að vona að Bjarni Ben haldi áfram að tala í kross og þvælu og endalausu. Ekkert eitt verkfæri þeirra hefur dregið eins úr trúverðugleika þeirra og þessi formaður þeirra.
Baldvin Jónsson, 27.8.2009 kl. 22:23
Hannes Hólmsteinn var að gera það sem hann hefur fengið að gera í áratugi, ,,fíflað" fjölmiðlafólk !
Þarna sannast það sem oft hefur verið sagt, fjölmiðlafólk gerir bara það sem eignedurnir segja þeim að gera !
JR (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 22:58
Ég hef verið nokkuð umburðalyndur við fréttamenn RÚV, eitt sinn skaut ég á þá varðandi dýrkun þeirra á Obama BNA forseta; maðurinn var í fréttatímum daglega... Mátti ekki ropa þá var hann í kvöldfréttunum.
En í kvöld þá var fréttastjórinn ekki jarðtengdur; uppákoman var eins og einn bloggari nefnir "Absúrd".
Hannes Hólmsteinn er sannarlega hirðfífl þjóðarinnar, en ég vil trúa því að þetta sé góður drengur en bara svona óskaplega einfaldur og vammlaus.
Viðtalssenan sló síðan allt út. Hannes jós úr viskubrunni sínum, fullkomlega sannfærður um eigið ágæti (sem fyrr), og sjálft Alþingishúsið í baksýn.
Ég spurði mig: Hvað hefur Alþingishúsið að gera með útgáfu HHG á bók ?
Ég tel að það þurfi að fara að endurnýja staffið á fréttastofu RÚV (en ekki hafa mig fyrir því)
Ábekkingurinn (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 23:29
Var hann ekki eina fréttin frá þessum háværu mótmælum?? Hannes fékk alla athyglina og fréttamennirnir gerðu aðsúg að honum og engum öðrum???
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.8.2009 kl. 00:15
Þór það er hinn mesti misskilningur að þetta hafi verið jakkafatalið. Þarna var góð blanda af kverúlöntum, kommúnistum, borgarafólki, einn og annar hannes hólmsteinn og hún Jóna Kolbrún og fleiri mætir bloggarar.
Þetta voru eiginlega bloggaramótmæli enda blásið til þeirra hér á blogginu.
Nokkuð var einnig um erlendt fjölmiðlafólk og útlendinga en þeir voru ekki í jakkafötum.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 28.8.2009 kl. 00:25
Mér fanst Hannes bara fyndin .. Þetta var eitt besta skemmtiefni dagsins í dag. Ef þú berð það saman við það sem Hannes sagði í viðtalið á stöð tvö.. þá kemur berlega í ljós hversu mikið þessi gaur talar í hringi.
hann er brandari brandaranna þessi maður...
Brynjar Jóhannsson, 28.8.2009 kl. 02:16
Æ mér líður bara illa að horfa eða heyra Hannes. Hann hefur nákvæmlega sömu áhrif á mig og Birgir Ármannsson. Ég vil ekki vera með neinar persónuárásir eða slíkt en þetta er eins og með rauðhærðu afturgönguna sem rændi mig nætursvefni mörg ár barnæsku minnar... Það er bara ekki hollt fyrir sálina mína að hafa suma fyrir augum, augum eða öðrum skilningarvitum, mér fer bara að líða svo illa.
En kannski eru einhverjir þarna úti (in a galaxy far far away) sem njóta þess að hlusta á hvað Hannes hefur að segja
Aðalheiður Ámundadóttir, 28.8.2009 kl. 21:33
vá ég man eftir rauðhærðu afturgöngunni sem snéri öfugt í strætó og kom í veg fyrir nætursvefn svo dögum skipti eftir áhorfið - og aldrei hef ég séð samlíkingu sem smell hittir naglann á höfuðið og þessa hjá Aðalheiði enda hef ég oft bent á hversu líkir þeir Birgir og Hannes eru í raun.
Þór Jóhannesson, 28.8.2009 kl. 21:57
Látið heyra, hvaða afturganga er þetta sem vísað er til?
Baldvin Jónsson, 28.8.2009 kl. 22:22
Baldvin: það þarf a halda því til haga, að ef einhver hefði átt að mæta til að mótmæla, því að stefnu og sannfæringu kapítalismans væri kennt um Icesave, þá væri það Hannes Hólmsteinn, það að kenna stefnu um misgerðir manna, er eins og að segja að það sé barþjóninum að kenna að byttan dettur í það, ég eins og þú skildi samt ekki þörfina fyrir viðtal við manninn þarna, honum var frjálst að mæta, eins og Davíð gerði um daginn, en viðtal var bara klaufaleg tilraun til að baða sig í óverðskulduðu sviðsljósi, mótmæla sem áttu að standa í 20 mínútur, frekar ómerkilegt og málstaðnum og Hannesi sjálfum til minnkunar.
Magnús Jónsson, 28.8.2009 kl. 23:17
Ég veit ekki alveg hvort Aðalheiður á við sömu afturgöngu og ég en þessi sem ég er að vitna í var í einhverju íslensku sjónvarpsefni í kringum 1980 til 1985 og hræddi líftóruna úr börnum sem sáu "óvart".
Þór Jóhannesson, 29.8.2009 kl. 19:48
Jú jú, Sjónvarpsmynd um draugagang í sjónvarpshúsinu. Kristján Franklín lék aðalhlutverkið og leikarinn sá vekur ennþá ugg þegar ég sé honum bregða fyrir. Skór afturgöngunnar vöktu sérstakan óhug en þeir voru háhælaðir og eiturgrænir...
Aðalheiður Ámundadóttir, 29.8.2009 kl. 20:20
Ég tek fram að ég hef ekki séð Hannesi bregða fyrir í slíkum fótabúnaði... Það væri nú til að kóróna allt!
Aðalheiður Ámundadóttir, 29.8.2009 kl. 20:22
Einmitt gott ef myndin hét ekki bara "Rauðhærða afturgangan".
Þór Jóhannesson, 29.8.2009 kl. 20:28
Nei, ég gúgglaði þetta hún hét "Draugasaga" Það ætti að vera hægt að sjá sýnishorn úr myndinni í þessum þætti en einhvera hluta vegna gengur það ekki upp hjá mér...
Aðalheiður Ámundadóttir, 29.8.2009 kl. 20:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.