Birgir Ármannsson undrandi á "heiftinni" sem felst í nauðsynlegum hreinsunum í stjórnsýslunni
3.2.2009 | 17:44
Birgir segir í viðtalinu meðal annars að: "...uppsagnir seðlabankastjórana og umræður um pólitískar hreingerningar í stjórnkerfinu hafa á sér afar ógeðfelldan blæ."
Hversu ógeðfellt er það þá Birgir að setja þjóðarbúið í heild sinni algerlega á höfuðið og biðjast ekki einu sinni fyrirgefningar á verknaðinum?
Eftir að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ríkt með litlum hléum frá upphafi fjórða áratugarins er það nú svo komið að embættismannakerfið er nánast alfarið þeirra fólk. Fólk sem margt hefur staðið sig með ágætum, en einnig margt fólk sem hefur ítrekað látið hagsmuni flokksins koma fram fyrir hagsmuni þjóðarinnar. Þetta þarf nú allt að rannsaka. Það er ógeðfelldur verknaður Birgir, vissulega. En hans væri ekki þörf ef að þið hefðuð haft í ykkur þá auðmýkt að koma einfaldlega upp á yfirborðið þessum vafaatriðum sem hafa verið í umræðunni og jafnframt axlað ábyrgð á gjörðum ykkar og algeru eftirlitsleysi og vanhæfni löggjafans og framkvæmdavaldsins gagnvart útrásinni.
Nú segja allir að enginn hefði séð þetta fyrir - ekki þjóðin heldur. Það er reyndar ekki alveg rétt og ýmsir sem að hefur verið bent á að sáu þetta fyrir - þeir voru hins vegar umsvifalaust dæmdir kjánar, að Davíð Oddssyni undanskildum, sem virðist hreinlega bara hafa verið hunsaður í október 2007 þegar að hann, að eigin sögn, reyndi að vara við ástandinu.
Þjóðin hinsvegar treysti ykkur fyrir sér - við réðum ykkur til starfans vegna yfirlýsinga ykkar um eigið ágæti og þá sérstaklega þegar kæmi að traustri efnahagsstjórn. Þjóðin er ekki sérfræðingar, þjóðin er ekki með fingurna á púlsinum í rekstra fjármálastofnana.
Þið Birgir áttuð hins vegar að vera það.
Pólitískar hreinsanir og heift | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Gerandi
Lýðræðis- og umhverfissinni og trúi því enn að jafnvægi náist helst í samfélagi með frjálsum markaði, að því tilskyldu að hið opinbera sinni skyldu sinni við eftirlit. Trúi á að hægt sé að nýta með sjálfbærni náttúruna okkar í meðalhófi, okkur og kynslóðum framtíðarinnar til hagsældar. Áhugamaður um lífið og hugmyndir mannanna um lífið.
Var varaþingmaður Birgittu Jónsdóttur í Reykjavík Suður fyrir Hreyfinguna. Sat í stjórn Borgarahreyfingarinnar og tók þátt í að koma á fót framboði um nýjar hugmyndir. Er félagi þar enn. Starfa með Hreyfingunni sem að nú hefur verið stofnuð og á mér þann draum að allir þeir grasrótarhópar sem eiga sameiginlega hagsmuni í starfi að lýðræðisumbótum, geti sameinast um þau. Ekki spyrja í hvaða liði einhver er - spyrðu frekar hvað hægt sé að gera til þess að koma sameiginlegum hagsmunum okkar allra í gegn. Breytum kerfinu á sama tíma og við breytum okkar eigin hugsunarhætti. Þessi liðahugmynd er okkur öllum afar takmarkandi.
Sendu mér línu, tölvupóstur: baddiblue@gmail.com
Hér verður skrafað bæði um alvöru málsins og lagt fram eitthvað til skemmtunar, a.m.k. mér til skemmtunar :)
33 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Eldri færslur
2013
2010
2009
2008
2007
Bloggvinir
- Rannsóknarskýrslan
- Hreyfingin
- Birgitta Jónsdóttir
- Þór Saari
- Þórður Björn Sigurðsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Baldvin Björgvinsson
- Daði Ingólfsson
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Lilja Skaftadóttir
- Jón Þór Ólafsson
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Ásta Hafberg S.
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Egill Jóhannsson
- Margrét Sigurðardóttir
- Valgeir Skagfjörð
- Vésteinn Gauti Hauksson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Einhver Ágúst
- Andrés Jónsson
- Arinbjörn Kúld
- Sigurður Hrellir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Bjarni Harðarson
- Marinó G. Njálsson
- Hallur Magnússon
- Fannar frá Rifi
- Sævar Finnbogason
- Ágúst Guðbjartsson
- Axel Jóhann Axelsson
- Aðalsteinn Bjarnason
- Berglind Nanna Ólínudóttir
- Björn Heiðdal
- Bragi Sigurðsson
- Brynjólfur Rafn Fjeldsted
- Báran
- Börkur Hrólfsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- Dofri Hermannsson
- Egill Jón Kristjánsson
- Einar Ben
- Einar Ben
- Einar Sigvaldason
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elín Sigríður Grétarsdóttir
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fjarki
- Freyr Hólm Ketilsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frosti Sigurjónsson
- Gaukur Úlfarsson
- Greta Björg Úlfsdóttir
- Gunnar Björn Björnsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir
- Guðjón Baldursson
- Guðmundur Gunnarsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Hjálmar
- Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
- Haraldur Hansson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Baukur
- Heidi Strand
- Helga Dóra
- Himmalingur
- Hinrik Fjeldsted
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlekkur
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Baldursson
- Hulda Lind Eyjólfsdóttir
- Huldukonan
- Héðinn Björnsson
- Hörður B Hjartarson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jóhann Þorsteinsson
- Johann Trast Palmason
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Júlíus Björnsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kokkurinn Ógurlegi
- Konráð Ragnarsson
- Kári Sölmundarson
- LiljaLoga
- Linda
- Magnús Kristjánsson
- Margrét Sverrisdóttir
- Morgunblaðið
- Mörður Ingólfsson
- Neddi
- Pétur Örn Guðmundsson
- Púkinn
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Guðnadóttir
- Sigríður Jósefsdóttir
- Sigurlaug B. Gröndal
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Sturluson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Steinn Hafliðason
- Sunna Dóra Möller
- Svanur Heiðar Hauksson
- Sveinbjörn Geirsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Tanni Ofurbloggari
- Tilkynning
- Torfi Frans Ólafsson
- Unnur Arna Sigurðardóttir
- Valgarður Guðjónsson
- Vefritid
- Vernharð Þorleifsson
- Viktor Einarsson
- Vilhjálmur Árnason
- gummih
- hreinsamviska
- kreppukallinn
- Námsmaður bloggar
- Árni þór
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Örn Ólafsson
- Óskar
- Óskar Þorkelsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Þórður Guðmundsson
- Sigurjón Þórðarson
- Jónas Örn Jónasson
- Magnús Jónsson
- Indriði Haukur Þorláksson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Elma Guðmundsdóttir
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Guðmundur Bergkvist
- Baldur Gautur Baldursson
- Helga Þórðardóttir
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Sigurður Ingi Kjartansson
- AK-72
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Aron Ingi Ólason
- Alexandra Briem
- Alfreð Símonarson
- Jakob Þór Haraldsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Sveinbjörn Eysteinsson
- Brjánn Guðjónsson
- Elfur Logadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Véfréttin
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Sigurjón
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Sveinn Margeirsson og Rakel Gylfadóttir
- Axel Pétur Axelsson
- Einar Guðjónsson
- Dúa
- Sævar Einarsson
- Hlédís
- Laufey B Waage
- Guðmundur Bogason
- Vaktin
- Ásthildur Jónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Balinn
- Ingifríður Ragna Skúladóttir
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Ómar Bjarki Smárason
- Björn Halldór Björnsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Þorvaldur Geirsson
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Birgir Skúlason
- Margrét Rósa Sigurðardóttir
- Jóhannes Þór Skúlason
- Bjarki Steingrímsson
- Varmársamtökin
- Þórólfur Ingvarsson
- Jón Ingi Þorvaldsson
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- BJÖRK
- Madhav Davíð Goyal
Athugasemdir
Hún er alltaf svolítið undarleg og reyndar vægast sagt vafasöm þessi orðræða. Birgir talar um „pólitíska heift“ og Jón um „pólitíksar keilur“. Það er hins vegar ekki spurning um að það þarf að hreinsa út úr Seðlabankanum. Hefði auðvitað átt að víkja Davíð Oddssyni frá fyrir löngu!
En ég hef auðvitað áhyggjur af kostnaðinum og hefði gjarnan viljað sjá þeim vikið frá sem ríkisstjórnin telur nauðsynlegt að víkja frá með þeim rökum að þeir hefðu fyrirgert rétti sínum til biðlauna. Sama hefði ég viljað sjá hvað varðar stjórana í Fjármálaeftirlitinu og fráfarandi ráðherra.Tólf mánuðir eru a.m.k. alltof langur tími!
Rakel Sigurgeirsdóttir, 3.2.2009 kl. 19:11
Eins manns heift er annars manns umburðarlyndi. Ég er alveg gáttaður á því umburðarlyndi sem búið er að sýna seðlabankastjóra, sjálfstæðisráðherrum og lykil embættismönnum. Burt með hyskið.
Birgir Ármannsson er stuttbuxnastrákur í jakkafötum, steyptur í sama mót og Guðlaugur Þór, Gísli Marteinn, Þorgerður Katrín, Hanna Birna, Ásdís Halla og fleiri vonbiðlar valdastéttarinnar. Þessi einræktaða stjórnmálastéttartýpa, homo politicus, er ekki einskorðuð við Sjálfstæðisflokkinn, Birkir Jón, sé þig og hækka um þúsund, Jónsson er framsóknarútgáfan af sömu týpu. Þetta lið er komið á fullt í framboðsvinnu, sem ég spái að verði ljótustu framboð sem sögur fara af.
Sigurður Ingi Jónsson, 3.2.2009 kl. 20:30
"Hversu ógeðfellt er það þá Birgir að setja þjóðarbúið í heild sinni algerlega á höfuðið og biðjast ekki einu sinni fyrirgefningar á verknaðinum?" Hmmmmm...? Athyglisverð nálgun!
Flosi Kristjánsson, 3.2.2009 kl. 20:50
Athygliverð já, og kaldhæðnislega rétt túlkun á atburðum. Hverra annarra en ráðamanna var það að halda utan um regluverkið og vernda þjóðina? Birgir er að virðist eins og svo margir blámenn, alveg blár gagnvart eigin aðkomu að málum.
Baldvin Jónsson, 3.2.2009 kl. 20:54
Nákvæmlega! Þetta fólk er á háum launum frá okkur og það er beinlínis þeirra HLUTVERK að sjá slíka hluti fyrir og ekkert helv.... kjaftæði um annað. Nú koma þeir fram umvörpum sem hvítþvegnir englar hafandi ekkert gert og alsaklausir.
Arinbjörn Kúld, 3.2.2009 kl. 22:22
Það er ekki von að slímuga slepjan og spillingarsauðurinn Birgir Ármannsson átti sig á því að það þurfa að fara fram pólitískar hreinsanir í stjórnkerfinu og ekki síður dómskerfinu eftir margra ára gjörspilltar skipanir og ráðningar í opinberar stöður af hálfu spillingarflokksins sem kallar sig sjálfstæðisflokk. Sá armi flokkur er búinn að gjöreyðileggja allt siðferði í stöðuveitingum með því að úthluta ættingjum, vinum og flokksfélögum öllum mikilvægum embættum og stöðum á vegum ríkisins. Og ógeðfelldustu skemmdarverkin hafa þeir unnið á dómstólunum þannig að meira að segja hæstiréttur sem átti að vera hlutlaus og óvéfengjanlegur og fólk átti að bera virðingu fyrir er orðin að ógeðslegri rotþró sjálftæðisspillingarinnar sem ekki nokkur maður ber lengur virðingu fyrir og flestir fyrirlíta ...a.m.k. geri ég það. Og ekki er lögreglan í skárra ástandi eftir skemmdarverk spillingaraflanna. Eftir allt of langt stjórnartímabil þessa glæpahyskis sem skipar spillingarflokkinn sem kallar sig sjálfstæðisflokk er kerfið maðkað í gegn og pólitískar hreinsanir því algjör forsenda fyrir endurreisn trausts og virðingar fyrir stofnunum ríkisins.
corvus corax, 3.2.2009 kl. 22:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.