Mislas fyrst - sýndist standa þarna "Ár efnahagsFramfara"
29.12.2008 | 13:22
Krossbrá, en að sjálfsögðu var um minn misskilning að ræða.
Árið 2008 er án nokkurs vafa ár stærsta efnahagshruns sem yfir heiminn hefur hrunið, vona bara innilega að 2009 muni ekki slá því við. Það eru allar líkur á því að kreppan sé bara rétt að byrja, bæði hér heima á Íslandi og eins um alla Evrópu. Bretar, sem dæmdu okkur hvað harðast, berjast nú í bökkum á öllum vígstöðvum og verður að teljast afar ólíklegt að Gordon Brown njóti til mikið lengri tíma þessara auknu vinsælda sem hann hefur öðlast undanfarnar vikur, meðal annars vegna viðbragða við hruni íslensku bankanna í Bretlandi.
En hvers vegna erum við enn að lepja upp fréttir eftir greiningardeildum bankanna? Hvers vegna er verið að hlusta eftir ráðleggingum sama fólks og sagði okkur korter í brotlendingu að hér væri allt í stakasta lagi, já hreinlega bara stóðu bankarnir afar vel að mati þessa sama fólks. Er virkilega svo illa komið fyrir okkur að við eigum ekki til betra fólk til þess að leysa þessa einstaklinga af? Verðum við almenningur ekki að mega treysta því að "greiningar" slíkra deilda taki ekki fyrst og fremst mið af hagsmunum bankans sjálfs? Ég persónulega mun að minnsta kosti ekki treysta þesum deildum meðan að þar sitja áfram sömu einstaklingar og mata mig á sínum hugmyndum og draumsýnum.
Við munum því miður flest, það er að segja við venjulega fólkið sem var ekki að tapa einhverjum milljörðum (þrátt fyrir að eiga líklega einn eða tvo milljarða eftir í varasjóði) af hlutabréfum sínum, minnast þessa árs sem uphafsins af erfiðleikunum. Næstu ár munu efalaust verða okkur miklu mun erfiðari en lok ársins 2008 haldi stjórnvöld sig við þá stefnu að ætla hinum minnstu að greiða hlutfallslega mest.
Ég vil skoða betur meðal annars hugmyndir Vilmundar Gylfasonar varðandi ýmis mál, ég vil skoða ítarlega hvað má nýta af aðgerðum Svía eftir hrunið þar snemma á síðasta áratug. Ég vil að við skoðum ALLAR mögulegar aðrar leiðir en að leggja greiðslubyrðina af fullum þunga á þá sem minnst mega við því hér á landi. Við einfaldlega bara verðum að sækja meira af fjármagni til þeirra sem orsökuðu stöðuna hvort eð er að stærstum hluta.
Það voru ekki litla Gunna og litli Jón sem orsökuðu þessa óðabólu og þetta algera hrun.
![]() |
Ár efnahagshamfara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þegar ég las fréttina áðan las ég þetta einnig sem "efnahagsframfara". Er ekki mögulegt að blaðamaður hafi misritað og síðar leiðrétt. Mér líkar allavega betur við þann möguleika en að ég hafi sjálfur gert eitthvað vitlaust.
Þorgeir Ragnarsson (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 13:36
Gott að lesa skrifin þín, Baldur.
Og við eigum svo sannarlega til hreint frábæra einstaklinga til að taka um stjórnvölinn. Góðir hlutir gerast hægt, þótt ekki megi sofna á verðinum. Þess vegna þarf að: Staglast á, vera vakandi og vera að, upplýsa og minna á, eins og þú ert að gera hér, mótmæla áfram með öllum mögulegum og mismunandi aðferðum, fá umheiminn til liðs við okkur, virkja mannauðinn okkar, - hug og hjatravit fólksins í landinu, .....þetta kemur, þetta kemur. Þetta tekst!
Baráttu, Nýárs og hlýjar kveðjur,
Ingibjörg SoS, 29.12.2008 kl. 17:13
Gott mál hjá þér Baldvin. Litla Gunna og litli Jón tóku reyndar líka velmeginina að láni eins og aðrir en í lítilli stærð í samhengi við velmegunarlán bankanna og annarra útrásarvíkingafjárfesta. Gaman að þú skulir minnast á hugmyndir Vilmundar Gylfasonar. Hans "óvinur" var að hann var kynslóð á undan samtímapólitikusum á sínum tíma. Óhætt að segja að hann hafi lagt allt í sölurnar. Reyndi að berjast við spillingaröflin á áttunda áratugnum og hlaut skammir fyrir. Hafa fleiri verið að minnast á hann að undanförnu s.s. hugmynda hans um kosningu á forsætisráðherra, landið yrði eitt kjördæmi o.fl. Vel þess virði að dusta rykið af grundvallarhugmyndum VG og þá kannski pælingunni með Bandalag jafnaðarmanna? Auðvitað eigum við læra af sögunni og góðum aðgerðum annarra.
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 20:51
Já, hvernig væri að endurreisa bandalag jafnaðmanna? Nú er rétti tíminn.
kolbrún (IP-tala skráð) 30.12.2008 kl. 05:19
Já þar er ég aldeilis sammála þér Kristinn, en hún er þó gjarnan krafturinn sem þarf til þess að koma breytingum við. Við annaðhvort hummum þetta áfram eða gerum eitthvað í málunum.
Ég mun leggja mitt af mörkunum til þess að leita nýrra leiða, meira um það upp úr áramótunum.
Baldvin Jónsson, 30.12.2008 kl. 22:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.