Takk Bjarni fyrir slaginn - hann varð styttri en til stóð en það er við mikinn lýðræðishalla að etja

Já og er enn fyrir okkur í Borgarahreyfingunni.

Það eru nokkrir þröskuldar sem þarf að yfirstíga til þess að geta boðið fram á Íslandi. Þröskuldar sem voru upp settir af fjórflokknum til þess að virðist að koma í veg fyrir að ný lítil framboð næðu fram að ganga.

Við erum að tala um hluti eins og að til þurfi 2520 undirskriftir í eiginhandarritun þeirra sem mæla með að framboðið fái fram að ganga, hluti eins og 5% þröskuldinn sem svo mikið hefur verið um rætt. Það er gríðarleg vinna í því fólgin að stilla upp alls 126 einstaklingum í framboð til þess að geta boðið fram í öllum kjördæmum og þurfa svo að fá 30-40 sinnum þann fjölda sem meðmælendur með framboðinu.

Hvers vegna þarf svona miklar kröfur? Fjórflokkurinn segir að það sé til þess að koma í veg fyrir einhver grínframboð. En bíddu, má það ekki líka í lýðræðisríki?

Er ekki staðreyndin sú að þeim líður orðið svo vel með sínar hátt í 400 milljónir í ríkisstyrki til að auglýsa sjálfa sig í framboði að þeir vilja einfaldlega tryggja að þeir sitji einir að kjötkötlunum. Já, það eru um 380 milljónir sem að flokkarnir úthluta sér til þess að heyja kosningabaráttu á kostnað kjósenda, kjósenda sem svo jafnvel hafa lítinn áhuga á þeim og ætla sér að kjósa eitthvað annað.

Borgarahreyfingin - þjóðin á þing er þrátt fyrir þessa þröskulda á fljúgandi ferð og við erum afar bjartsýn á gott gengi í komandi kosningum. Við byggjum á mjög góðri lýðræðislega saminni stefnuskrá og mörgum afar góðum frambjóðendum. Frambjóðendum sem að hafa staðið vaktina frá því í byrjun október í mótmælum og aðgerðum, fólki sem hefur sýnt fram á að það er tilbúið til þess að berjast sannarlega fyrir heimilin í landinu og eru ekki bundin af tengslum við sérhagsmunahópa um allt samfélagið. Frambjóðendum sem eru um það sammála að ráða eigi síðan sérfræðinga til þess að stýra ráðuneytunum, bæði ráðuneytisstjórunum og ráðherrum. Það er lágmarkskrafa að málaflokkum sé stýrt af fólki sem hefur til þess bæra menntun og reynslu.

X við O er að taka afstöðu með heimilunum í landinu.


mbl.is Hættir við þingframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mér finnst afar skynsamlegt hjá Bjarna Harðar og félögum að hætta við framboðið. Það er bara ekki rétta leiðin til að ná að hafa áhrif að bjóða fram. Vona svo sannarlega að þið í Borgarahreyfingunni gerið ykkur grein fyrir þessu líka. Það er mun sterka að mynda þverpóitík samtök um að koma ákveðnum málum eins og lýðræðisumbótum á. Hagsmunasamtök heimilanna eru gott dæmi um slíkt.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.4.2009 kl. 23:34

2 Smámynd: Baldvin Jónsson

Sæll Reynir og takk fyrir innlitið. Það er nú svo að enginn veit sína ævi fyrr en öll er, en ég hef enn þá trú á að við munum ná 7-10% fylgi. Þetta kemur allt í ljós væntanlega á næstu 2-3 vikum.

Baldvin Jónsson, 4.4.2009 kl. 00:18

3 identicon

Það kom ég verulega á óvart að L-listinn hafi gefist upp því ef aðstæður eru ekki fyrir hendi í dag fyrir ný framboð þá er okkur ekki viðbjargandi.
Hér fyrir neðan er viðtal við mig í Morgunblaðinu þar sem ég fór fyrir framboði Reykjanesbæjarlistans í sveitarstjórnarkosningunum 2006 í Reykjanesbæ sem var þá 5 stærsta sveitarfélagið á landinu.
Framboðið kostaði tæpar 320 þúsund krónur og framlag til framboðsins frá fyrirtækjum var um 215 þúsund krónur þannig að ég borgaði úr mínum vasa um 105 þúsund krónur.
Reykjanesbæjarlistinn fékk í þessum kosningum 0,6% atkvæða.  Framboðið mældist hæst 1.7% í skoðunarkönnunum. Sjálfstæðisflokkurinn er hvergi stærri en í mínum bæ og eru þar með hreinan meirihluta. Þar er nú mesta atvinnuleysið á Íslandi og þar er mesta spillingin ef marka má DV frettir síðustu daganna um klíkunna sem fer með völdin í mínum heimabæ.
Kjósandinn á alltaf síðasta orðið hvað hann gerir í kjörklefanum sama hvort allt sé í góðu eða ei í þjóðfélaginu. Ábyrgðin er mikill hjá okkur sjálfum því hvert okkar er brot sem býr til gott og flott lýðræði ef sem flestir taka þátt í stað þess eins og vil brenna við að klíkur myndast í kringum framboðin hvort sem þau eru gömul eða ný sem er gott fóður fyrir spillingu og ólýðræðisleg vinnubrögð. 

Eftir því sem fleirri rækta sjálfa sig til að taka þátt í stjórnmálum því betra og sterkara verður lýðræðið!

Sé lýðræðið veikt og sjúkt er það okkur um að kenna sem þjóð!  

Ég leyfi mér að senda fréttaviðtal hér fyrir neðan sem Morgunblaðið tók við mig sem oddvita Reykjanesbæjarlistans. Ég skora á öll ný framboð að gefast ekki upp því nú er tíminn og nú er nauðsyn að berjast til síðasta manns. 
Miðvikudaginn 24. maí, 2006 - Innlendar fréttir
Baldvin Nielsen, R-lista

Tryggt verði fyrir alþingiskosningar að álver rísi

Eftir Helga Bjarnason

Baldvin Nielsen
Baldvin Nielsen
Á hvað leggur þú áherslu við uppbyggingu atvinnu í Reykjanesbæ á komandi kjörtímabili? Ert þú fylgjandi eða andvígur þeirri vinnu sem fram fer við undirbúning álvers í Helguvík?




Á hvað leggur þú áherslu við uppbyggingu atvinnu í Reykjanesbæ á komandi kjörtímabili? Ert þú fylgjandi eða andvígur þeirri vinnu sem fram fer við undirbúning álvers í Helguvík?

"Reykjanesbæjarlistinn mun leggja áherslu á að styðja sérstaklega við minni og meðalstór framleiðslufyrirtæki ásamt fyrirtækjum sem eru í ferðaþjónustu sem vilja hefja rekstur hér í Reykjanesbæ og þeim sem eru hér fyrir en eiga erfitt uppdráttar eins og fiskiðnaðurinn. Við viljum álver í Helguvík og viljum ekki sjá leigusamninga með fyrirvörum sem búa til væntingar hjá kjósendum svona rétt fyrir kosningar, heldur viljum við að tryggt verði fyrir næstu alþingiskosningar að álverið rísi. Það er ríkisstjórnin sem ræður hvar síðasta álverið verður hér á landi þar sem Ísland er aðili að Kyoto-bókuninni. Nýjustu tíðindin í álversmálum geta hæglega gert væntingar um álver í Helguvík að engu eftir að iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, skrifaði undir viljayfirlýsingu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar 17. maí sl. ásamt Alcoa og Húsavíkurbæ um að leggja af stað með vinnu við að finna niðurstöðu sem gerði Alcoa kleift að meta hvort þeir vilji byggja 250.000 tonna álver á Húsavík. Þessi meðbyr Valgerðar innan ríkisstjórnarinnar núna hefur fengið okkur til að efast um hæfni A-listans og Sjálfstæðisflokksins hér í bæ til að koma því í höfn að álver rísi í Helguvík vegna tengsla þeirra við þessa ríkisstjórn."

Telur þú unnt og æskilegt að lækka eða fella niður innheimtu gjalda vegna vistunar barna á leikskólum?

"Reykjanesbæjarlistinn telur nauðsynlegt að koma á gjaldfrjálsum leikskóla í áföngum. Við viljum svo finna nýjar tekjur sem geta tryggt að leikskóli geti orðið gjaldfrjáls að fullu. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á atvinnumál því það er undirstaða velferðar hvers bæjarfélags. Við teljum atvinnumál hafa setið á hakanum mjög lengi hér í Reykjanesbæ þar sem bæjarstjórnin hefur verið of upptekin við að breyta eigum sínum í peninga til að getað fegrað bæinn og um leið búið til atvinnu tímabundið. Það hefur falið á sama tíma raunverulegt atvinnustig hér í bænum sem hægt er að byggja á til framtíðar. Við viljum leggja niður Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum til hagræðis og sameina Suðurnesjabyggðir í eitt sterkt sveitarfélag til mótvægis við höfuðborgarsvæðið, það myndi stórauka tekjurnar sem tryggði að hægt yrði að klára dæmið að koma á gjaldfrjálsum leikskóla á öllu svæðinu og gott betur."

Telur þú unnt að auka stuðning við fjölskyldur í Reykjanesbæ og hvaða atriði ættu þá að hafa forgang á næsta kjörtímabili?

"Reykjanesbæjarlistinn vill að fólk með lágar tekjur fái tækifæri til að sækja sér vinnu inn á höfuðborgarsvæðið og verði styrkt af bæjarfélaginu til þeirra ferða. Við skilgreinum lágar tekjur laun sem eru lægri en 170.000 krónur á mánuði. Reykjanesbæjarlistinn vill að farið verði gaumgæfilega ofan í verklagsreglur fjölskylduþjónustunnar, til dæmis að meðlagsgreiðendur verði skilgreindir sem framfærendur barna sinna. Við viljum aðlaga grunnskólana enn frekar að þörfum barnanna og fjölskyldna þeirra, og sérstaklega líta til með þeim sem eiga erfitt uppdráttar, börnum með ofvirkni, athyglisbrest og annað sem snýr að geðheilbrigði sem dæmi."

Styður þú áframhaldandi samvinnu við Fasteign hf. um uppbyggingu og rekstur húsnæðis fyrir bæjarfélagið eða telur þú að kaupa eigi til baka þær eignir sem lagðar hafa verið inn í Fasteign? Hvað ræður afstöðu þinni?

"Reykjanesbæjarlistinn telur það hafa verið mistök að fara þá leið á sínum tíma að selja fasteignir bæjarins en eins og umhorfs er í atvinnumálum hér á svæðinu í dag teljum við að það sé ekki tímabært að eyða orkunni í að hrófla við þessu. Við getum ekki séð að það sé ódýrara að taka marga milljarða króna lán, gengistryggt með tilheyrandi kostnaði af lántökunni og af stimpilgjöldunum. Reykjanesbær hefur selt allar fasteignir sínar til Fasteignar hf. sem leigði svo Reykjanesbæ eignirnar strax eftir gerð afsala. Þetta er nú allur galdurinn við það hvers vegna svo mikið eigið fé varð til í bæjarsjóði allt í einu sem gerði Reykjanesbæ svo kleift að fara í miklar framkvæmdir hér undanfarin ár sem sannalega hafa fegrað bæinn okkar mikið. Reykjanesbær mun hér eftir að óbreyttu gera leigusamninga fyrirfram við Fasteign hf., svo semja þeir við viðkomandi verktaka um að reisa byggingu fyrir Fasteign hf. sem bærinn tekur svo við að framkvæmd lokinni samkvæmt leigusamningi, sem dæmi má nefna nýju sundlaugina. Hér er um að ræða gengistryggða leigusamninga sem hafa hækkað um 30% frá áramótum vegna gengisfalls krónunnar. Reykjanesbær á 35% í Fasteign hf. í formi hlutabréfa og erfitt er að átta sig á verðmæti þeirra því erfitt er að sjá hver vill kaupa hlut í grunnskólabyggingu, til dæmis."

Hvernig vilt þú að bæjarfélagið beiti sér vegna breytinga hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli? Hvaða tækifæri telur þú að kunni að felast í stöðunni?

"Reykjanesbæjarlistinn leggur áherslu á í samningum við Bandaríkjamenn að við fáum full afnot af olíubirgðastöðinni í Helguvík og að hún sinni eldsneytisþörf Keflavíkurflugvallar og Suðurnesja í heild sinni. Ef fram fer sem horfir með herinn mun flugtengd starfsemi á alþjóðavísu aukast stórlega í framtíðinni.Við viljum einnig beina því til stjórnvalda að vegna brotthvarfs hersins verði leyfðar frjálsar krókaveiðar smábáta við Reykjanesið allt að 6 sjómílur út og svæðið lokað öllum öðrum veiðarfærum. Þessi heimild verði aðeins veitt þeim aðilum sem skráðir eru og landa aflanum á svæðinu. Þessi aðgerð myndi líka leggja af leiguliðaútgerðir (nútímaþrælahaldið) sem flestar eru hér á landinu. Þá fyrst gætu menn gert út með reisn og skilað einhverju til samfélagsins hér í stað þess, eins og það hefur verið allmörg ár, að allur ágóðinn fari beint til sægreifanna sem búa ekki hér svæðinu og skaðinn sé okkar."

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

Óflokksbundinn og veit ekkert hvað ég á að kjósa í kosningunum 25.apríl nk. en ég veit hvern ég ætla ekki að kjósa.

Áfram Ísland!!

B.N. (IP-tala skráð) 4.4.2009 kl. 09:21

4 Smámynd: Hilmar Dúi Björgvinsson

sæll Baldvin Jónsson

Ég er enn að bíða eftir því að sjá listann hjá ykkur hér í mínu kjördæmi norð-austur hvar er hann að finna?

Hilmar Dúi Björgvinsson, 4.4.2009 kl. 13:33

5 Smámynd: Baldvin Jónsson

Norð austur listinn er langt kominn en ekki endanlega því miður. Við erum þó að sjálfsögðu enn að þrýsta mjög sterkt á að ríkisstjórnin standi við loforðin sín um að fram megi koma með óraðaða lista.

Formaðurinn okkar hann Herbert Sveinbjörnsson sem er fæddur og uppalinn á Akureyri og Hjálmar Hjálmarsson leikar sem er frá Dalvík, munu báðir væntanlega verða ofarlega á listum í NA kjördæmi.

Kosningastjórinn okkar biðst velvirðingar, NA er síðasti listinn sem er ekki enn frá genginn og verður lokað á allra næstu dögum.

Baldvin Jónsson, 4.4.2009 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband