Ekki hatur - þetta heitir rökhyggja og hæfileiki til þess að sjá hlutina í víðara samhengi

Það er að sjálfsögðu bara mín skýring sem kemur hér fram í fyrirsögninni. En út frá mínum sjóndeildarhring hata ég ekki Davíð Oddsson og hef aldrei. Hann er meira að segja eini stjórnmálamaður sem að ég man eftir að hafa á einhverjum tíma haft alveg sérstakt dálæti á.

Ég tel hins vegar augljóst að alger vanhæfni Geirs og félaga til þess að sjá tjónið sem af Davíð hefur hlotist hafi á endanum valdið þeim enn meiri skaða, skaða sem að þeir hefðu ekki tekið sénsinn á fyrirfram heði þeim grunað hver yrði niðurstaðan. Ég er ekki að tala um skaða gagnvart þjóðinni, hann virðist vera Sjálfstæðismönnum ótengdur með öllu miðað við yfirlýsingar þeirra þar um undanfarið og miðað við áramótaávarp Geirs eru fáir sem geta bjargað okkur nema Guð almáttugur sjálfur.

Nei, skaðinn sem að ég er að tala um er algert hrun í stuðningi hjá þjóðinni við Sjálfstæðisflokkinn. Algert hrun í skoðanakönnunum. Algert hrun innan flokksins í stuðningi við formanninn sem hefur afar sjaldan gerst þar innanborðs. Já algert hrun á tiltrú á flokknum og stefnu hans.

Hefðu þeir ekki brugðist öðruvísi við í lok september hefðu þeir séð þetta fyrir?

Ég er ekki viss. Þeir sáu nokkuð skýrt fyrir í október 2007 hvert stefndi eð bankakerfið og lokuðu bara augunum. Það kannski virkar í miklum hagvexti, að loka bara augunum og bíða (að "Haardera" eins og það er títt kallað þessa dagana) en í fyrirsjáanlegu kerfishruni virkar það ekki, augsýnilega

... bara alls ekki.


mbl.is Geir: Stjórnuðust af hatri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér fannst Björgvin G. Sigurðsson skilgreina vandræði Sjálfstæðismanna með Davíð ágætlega í Hrafnaþingsþætti Ingva Hrafns á ÍNN um daginn. Hann sagði það sama og þú, og ég líka, sagðist hafa dáðst af honum þó hann væri andstæðingur. En hann hefði átt að stíga út í kringum 2000 og fara að skrifa en ekki í Seðlabankann. Þá væri þjóðin líklegast að tala um einn dáðasta stjórnmálaforingja sögunnar. En ekki að "hatast" út í hann. Sem margir virðast gera. En við erum bara reið. Ekki af tilefnislausu. Geir greyinu hefur svo verið vorkunn að þurfa að vera í skugga og umsjá DO, þó hann sé "hættur" í pólitík.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 18:26

2 Smámynd: Aðalsteinn Bjarnason

Það er ekki hægt að skilgreyna álit sumra Samfylkingarmanna á Davíð á annan hátt en að þar sé hreint hatur á ferðinni. Ingibjörg Sólrún hefur vart haft annað takmark í lífinu, virðist vera, annað en að ná sér einhvernveginn niður á þessum manni. Alveg frá því að hún var borgarstjóri og ók um á jeppa frá Hekklu (Þar sem Tryggvi Jónsson var forstjóri) hefur þetta hatur stigmagnast hjá henni og félögum hennar í Baugi.

Ég held að það sé ofmetið hvað Davíð hefur skemmt fyrir fylginu hjá Sjálfstæðisflokknum. Ég held að við þessar aðstæður og eftir það sem hefur gerst, þá lítur fólk fyrst og fremst til þess að flokkurinn er búinn að vera í stjórn í 18 ár og fólk vill sjá breytingar. Hvort þessi eða hinn embættismaðurinn er í Seðlabankanum held ég að breyti litlu.

Aðalsteinn Bjarnason, 30.1.2009 kl. 18:50

3 Smámynd: Baldvin Jónsson

Miðað við þann kraft sem að ISG bjó yfir lengst finnst mér ekki líklegt að hún hafi átt það eina markmið að koma DO á kné. Ég tel líklegt að það hefði þá annaðhvort tekist eða opinberast skýrt fyrir afar löngu síðan.

Baldvin Jónsson, 30.1.2009 kl. 20:39

4 Smámynd: Aðalsteinn Bjarnason

En finnst þér ekki skrítið Baldur, að þetta er nánast það eina sem nýja stjórnin er búin að ákveða að gera þ.e. að koma Dabba frá. Heldur þú að það séu ekki önnur brýnni verkefni hjá stjórnvöldum núna? Og Jón Ásgeir grobbar sig af þessu og væntir þess að "annað" verk ríkisstjórnarinnar sinnar verði að banna hvalveiðar. Þetta er það sem er brýnast hjá þessu liði.

Aðalsteinn Bjarnason, 30.1.2009 kl. 20:53

5 Smámynd: Aðalsteinn Bjarnason

Fyrirgefðu, Baldvin átti það að vera, ekki Baldur.

Aðalsteinn Bjarnason, 30.1.2009 kl. 20:54

6 Smámynd: Baldvin Jónsson

Skil ekki hvaða hagsmuni Jón Ásgeir hefur af Hvalveiði stoppi? Geturðu skýrt það fyrir mér Aðalsteinn?

Baldvin Jónsson, 30.1.2009 kl. 21:22

7 Smámynd: Baldvin Jónsson

Akkúrat núna gæti mér ekki verið meira sama um viðskipti Jóns Ásgeirs erlendis.

Væri hins vegar afar sáttur ef að hann fyndi það hjá sér og æru sinni að skila einhverju af aurunum aftur sem að hann telur best geymda í skattaparadísum.

Baldvin Jónsson, 30.1.2009 kl. 21:44

8 Smámynd: Baldvin Jónsson

Hafsteinn, ég tel þessa hugmynd þína einmitt frekar þröngsýna og órökræna.

Samfylkingin er samsett eins og nafnið gefur til kynna - fylkingin mismunandi hópa. Þeir hópar létu ekki bjóða sér það lengur að stjórnin hunsaði stóran hluta þjóðarinnar. Um ÞAÐ snerust þessi stjórnarslit.

Baldvin Jónsson, 30.1.2009 kl. 22:36

9 Smámynd: Aðalsteinn Bjarnason

það er alveg ótrúlegt að horfa uppá hve stór hluti af þjóðinni sér ekki hvernig í þessum málum liggur. það heldur greinilega meginhluti þjóðarinnar ennþá að þetta sé svakalega góður gæi hann jón.  Jón Ásgeir var fjórði í kjörinu á manni ársins á Rás 2. Þessi náungi er augljóslega innundir bæði hjá forsetanum og Samfylkingunni. Þessi maður er glæpamaður nr. 1 á Íslandi í dag. Þetta er sá maður sem á stærsta sök á ástandinu á Íslandi, að nokkrum öðrum meðtöldum. Forsetinn hjálpaði honum svo að eignast nánast alla fjölmiðla landsins sem hann notar óspart til að heilaþvo lýðinn. Og það virðist hafa tekist. Dabbi er vondi kallinn í augum allra og erlendir fjölmiðlar eru óspart upplýstir um það. Á meðan situr Jón eins og púki á fjósbita og hlær að öllu saman.

Aðalsteinn Bjarnason, 31.1.2009 kl. 03:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband