Góð hugmynd - allar góðar hugmyndir á að skoða vel og koma í framkvæmd sem fyrst

Það breytir þó ekki þeirri skoðun minni að Gunnar Páll Pálsson á að sjálfsögðu að segja af sér ekki seinna en strax. Framferði hans er einfaldlega svo gríðarlega langt frá upprunalegum markmiðum verkalýðshreyfingar að mér er það óskiljanlegt að stjórnin skuli styðja hann áfram í starfi. Maður hlýtur að álykta að stjórnin sé bara einfaldlega orðin jafn samdauna völdum lífeyrissjóðsins og fjármála aflanna.

Ég biðst velvirðingar Gunnar Páll, nei annars, hreint ekki. Ég er bara einfaldlega kominn með gríðarlegt óþol fyrir öllu sem túlkast getur vafasamt, hvað þá hlutum eins og framferði þínu þar sem sekt þín liggur fyrir.

Burt með þetta hörmulega ónýta siðferði í kerfinu okkar allsstaðar. Þetta hljómar ógnvænlega, nánast eins og á tímum Spænska rannsóknarréttarins, en það er bara einfaldlega kominn tími á að taka til.

Sömu öflin, já ég segi sömu öflin eru búin að stjórna hér einfaldlega allt allt of lengi. Bláa höndin og hennar fylgismenn hafa stýrt nánast öllu hérna síðan upp úr 1850.  Er ekki nóg komið?


mbl.is Skoða örlán til VR-fólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Gunnar Páll Pálsson á að víkja strax - hvað veldur þessari afneitun td hjá Gunnari - hingað til hefur oftast dugað að standa af sér nokkra fréttapistla og láta svo eins og ekkert hafi gerst þar sem langtíma minni okkar íslendinga er nánast ekki neitt - tel að svo sé ekki lengur.

Annars hef ég ekki tengt VR neitt sérstaklega við Sjálfstæðisflokkinn og ekkert annað verkalíðsfélag við neinn ákveðinn flokk síðastliðin misseri - mér er næstum sama hvaðan gott kemur

Jón Snæbjörnsson, 11.1.2009 kl. 22:12

2 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Sæll félagi og gleðilegt ár og takk fyrir þau liðnu (öll).

Heyrðu minn kæri - ég fylgist ekki nógu vel með og biðst afsökynar á því - hvenær var það sem dómur féll í máli Gunnars ?

Fékk hann innisetudóm eða skilorð?

Skilaðu kveðju vinur

Óli Hrólfs

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 11.1.2009 kl. 22:59

3 Smámynd: Baldvin Jónsson

Gaman að sjá hvað siðferði virðist orðið skipta þig litlu máli Óli. Merkilegt en gaman.

Gunnar Páll gekkst sjálfur við sekt sinni - en axlar enga ábyrgð.

Baldvin Jónsson, 11.1.2009 kl. 23:05

4 identicon

Ef það er lágt siðferðisstig að geta fagnað því sem vel er gert og sleppt sleggjudómum - þá er mitt siðferðisstig lágt. Ef það er hátt siðferðisstig að geta ekki fagnað því sem vel er gert og að eingöngu sé horft til þess sem miður fer hjá okkur þá kæri ég mig ekki um það stig. Fyrirgefning - yðrum -yfirbót - bræðalag - dæmið eigi svo þér verðið eigi sjálfir dæmdir - þarf ég að halda áfram. Kanski er Biblían á lágu siðferðisplani en þú á háu. Þá verður svo að vea - ég ætla þá bara að ver á þessu lága með Biblíunni.

Mér þætti hinsvega vænt um að þú tækir upp baráttu með okkur Sniglum sem erum sífellt að reyna að fá fjölmiðla til þess að vinna með okkur að forvörnum í umferðinni -þeir geta sent fullt herlið til þess að fylgjast með 5 vörubílstjórum á Austurvelli þar sem einn les upp bréf en þegar bifhjólafólk heldur upp á 1. maí með hópkeyrslu þar sem gefur að líta 1.200 bifhjól sem fara þessa ferð til þess að hvetja fólk til varúðar í umferðinni - minna á að nú fari hjólum fjölgandi í umferðinni og kalla eftir gagnkvæmri virðingu og tillitssemi þannig að allir komist heilir heim að kvöldi - þá er enginn áhugi - enginn mannskapur til þess að fylgjast með þessari stórkostlegu sjón sem 1.200 bifhjól svo sannarlega eru.

Hér er baráttuvettvangur fyrir okkur öll félagi Baldvin og engin ástæða til þess að vera með yfirlýsingar um lélegt siðferði. Eða hvað.

Bestu kveðjur vinur

Óli Hrólfs

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur I Hrólfsson (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 03:34

5 identicon

Baddi minn Baddi minn - fyrirgefðu mér - ég var ekki búinn að lesa allt sem þú skrifaðir upphaflega - missti af þessu með bláu höndina. - Nú skil ég þetta betur - þú ert að setja pólitík í þetta og úthrópa Sjálfstæðisflokkinn ( sem þú varst reydar í hér á árum áður ) og upphefja - hvað var það nú aftur - flokkurinn hans Ómars og nú sé ég hann efst á listanum yfir bloggvini. Fyrirgefði Baddi minn - ég hélt að við gætum enn rætt saman á vitrænum og heiðarlegum nótum - en ekki sleggjudómanótum Ómars.

Dreg mig í hlé

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur I Hrólfsson (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 03:45

6 identicon

Gunnar hefur staðfest gjörðir sína opinberlega, hann þarf ekki að fara fyrir dóm, siðlaust og refsivert eru ekki einn og sami hluturinn, það er ekki verið að krefjast fangelsis yfir honum frekar en Geir eða Bjarna Ármannssyni.  Gunnar er kjörinn fulltrúi, hann þarf að standast kröfur síns fólks um heilindi, dómgreind, siðferði og frammistöðu í hagsmunagæslu fyrir sitt fólk, þegar hann gerir það ekki þarf hann að gjalda eða njóta, eftir því sem við á.  Gunnar er í mínum huga einn af holdgervingum þess liðna, að því er ég vona, þetta ef fyrsta tækifærið til að sína í kosningu hver hin raunverulegi hugur almennings er.  Nöldur og þýlyndi eða breytingar, það er valið. 

Bjorn Jonasson (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 08:48

7 Smámynd: Baldvin Jónsson

Ég ítreka aftur Óli minn, dómurinn er ekki minn. Gunnar Páll gekkst opinberlega við sinni sekt og ætti því að axla að sama skapi ábyrgð. Þetta eru tímar hreinsunar, þetta eru tímar þar sem að fólkið í landinu (a.m.k. 98% þess fólks sem ég umgengst og þar á meðal margir Sjálfstæðisflokksmenn) vill hreinsun í íslenskri pólitík.

Þetta tengist ekki Íslandshreyfingunni Óli, þetta er hin almenna krafa í dag. Jesús Kristur sem þú vitnar í hér að ofan var baráttumaður og andi. Jesús Kristur notaði ekki fyrirgefninguna sem afsökun fyrir því að þola misrétti, þvert á móti þá hvatti hann til þess að þola ekkert slíkt - hvatti fólk til góðra verka.

Látum ekki gamlar pólitískar hugmyndir aftra okkur frá því að takast á við samvisku okkar. Það þarf að hreinsa til, núverandi forysta Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar er óvinur númer eitt!

Baldvin Jónsson, 12.1.2009 kl. 09:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband