Já, nú er lag að viðurkenna hið augljósa í þeirri von að byggja hjá fólki trúverðugleika

Þetta er gamalgróin aðferð, segðu fólkinu ítrekað það sem að það veit að er rétt og vonandi fer fólkið þá að skilgreina þig sem traustsins verðann mann sem talar sannleikann.

Gallinn bara er sá að nú er öldin önnur. Nú er upplýsinga öldin og ALLT sem opinberlega hefur verið látið falla er geymt en ekki gleymt.  Geir, ábyrgðin er þín án nokkurs vafa. Sem forsætisráðherra okkar þegar að sá fyrir um að holskeflan væri væntanleg hefðirðu átt að bregðast harkalega við og skoða málið í kjölinn.

Nei, í stað þess var ráðinn sérfræðingur til þess eins að rekja allar þessar fullyrðingar sem komu aðallega frá erlendum sérfræðingum. Já og frá Davíð, skv. nýjustu fréttum þar um.

Davíð hefði hins vegar að sjálfsögðu sem Seðlabankastjóri, sem nú þykist hafa haft þetta allt á hreinu allan tímann, átt að t.d. hækka verulega bindisskyldu bankanna og draga þar með verulega úr lánveitingum hjá þeim. Davíð hefði líka átt að róa að því öllum árum ásamt ríkisstjórninni að verulega auka gjaldeyrisforða þjóðarinnar. En öðru fremur hefði Davíð að sjálfsögðu átt að fá sér til liðsinnis sérfræðinga á þessu sviði OG fylgja ráðum þeirra. Ekki bara hræða menn til þess að fá út þá niðurstöðu sem hentaði Davíð best.

Þórunn Sveinbjarnardóttir og Björgvin G. Sigurðsson koma síðan fram í dag og viðurkenna einnig hið augljósa, að kjósa þurfi í vor. Það er loksins að einhverjir ráðamenn Samfylkingar taka undir með sínu fólki. Grasrótin í Samfylkingunni er gjörsamlega að verða raddlaus af því að kalla þetta til þeirra.

Þarna eru þó væntanlega þau bæði að gera það sama og Geir, að viðurkenna og endurtaka hið augljósa í þeirri von að fólki finnist þau þá trúverðug.

Ég hef reyndar ekkert við Þórunni að sakast, held að í flestum málum hafi hún lent milli steins og sleggju. Sinnar sannfæringar og stefnunni Fagra Ísland annars vegar og svo "seljum allar hugsjónir okkar fyrir stjórnarsetu til Sjálfstæðisflokksins" hins vegar.

Björgvin hinsvegar hefur augljóslega flotið algjörlega steinsofandi að feigðarósi, og lýgur svo ítrekað að þjóðinni að hann hafi víst verið vakandi. Ekki ósvipað barni sem neitar því að vera sofnað yfir sjónvarpinu.

Hvernig gastu ekki heyrt varúðarhrópin Björgvin?


mbl.is Ekki stefna aðgerðunum í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

eins og einhver benti á þá stóð og stendur EES samningurinn gegn aukinni bindi skyldu banka. eða það er eins og skil þá umræðu sem hefur verið um bindiskylduna.

Fannar frá Rifi, 20.11.2008 kl. 21:16

2 Smámynd: Baldvin Jónsson

Já, en Seðlabankinn hefur þó enn í sínum höndum réttinn til þess að hækka hann sem verkfæri í hagstjórn. Þeir höfðu verulega góðar ástæður til þess í þessu tilfelli.

Baldvin Jónsson, 20.11.2008 kl. 22:21

3 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Þetta er einn alsherjar harmleikur.

Ég bíð eftir þeim degi þegar ráðamenn hætta að segja, hver um annan þveran,"eftir á að hyggja" og segja í staðinn:"Við brugðumst þjóðinni".

En sá dagur kemur aldrei, ef ég þekki íslenska stjórnmálamenn rétt.

Greta Björg Úlfsdóttir, 21.11.2008 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband