Mig langar ekki oft að blóta nú orðið.....

... en hvaða ótrúlegi aumingjaskapur var það að hlaupa ekki í frákastið frá vítaspyrnunni????

Það er nú ekki oft sem að markmennirnir okkar eru að verja svo ágætlega vítaspyrnur að við megum við því að vörnin standi bara í heild sinni eins og vængbrotnar álkur og HORFI á leikinn úr fjarlægð.

Ég er nú ekki mikill fótboltamaður á vellinum, en þetta fannst mér einfaldlega aumingjaskapur.

Synd að minnast þessa helst í einum besta leik sem að ég hef séð liðið spila lengi.


mbl.is Skotar unnu nauman sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Dapurt , verulega dapurt eins og dómari leiksins

Ómar Ingi, 10.9.2008 kl. 20:54

2 Smámynd: Hróðvar Sören

Þetta var þar áður líka fastur liður í innköstum og hornspyrnum. Leiðinlegt að sjá svona grunnatriði klikka þegar liðið átti fínan sjens.

Hróðvar Sören, 10.9.2008 kl. 21:05

3 Smámynd: Freyr Hólm Ketilsson

Skál meistari...
Bara sorglegt upp á að horfa...

Freyr Hólm Ketilsson, 11.9.2008 kl. 09:04

4 Smámynd: Helga Dóra

Blótaðu Baddi... Láttu vaða..... Leyfðu okkur að heyra.....

Helga Dóra, 11.9.2008 kl. 13:19

5 Smámynd: Gísli Hjálmar

Baddi ... ertu að tala um fótbolta einusinni enn?

kv, GHs

Gísli Hjálmar , 12.9.2008 kl. 11:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband