Varð að deila þessu með ykkur, barst til mín með tölvupósti

Stutt námskeið um hlutabréfamarkaðinn:

ugandan-chimpÍ þorpi einu birtist einu sinni maður og kvaðst vilja kaupa apa af þorpsbúum á 1000 krónur stykkið.  Þar sem mikið var um apa í nágrenni þorpsins, fóru þorpsbúar að veiða apana og selja manninum þá.


Maðurinn keypti þúsundir apa af þorpsbúum á 1000 krónur, en þegar framboðið fór að minnka, bauðst maðurinn til að borga 2000 krónur fyrir apann. Aftur jókst framboðið um tíma, en síðan minnkaði það enn frekar og hætti síðan alveg þar sem erfiðara var fyrir þorpsbúa að finna fleiri apa til að selja.


Maðurinn tilkynnti þá að hann mundi borga 5000 krónur fyrir hvern apa sem hann fengi, en hann þyrfti að skreppa frá í smá tíma og aðstoðarmaður hans mundi sjá um kaupin á meðan.


Eftir að maðurinn var farinn, hóaði aðstoðarmaðurinn þorpsbúum saman og bauðst til að selja því apana, sem voru geymdir í búrum, á 3500 krónur stykkið. Fólkið gæti svo þegar maðurinn kæmi aftur selt honum apana á 5000 krónur. Þorpsbúar söfnuðu því saman öllu sínu sparifé og keyptu apana af aðstoðarmanninum.
Síðan hefur ekkert spurst til mannsins eða aðstoðarmannsins.
 
Núna veistu allt um hvernig hlutabréfamarkaðurinn virkar FootinMouth


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Held að þetta hafi verið í gær eða fyrradag í útvarpinu en gott samt

Ómar Ingi, 20.2.2008 kl. 16:37

2 Smámynd: Óskar

Hehe...góður

Óskar, 20.2.2008 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband