Myndskilaboð frá Borgarahreyfingunni - Við munum ráðast í vanda heimilanna og fylgið til þess eykst hratt

Við erum samkvæmt þessari könnun með 4 menn inni sem er algerlega frábær árangur ný framboðs sem hafði tæplega 8 vikur til þess að verða til. En ég er bjartsýnn maður og miðað við þann kröftuga meðbyr sem að ég finn með okkur alls staðar þar sem ég kem þessa dagana hef ég fulla trú á því að við munum tvöfalda þessar fylgistölur þegar talið er upp úr kössunum. Fylgið okkar kemur víða að en óánægju fylgi frá Sjálfstæðisflokknum fer stöðugt vaxandi og við fögnum því að sjálfsögðu sem og öllum öðrum pólitískum flóttamönnum eins og einn okkar orðaði það í útvarpsviðtali.

En hér eru skýr skilaboð til þín frá snillingnum henni Margréti Tryggvadóttur sem er oddviti listans okkar í Suðurkjördæmi:

 


mbl.is Sjálfstæðisflokkur tapar miklu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Baldvin!

Þið eruð ekki nógu djörf, þið verðið að ganga lengra, þetta er hundaþvottur að færa tilbaka vísitöluna o.s.frv.

Það er ekkert val um neitt annað en "algera" endurskoðun á öllu íbúðarlánakerfinu "PUNKTUR"  Algera leiðréttingu á öllum íbúðarlánum aftur til ársins 1979. Að allir ofteknir vextir, ofteknar verðbætur og kostnaður sé endurgreitt til þeirra sem þegar hafa misst allt sitt og höfuðstóll allra áhvílandi íbúðarlána leiðréttur til raunveruleikans.

Sýnið dirfsku! Standið með fólkinu, fjölskyldunum, heimilunum í landinu!

www.heimilin.is

Kv. Hólmsteinn

Hólmsteinn (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 00:57

2 identicon

Ekki er ég flóttamaður frá sjálfstæðisflokknum, því ég hef sjálfstæða hugsun og þess vegna kaus ég áðan Borgarahreyfinguna  X O  í  utankjörstaðaatkvæðagreiðslu !

Vonandi viljið þið hugsandi fólk sem ekki er sama hvernig sjálfstæðisflokkurinn er búinn að stjórna peningamálum þjóðarinnar og koma okkur í þau mál sem við liggjum með núna ?

JR (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 01:02

3 Smámynd: Baldvin Jónsson

Hólmsteinn, fyrst er að fá umboð til aðgerða - svo gefst tími til að skoða ítarlega allar góðar hugmyndir. Margir trúa því reyndar að annað bankahrun sé bara handan við hornið og erfitt að segja til um hvernig fer þá fyrir skuldunum okkar við þrotabú.

JR, takk fyrir stuðninginn :)  Við viljum að sjálfsögðu BARA hugsandi fólk sem er ekki sama um hvernig fór og er annt um hvert skal farið héðan.

Baldvin Jónsson, 23.4.2009 kl. 01:29

4 Smámynd: Sigurjón

Að færa vístöluna til 1979 er í raun ekki hægt, enda tæki það ótrúlegan tíma.  Það er hins vegar ekki flókið að færa lán í samræmi við vísitölu við janúar 2008.  Það er einföld aðgerð og ætti að vera hverjum sem er í lófa lagið.

Hvers vegna í ósköpunum þarf að vera svo erfitt að fella niður verðtrygginguna?!

Sigurjón, 23.4.2009 kl. 03:58

5 identicon

Nú styttist í kosningar og þá væri gott fyrir hugsandi fólk að hugleiða hvað hafi eigin lega gerst.Ekki hlusta lengur á gjörspillta stjórnmála flokka hverju nafni sem þeir nefnast,mér hefur fundist allir gömlu stjórnmalamennirnir sérstaklega sjálfstæðismenn tala þannig við fólk,að allt fólk sé fífl og er það ekki ný Ella.

Nú ætti fólk að hugsa um hlutina í víðu samhengi og þá meina ég um allan heiminn.Viljum við fara í sama farið aftur?viljum við að stór hluti mankyns svelti? viljum við að auður heimsins safnist á fáar fjölskyldur í heiminum eins og svo oft hefur gerst ?Núna hefur það gerst og það alstaðar í heiminum.

Þetta hrun er ekki eitthvað lögmál ,auðurinn hefur ekki horfið ,hann er bara geymdur til betri tíma,og þegar við erum hætt að borga skuldir sem við ráðum ekki við og erum orðin dofin fyrir öllu nema að hafa eitthvað að eta þá snúa hrægammarnir og híennurnar aftur og kaupa allar eigur okkar og auðlindir fyrir skít og ekki neitt og halda áfram að gefa okkur mola,hífa okkur upp úr volæðinu með gylliboðum um nóga vinnu handa öllum ,og byrja sama leikin aftur,viljum við það?

Það var verið að birta könnun í gær um misskiptingu á íslandi ,og er hún sláandi aðeins 2% þjóðarinnar eru búnir að sölsa undir sig allan okkar auð og bíða átekta hverjir komast að kötlunum,og á meðan dunda þeir sem þurfa að ávaxta sitt pund við að flytja inn dóp í stórum stíl.Hverjir skyldu það svo vera?við þurfum ekki að nefna nein nöfn við vitum hverjir það eru,þeir eru ekki heima þessa stundina enda búnir að stela öllu sem hægt er að stela í bili.

Fólk við þurfum að hugsa stórt ekki um að verða öll rík eins og þjófarnir,heldur standa saman og reisa við okkar auðuga land,standa vörð um velferðarríkið okkar,skapa jarðveg fyrir komandi kynslóðir,ekki afsala okkur sjálfstæðinu allra sýst í þessu árferði þegar allir eru í sárum eftir hrunið,ekki hlusta á litlu Göbbelsana þeir ganga erinda auðvaldsins,nýjustu fréttir frá ESB eru að þeir ætla að taka upp sama fiskveiðistjórnunarkerfi og við erum að rífast um í dag,og hvers vegna ?jú til að fækka og úrelda FLOTANN GERA FISKIMENN ATVINNULAUSA OG FRAMSELJA ALLANN KVÓTANN Í HENDUR AUÐVALDINU.Ekki gerir það ESB eftirsóknarvert fyrir mig allavega.

Gott fólk hugsið ykkur vel um áður en þið krossið við í kjörklefanum,þar er ykkar tækifæri til að gera breytingar,ekki kjósa af gömlum vana  ,hugsið til framtíðar,hugsið um börnin sem eiga að erfa landið og líður ylla í dag horfandi upp á foreldra verða atvinnulausa og eiga kannski ekki fyrir mat á morgunn.

'Ég hef kosið alþíðubandalag og seinna VG utan einu sinni sem ég kaus kvennalistann sálug blessuð sé minning hans,hann breytti gangi sögunar.

Núna ætla ég að kjósa borgaraflokkinn annað er ekki í boði fyrir mig,og vona ég innilega að hann eigi eftir að breyta gangi sögunnar eins og kvennalisti gerði forðum daga,og vona ég að sem flestir hugsi málin eins og ég hef gert undanfarna daga.

Kjósum Borgaraflokkinn til breytinga

H.pétur jónsson (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 04:57

6 identicon

Eftir að 5% múrinn var rofinn, breyttist umræðan. Sveiflan er hafin, ég spái Borgarahreyfingunni 17% í þessum kosningum og 40% í haustkosningunu.

Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 23.4.2009 kl. 11:19

7 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Óska þér til hamingju með góða frammistöðu á stöð 2 í gær.

Jón Gunnar Bjarkan, 23.4.2009 kl. 12:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband