Hvaða uppgjör er Þorgerður Katrín að tala um??

Neðangreint fékk ég sent á tölvupósti og langar að deila með ykkur: 

Í Bandaríkjunum er góð stemning og almenningur vongóður um betri tíma.

Hinn ungi forseti, Obama, hefur kallað hæft og dugmikið fólk til valda og sagt skilið við klíkuskap og flokksdindla.

Á Íslandi er sagan önnur.

Þar ráða fulltrúar úrelts kerfis flokkræðis, einkavinavæðingar og hagsmunagæslu fyrir flokksgæðinga, sem sett hefur þjóðina á hausinn og gert orðið Íslendingur að skammaryrði um hinn vestræna heim. Rúnir trausti vilja þeir engu að síður fá að halda áfram að skipa hæfileikasnauða vini og vandamenn í æðstu embætti og ulla á umsækjendur með meiri reynslu og menntun að baki. Þeir vilja fá að ráðstafa peningum okkar og auðlindum til þeirra sem eru handgengnir flokknum, án tilltits til hagsmuna almennings.

Þannig verður þetta áfram, ef almenningur rís ekki upp.

Flokkarnir bíða aðeins eftir því að mótmæli hans fjari út, svo að þeir geti teki upp fyrri siði.

Það má ekki gerast.

Nú er tækifæri til að ganga að flokksræðiskerfinu dauðu.

Breiðfylking almennings verður að bjóða fram í komandi kosningum og ná hreinum meirihluta.
 
Að öðrum kosti munu gömlu flokkarnir hugsa sér gott til glóðarinnar.
 
Litlu flokkarnir munu hlaupa í sæng með Íhaldinu, Framsókn, VG eða Samfylkingunni, ef tækifæri gefst og halda ótrauðir áfram með gamla kerfið. Eða halda menn til dæmis, að Framsóknarflokkurinn hafi eitthvað breytst, þótt hann hafi kosið nýja forystu. Flokkurinn sem ,,gaf" Búnaðarbankann og muldi undir flokksgæðinga sína, þannig að fyrrverandi ríkisstarfsmenn á miðlungslaunum urðu allt í einu milljarðamæringar.

Og hinir flokkarnir eru engu betri.

Til þess að breiðfylkingin komist til valda, þarf hún að tilkynna fyrir kosningar hverjir munu mynda ríkisstjórn hennar. Hún á að undirstrika aðgreiningu framkvæmda- og löggjafarvalds með því að tilnefna hæfustu menn í öll ráðherraembætti og hafa þá ekki á framboðslistum til alþingis.

Gömlu flokkarnir tala venjulega niður til almennings og halda því fram, að aðeins innan þeirra raða sé hæft fólk til þess að verða ráðherrar. Svo er nú aldeilis ekki, eins og undanfarnir atburðir hafa sannað. Í kjölfar bankahrunsins hefur komið fram á sjónarsviðið fullt af duglegu og hæfu fólki utan flokkakerfisins, sem betur væri treystandi fyrir æðstu stjórn landsins.

Ekki veitti nú af að finna góðan mann í fjármálaráðuneytið til að sjá fram úr því hvernig við eigum að borga til baka þá þúsundir milljarða, sem ríkisstjórn afglapa og útrásargæðingarnir hafa skellt á bak okkar. Að sjálfsögðu þarf svo að finna hæft og gott fólk til að manna framboðslistana. Slík breiðfylking ætti ekki að stefna að því að verða varanleg. Þegar hún hefur lokið hreingerningu sinni og komið gömlu flokkunum út í hafsauga, ætti hún að draga sig í hlé og fela nýjum hreyfingum fólkins að standa vörð um lýðræðið til frambúðar.

Breiðfylking almennings hefur allt að vinna og engu að tapa.

Ef hún vinnur kosningarnar, getur hún hafið nauðsynlegar umbætur á íslensku þjóðfélagi.

Boðað til stjórnlagaþings, breytt stjórnarskrá, undirbúið tillögur um að fjöldi þingmanna miðist í hlutfalli við fjölda kjörbærra í hverju kjördæmi fyrir sig, að endurskoðuð verði kjördæmaskipan á landinu og kjördæmin á Höfuðborgarsvæðinu verði að einu kjördæmi, nýja kosningalöggjöf til að koma í veg fyrir flokkræðisvald með upptöku persónukjörs.

Ef ekki tekst að ná meirihluta á alþingi, mun allt sitja við það sama.

Gömlu flokkarnir hrósa happi og halda uppteknum hætti, skipta með sér gæðum landsins og raða vanhæfum flokksþjónum í bitlingastöður.

Kjósum Þjóðina á Þing!

Kjósum XO!

www.borgarahreyfingin.is


mbl.is „Hvítþvegin bleyjubörn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband