Að ráða sérfræðinga í vinnu er góð skemmtun - Eva Joly mun kosta um 67 milljónir á ári þegar allt er talið

En það er ekki bara góð skemmtun heldur algerlega bráðnauðsynleg. Ráðning Evu Joly sýnir öðrum fremur að Íslendingum er alvara með að taka á málum hérna. Þetta sýnir umheiminum að við ætlum okkur að hreinsa hérna til og þurfum virkilega á fólki eins og Evu Joly í verkið.

Þó að við þyrftum að greiða 500 milljónir á ári í rannsóknina trúi ég því samt að rannsóknin muni bæði spara okkur mikla peninga en öðru fremur mun hún einnig verða okkar stærsti póstur í að endurreisa hér samfélag þar sem ríkir traust og trúverðugleika í alþjóða samfélaginu.

Við eigum að fagna þessari ráðningu heilshugar. Ég set kannski þó örlítinn fyrirvara við ráðningu aðstoðarmanns hennar. Af hverju er ráðinn þar arkitekt?


mbl.is Tengiliður Evu Joly kostar 6,7 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér skilst að Eva Joly hafi komið hingað vegna frumkvæðis Jóns Þórissonar arkitekts og Egils Helgasonar. Ég gef meira fyrir frumkvæði Jóns en menntun hans.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 4.4.2009 kl. 10:31

2 Smámynd: Halldór Jón Júlíusson

Les ad folk hoopar i stolnum tthegar thad heyrir um laun Evu Joly, thad gerir ekki eg, sit sem fastast. Eva Joly er fræg um allan heim fyrir thau størf hun hefur unnid fyrir rikisstjornir i ødrum løndum, frægast er hegar hun rulladi upp fjarglæfrasvindlinu hja storfyrirtækinu ELF i Frakklandi. Ef vid ætlum okkur ad hafa upp a theim glæpamønnum sem eiga stærstu søkina a hruni Islands og theim mijørdum sem their hafa falid a skattaparadisum visvegar tha er hun su retta, hun hefur sambønd um allan heim og veit hvar hun a ad leita, hef ekki tru a ad Island hafi folk med jafnmikla thekkingu a slikum malum sem Eva Joly. Thad ætti ad vera hagur okkar ad fa manneskju sem Evu Joly til ad hjaøpa okkur vid thessi mal, laun hennar eru vasapeningar midad vid tha hundrud milljarda vid getum fengid tilbaka med hennar hjalp. Einhver skrifadi ad hun væri uppgjafa Norskur Stjornmalamadur(kona) en sannleikurinn er sa ad hun hefur unnid hja Franska rikinu stærsta hlutann af sinu lifi og er i miklum metum thar fyrir sin størf, hennar størf eru a althjodlegum vettvangi thar sem hun gefur rad til rikisstjorna um fjarsvikamal, hun er lika radgjafi fyrir Norsku rikisstjornina. Skil vel ad vissir kraftar a Islandi oska ad senda hana eins langt burt og hægt er, en reikna med ad thad eru mest valdamiklir ihaldsgubbar(konur) sem vilja hjalpa sinum "vinum" svo their geti velt ser ur milljørdum sem their hafa stolid fra Thjodinni. Les um Evu Joly a netinu tha sjaid thid hvers hun er megnug og hvad hun hefur afrekad a thessum svidum. Nokkrar miljonir i laun er litid midad vid hundrud milljarda sem vid vonandi med Evu hjalp getum fengid inn i rikiskassann.

Halldór Jón Júlíusson, 4.4.2009 kl. 11:00

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Sé ekki eftir einni einustu krónu í Evu og aðstoðarmenn hennar.

Arinbjörn Kúld, 4.4.2009 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband