Kraftmikill fundur í kvöld - stútfullur af upplýsingum

Erindin í kvöld voru óvenju upplýsandi finnst mér og þá sérstaklega erindi Roberts annars vegar og svo erindi Sigurbjargar hins vegar.

Robert var afar upplýsandi og lausnamiðaður í sínu erindi og var það mér til örvunar. Svarti bletturinn í erindinu hans var líklega bara sá að til þess að hagvöxtur verði aftur hér - og þá fyrr en seinna - er það skilyrði að hér ríki traust efnahagssstjórn. Það er því ljóst að það verður ekki fyrr en búið er að koma ríkjandi flokkum frá, og í raun ekki bara ríkisstjórnarflokkunum heldur þeim öllum. Þetta eru tímar nýrra hugmynda og fólkið krefst þess (að minnsta kosti allt það fólk sem ég hef rætt við síðan fyrir helgina) að hér verði lagt af flokksræði og lýðræðið endurheimt. Endurheimt til þjóðarinnar.

Erindi Herberts var afskaplega vel upp sett og afar hvetjandi. Hann lagði fram í lokin lista með upplýsingum um hluti sem voru framkvæmdir eða ekki framkvæmdir af valdhöfum með spurningunum "Löglegt? Já - Siðlaust? Maður spyr sig" og var salurinn og ég þar á meðal farinn að hreinlega öskra á hann til baka við seinni spurningunni: "JÁ!!!"

Sigurbjörg fær hins vegar titilinn "hugrakkasti ræðumaður kvöldsins" og í raun frá upphafi. Hún tók afar stóran séns í kvöld þegar að hún upplýsti um ýmislegt sem hefur misfarist í stjórnsýslu heilbrigðismála hér á landi frá því í ársbyrjun 2007, og var að segja frá mörgum þessara mála í fyrsta skipti opinberlega. Það er nokkuð ljóst að Guðlaugur Þór mun hafa ansi margar spurningar til þess að flýja á næstu dögum.

Það var síðan afar kómísk viðbót við innlegg Sigurbjargar, þegar ég í bílnum á leið heim ég heyrði í Geir Haarde í útvarpinu hjá Bubba Morthens segja frá því að engar breytingar stæðu til á aðkomu ríkisins að heilbrigðis kerfinu þó að einkaframtakið myndi aukast eitthvað. Það sem Geir sagði hins vegar ekki er sú staðreynd að ef að allir hlutar kerfisins sem mögulega skila einhverju í kassann fara í einkavæðingu til vina flokksins að þá verður það sem eftir stendur landanum enn kostnaðarsama.

Gleðilegt baráttuár enn og aftur kæru lesendur.


mbl.is Fullur salur í Háskólabíó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sigurbjörg var hetja kvöldsins

Hólmdís Hjartardóttir, 13.1.2009 kl. 00:26

2 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Fínn pistill hjá þér Baldvin... og miklu yfirvegaðri en minn :) Enda er hjartslátturinn rétt að komast í rétt horf eftir fundinn.

Geir veit ekki hvað bíður hans....... en ég spái því að hann verði borinn út úr sínu ráðuneyti fari hann ekki sjálfviljugur.

Heiða B. Heiðars, 13.1.2009 kl. 00:26

3 Smámynd: corvus corax

Kraftmikill fundur já ...en bara fundur. Við mótmælendur erum eins og lömb á leið til slátrunar ...jörmum hátt en gerum helst ekkert. Og ef einhver lömb sýna minnstu viðleitni til að bjarga sér eða berjast við slátrarann með hans eigin aðferðum, hneykslumst við öll hin sláturlömbin á að þau skuli láta svona ...og höldum áfram að láta leiða okkur jarmandi til slátrarans.

corvus corax, 13.1.2009 kl. 00:28

4 Smámynd: Jón Kristófer Arnarson

Já, Sigurbjörg var ótrúlega kjörkuð.  Vona að hún verði fordæmi og fleiri komi fram. 

Heyrði að það hefði verið eitthvað þras í gangi uppi á sviði eftir fundinn.  Tryggvi var allavega eitthvað illa fyrir kallaður á fundinum.

Jón Kristófer Arnarson, 13.1.2009 kl. 00:29

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk fyrir pistilinn. þetta var frábær fundur og allt sem fram kom frá ræðumönnum stemmir við mína tilfinningu af veruleikanum í dag. Hendum þeim út og stofnum til stjórnlagaþings eða valdasamkundu þjóðarinnar og endrureisum lýðræði og það ekki senna en fljótlega. Bíðum ekki eftir að allt verði hér MESS ein og ´Róbert komst að orði í fréttum.

Baldvin, Heiða og Hómdís stöndum fyrir breiðfylkingu.....

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 13.1.2009 kl. 00:33

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ps, Hendum þeim út á auðvitað að vera hendum ríkisstjórninni út. Við látum ekki þetta vanvita lið leiða okkur til fjandans...

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 13.1.2009 kl. 00:34

7 Smámynd: Baldvin Jónsson

Corvus Corax, mótmælin eru liður í leiðinni.

Breiðfylking fólks um endurheimtun lýðræðis er næsta skref.

Jakobína, allt komið á fleigi ferð. Sendi þér línu á tölvupóstinum.

Baldvin Jónsson, 13.1.2009 kl. 00:36

8 Smámynd: Haraldur Hansson

Það er alveg klárt að það þarf að kjósa. Það er stjórnarkreppa þegar ríkisstjórnin er óstarfhæf, traustið fokið út í veður og vind og allt þingið ennþá í jólafríi.

Þeir koma úr fríi eftir viku. Þá þarf að rjúfa þing og boða til kosninga. Það ætti þá að vera hægt að kjósa 14. mars. Minnst 5 af núverandi ráðherrum þurfa að taka sér frí og eiga ekki að vera á framboðslistum. Helst fleiri.

Haraldur Hansson, 13.1.2009 kl. 00:51

9 Smámynd: Sigurður Hrellir

Djö**** mega þau skammast sín sem ekki létu sjá sig á fundinum. Reyndar skil ég að þau hafi ekki þorað að standa augliti til auglitis við Robert Wade enda erfitt að réttlæta nokkurn skapaðan hlut sem þessi úrkynjaði sérhagsmunaklúbbur hefur staðið fyrir síðastliðin ár. Plássið sem var merkt þeim á sviðinu var jafn autt og innantómt og stefna þeirra út úr vandanum. Ég verð illa svikinn ef Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur lifa af þennan sjálfsmorðsleiðangur sem þeir lögðu upp í með einkavinavæðingu bankanna. Svo held ég að heilbrigðisráðherrann ætti að láta sig hverfa sem fyrst og skammast sín!

Sigurður Hrellir, 13.1.2009 kl. 01:08

10 Smámynd: Baldvin Jónsson

Menn gerðu nú grín að því hversu táknrænt það var þegar að Steingrímur J. var einhvern veginn kominn hálfur í stól Geirs eða annarra fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem þorðu ekki að mæta.

En ég velti því samt fyrir mér til hvers þau mæta þó? Það voru væntanlega teljandi á fingrum ekki nema 1-2 handa þeir aðilar í Háskólabíói í kvöld sem vilja eitthvað með eitthvað af þessu liði hafa meira.

Ég vil bara eitthvað alveg nýtt. Get ekki meira af þessu sama bulli áfram.

Baldvin Jónsson, 13.1.2009 kl. 01:16

11 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Rjúfi forseti þing skal kjósa innan 45 daga, er það ekki?    Ef það skeður 20/1 þarf að kjósa ekki seinna en 6/3.     Í öllu falli þarf talsverðan tíma til að undirbúa nýtt framboð - það verður að bjóða fram í öllum kjördæmum og framboðið verður að vera klárt tímanlega svo það lendi ekki í sama klandri og Ómar Ragnarsson var í síðast þegar hann fékk ekki að vera með á öllum sameiginlegu fundunum.     Þess vegna þarf framboðsmaskínan að fara að starta, 45 dagar er ekki langur tími þó ég telji nú að forsetinn sé svo beinlaus að hann þori sig hvergi að hræra!  

   Ég er út á landi svo ég veit auðvitað ekkert um hvað skeði á fundinum en mikið hræðilega var Kastljósviðtalið við Robert Wade dapurlegt og lokaorð hans þar voru þannig að það setti að manni hroll.   Ráðleysið (eða er það siðleysið ) er svo algjört hjá ríkisstjórninni og honum var það fulljóst - útlendingnum!   

Sennilega verður maður bara að fara og kaupa sér spotta og rifja upp hvernig á að gera rennilykkju!      Það má alltaf finna bita einhversstaðar til að binda í. 

Ragnar E.

Ragnar Eiríksson, 13.1.2009 kl. 01:50

12 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Fullur salur í Háskólabíó

Bloggað um fréttina

Vel er mætt á

Anna Ragna Alexandersdóttir, 13.1.2009 kl. 03:23

13 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

D-auður stóll.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 13.1.2009 kl. 03:24

14 Smámynd: Sylvía

flott hjá Sigurbjörgu en hún er eflaust ekki ein um það að hafa slíakr sögur að segja fleiri (m)ættu stíga fram.

Sylvía , 13.1.2009 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband