Fullkommið dæmi um getuleysi löggjafavaldsins gagnvart framkvæmdavaldinu

Tek mér það bessaleyfi hér að endurbirta færslu frá Helgu Völu, þú fyrirgefur mér vonandi ritstuldinn Helga Vala. Finnst þetta bara of stórt mál til þess að bera það ekki áfram. Stórkostlegt dæmi um algert getuleysi löggjafavaldsins nú orðið.

Helga Vala birtir þetta undir fyrirsögninni "Framkvæmdavaldið að störfum"

Guðlaugur Þór heilbrigðisráðherra ætlar að halda blaðamannafund í dag um hvernig niðurskurður verði í heilbrigðiskerfinu. Þar verða allar leiðir kynntar.

Ásta Möller, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis hefur boðað nefndarmenn til fundar á föstudag til að kynna fyrir þeim hvernig niðurskurður verði í heilbrigðiskerfinu.

Væri ekki nær að nefndarmenn (sem jafnframt eru kjörnir þingmenn þjóðarinnar) mættu bara á blaðamannafundinn, til að komast að því hvað á að gera varðandi heilbrigðiskerfið? Þá þarf liðið ekki að lesa um það í blöðunum á morgun og heyra um í fréttum kvöldsins, heldur getur jafnvel fengið þetta beint í æð frá framkvæmdavaldinu.

... og þá þarf ekkert að vera að eyða tíma í fundarhald á föstudag. Málið dautt.....


mbl.is Vinnubrögðin átalin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Eyjólfur Jóelsson

Það er alveg ljóst að breyta þarf stjórnarskrá hið snarasta ,það er með öllu ólíðandi

að teknar séu svo stórar ákvarðanir eingöngu af ráðherra og hann geti framkvæmt án þess að umræður hafi farið fram á alþingi ,Það þarf að skera algerlega í burtu að ráðherrar séu þingmenn og ráðherrar þ.e. að það verði skýr mörk á milli framkvæmdavalds og löggjafarvalds og að framkvæmdavald geti aðeins framkvæmd það sem hefur farið í gegnum alþingi .Það leiðir til þess að breyta þarf löggjöf um kosningar þannig að forsætisráðherra verði kjörinn sér hvort sem það verður af þingmönnum sjálfum eða með beinni kosningu en þá mætti hugsa sér að fella það embætti inn i forsetaembættið. Það er allavega ljóst að það þarf breytingar 

Guðmundur Eyjólfur Jóelsson, 7.1.2009 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband