REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ mælist með fylgi - afar ánægjuleg tíðindi

Já, þrátt fyrir að hafa ekkert getað komið okkur á framfæri enn sem komið er nema með einni auglýsingu í Fréttablaðinu og svo með bloggum mælist REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ nú með 1,7% fylgi. Á sama tíma veit stærstur hluti Reykvíkinga ekki af okkur eða fyrir hvað við stöndum. Ég met þetta því sem afar ánægjuleg tíðindi og þakka stuðninginn.

Þetta eru afar undarlegir tímar í pólitík þessi dægrin og áhugi fólks á komandi sveitarstjórnarkosningum er nánast engin. Sú litla umræða sem skapast hefur er fyrst og fremst um Besta flokkinn og skemmtunina sem að Jón Gnarr hefur fært inn í kosningarnar undanfarna daga. Margir stjórnmálamenn tengdir fjórflokknum hafa lýst því yfir að þetta séu fyrst og fremst skilaboð um að þeir hafi sjálfir klikkað. Það er mikið til í því en mikil sjálfhverfa þó að mínu mati að eigna sjálfum sér fylgi Jóns Gnarr. Er ekki einfaldlega líklegt að hann hafi þó nokkuð fylgi líka vegna eigin vinsælda og framkomu? Mér þykir það líklegt.

Í þessum mælingum sem birst hafa að þessari síðustu undanskilinni var REYKJAVÍKURFRAMBOÐIÐ ekki orðið til. Við vonum að sjálfsögðu að fjölmargir kjósendur séu að bíða eftir því að sjá eitthvað nýtt, eitthvað alvöru mótvægi við fjórflokkinn stíga fram og ætlum að treysta á að kjósendur sjái að við höfum eitthvað raunverulegt fram að færa.

Við stöndum fyrir fjölmargt, en setjum fókusinn á þrjú meginþemu:

1. Að draga úr valdi og hagsmunatengslum fjórflokksins og auka lýðræði í borginni með því að færa völd frá borgarstjórn og borgarráði, til fólksins.

2. Að bæta verulega skipulag í borginni með þéttingu byggðar, en þétting byggðar dregur verulega úr óhagræði og umferð, sem aftur dregur verulega úr slysum og mengun.

3. Að verjast alfarið niðurskurði í velferðarkerfinu og hækkun skatta og lausnin er fyrir augum okkar allra í verðmætu landi Vatnsmýrarinnar.

Við trúum ekki á stórar yfirlýsingar og loforð, en viljum þó lofa því að fáum við til þess nægjanlegt fylgi og vægi innan borgarstjórnar munum við leggja fram lausnir sem bæta verulega hag þeirra sem verst hafa það í borginni. Það er með öllu ólíðandi að fólk skuli þurfa að standa í biðröðum eftir matargjöfum fyrir allra augum. Lágmarksviðmið fyrir framfærslu hjá félagsþjónustunni verða að hækka.

Með því mikla aðgengi að fjármagni sem leynist í Vatnsmýrinni eru allar líkur á því að við getum dregið mjög úr versnandi kreppuáhrifum og jafnvel komið alfarið í veg fyrir versta tímann sem áætlað er að sé framundan.

Lýkur kreppunni í borginni í sumar?


mbl.is Besti flokkurinn fengi fjóra kjörna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Það hefur nú ekki enn fundist gull í Vatnsmýrinni sem þar að auki er í eigu allrar þjóðarinnar svo það er nú vafasamt að slá víxil út á hana.    Það er ennars alveg ný hugmynd að lofa gulli og grænum skógum - engum dottið þetta í hug fyrr!!!!!

Ragnar

Ragnar Eiríksson, 1.5.2010 kl. 22:16

2 Smámynd: Baldvin Jónsson

Það er fleira verðmætt en gull Ragnar, sem betur fer þar sem ekki finnst mikið af því nema í glingri hér á landi.

Það er hins vegar misskilningur að Vatnsmýrin sé í þjóðareign, ríkið á aðeins lítinn hluta hennar á móti borginni, sem er undir flugvellinum sjálfum.

Við lofum því hvorki gulli né skógum, en fáum við til þess nægt fylgi munum við herja á að bæta verulega kjör þeirra sem verst hafa það og verja um leið velferðarkerfið fyrir frekari niðurskurði. Þetta getum við gert án skattahækkana. Það er eitthvað sem enginn hinna treystir sér til þess að lofa vegna undarlega flókinna hagsmunatengsla flokkanna þar sem að þeir ítrekað nota hagsmuni borgarbúa sem skiptimynt í valdatafli sínu á landsvísu.

Baldvin Jónsson, 1.5.2010 kl. 22:29

3 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Ríkið á um 1/3 þess svæðis sem er innan girðingar.  Reykvíkingar eru um 37% þjóðarinnar. Þar með eiga borgarbúar 37% af þessum hlut ríkisins.

Þá má nefna að svæðið utan girðingar þar sem nú er helgunarsvæði flugvallarins er stærra en svæðið innan girðingar.

Til gamans má geta að Vatnsmýrin er tvöfalt stærri en Mónakó og stærri en miðborg Parísar innan hringvegar.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 2.5.2010 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband